Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 13
Events fyrir skólann. „Við vorum
með gesti sem voru að koma til
Warner Brothers Studio og halda
svona spurt-og-svarað-viðburði.
Það var fólk úr öllum áttum sem
kom til okkar; handritshöfundar og
leikarar meðal annars, til að
mynda Linda Woolverton, Josh
Brolin og Jonah Hill. Svo fengum
við líka fólk sem var í kvikmynda-
gerð, kvikun (e. animation) og öðru
slíku, fólk sem kannski ekkert allir
þekkja en hefur engu að síður ver-
ið að gera frábæra hluti og á að
baki mörg mjög flott verk. Þetta
fólk var þarna samankomið til að
miðla af reynslu sinni til nemenda.
Þetta var mjög skemmtilegt starf.“
Ragnhildur er fædd og uppalin í
Bandaríkjunum en hefur verið með
annan fótinn á Íslandi alla tíð. Hún
og eiginmaður hennar hafa búið í
Los Angeles undanfarin ár.
Umhverfið mjög alþjóðlegt
Ragnhildur stýrði LA Events
þangað til hún var komin átta
mánuði á leið með sitt fyrsta barn.
„Ég eignaðist dóttur mína Stellu
Lúnu fyrir þremur árum, 38 ára
gömul. Var svona aðeins í seinni
kantinum til að verða mamma,“
segir Ragnhildur og hlær.
„Eftir barneignarfrí fór ég að
vinna fyrir New York Film Aca-
demy og af því að ég þekkti skól-
ann svo vel sjálf endaði ég á því að
fara að vinna á skrifstofu skólans.
Það æxlaðist svo bara þannig að
ég fékk starfið sem ég er í núna.
Ég stýri semsagt inntökudeildinni.
Ég elska þennan skóla, deildirnar
innan hans vinna mikið og vel
saman og eitt af því sem mér
finnst svo gott við hann er að
meira en helmingurinn af nem-
endum er alþjóðlegur. Þetta er
mjög alþjóðlegt umhverfi og það
er gaman að vera innan um fólk
sem er sögumenn í eðli sínu, en
það má finna út um allan heim. Þú
heyrir portúgölsku, arabísku, kín-
versku og fullt af fleiri tungu-
málum dags daglega í þessu starfi,
nemendur tala mikið saman á
göngunum á ýmsum tungumálum
og það finnst mér mjög jákvætt.
Það endurspeglar að mínu mati
kvikmyndagerðarheiminn; hann er
mun alþjóðlegri en ég held að fólk
geri sér almennt grein fyrir.“ Og
það er ekki ofsögum sagt að fjöldi
nemenda alls staðar að stundar
nám við skólann ár hvert. „Holly-
wood er svo fjölþjóðlegur staður,
þar má finna fjöldann allan af
fólki alls staðar að úr heiminum
og New York Film Academy end-
urspeglar það. Þetta fólk hittist
svo á ýmsum kvikmyndahátíðum,
fólk sem á það allt sameiginlegt
að elska bíó.“
Með mjög svartan húmor
Og hvað skyldi svo vera fram
undan hjá þessari miklu athafna-
konu? „Ég veit það eiginlega ekki.
Ég tek bara einn dag í einu. Ég
er svo heppin að hafa alltaf getað
unnið við skapandi störf og tek þá
reynslu með mér í þetta nýja
starf, það hefur reynst mjög
skemmtilegt og krefjandi. Ég vinn
með frábæru fólki, svo eins og
staðan er núna ætla ég að einbeita
mér að þessu starfi og gera það
vel,“ segir Ragnhildur. Hún tekur
enn að sér framleiðsluverkefni hér
og hvar, nú síðast í vor. Ragnhild-
ur hefur þrátt fyrir það ekki alveg
lagt eigin sköpunarkraft á hilluna.
„Ég er alltaf að skrifa svona
á hliðarlínunni. Ég féll fyrir hand-
ritaskrifum þegar ég var í náminu
þannig að ég skrifa dálítið svona
fyrir mig sjálfa. Mér líkar best að
skrifa í svörtum húmor, slíkt á vel
við mig og blandast dálítið inn í
allt sem ég skrifa.“ Ragnhildur
heldur því þó ekki fram að hún sé
atvinnuhöfundur. „Ég hef fram-
leitt sumt af því sem ég hef skrif-
að en ég lít ekki á mig sem at-
vinnuhöfund. Þetta er meira
ástríða á hliðarlínunni, ég hef ekki
verið að eltast mikið við þetta en
það er eitthvað sem heldur mér í
þessu samt sem áður. Ég er innan
um svo mikið af skapandi fólki
sem er að fást við svo margt og
fjölbreytt. Það finnst mér
skemmtilegt umhverfi,“ segir
Ragnhildur að lokum.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Ertu komin/n með nóg af starfinu
þínu sem þú eitt sinn elskaðir? Það
er líklegt, sé tölfræðin skoðuð. Um
það bil tveir þriðju vinnandi fólks
hafa viðurkennt að hafa fundið fyrir
leiða og minnkandi starfsánægju í
vinnunni. Það er þó engin ástæða til
þess að örvænta því hægt er að snúa
þessari þróun við.
Á vef BBC má finna nokkur einföld
skref sem fólk getur gert til þess að
snúa leiða upp í ánægju. Það fyrsta
sem lagt er til að fólk geri er að stilla
væntingum sínum í hóf. Flestir hafa
þá von í upphafi nýs starfs að þeir
geti bjargað heiminum, eða í það
minnsta verið partur af heild sem
vinnur að því smám saman að bjarga
heiminum. Næsta skref er að skoða
vandlega hvers vegna þú hefur lært
að þola ekki vinnuna þína. Rifjaðu
upp hvað það var upphaflega sem dró
þig að starfinu, og hvað það var við
starfið sem þú elskaðir þegar þú byrj-
aðir. Það ætti að auðvelda þér að átta
þig á hvaða hlutir það eru sem þú vilt
laga og hjálpa þér að snúa þróuninni
við í átt til betri vegar.
Margir eru komnir með leiða á vinnunni sinni
Þreyta Fjöldi fólks finnur fyrir leiða og tilbreytingarleysi í starfi sínu.
Lærðu að elska starfið þitt
aftur með einföldum lausnum
Höfuðstöðvar New
York Film Academy
eru, eins og nafnið
gefur til kynna, í New
York. Að auki eru þrjú
eins konar útibú skól-
ans á þremur stöðum
í Bandaríkjunum og
svo um heim allan.
Skólann stofnaði
framleiðandinn Jerry
Sherlock og hann hef-
ur verið starfræktur í
ein 25 ár. Á þeim tíma
hefur hann byggt upp
gott orðspor sem einn
af fremstu og virtustu
kvikmyndaskólum heims. Um 400 kennarar starfa við skólann og
árlega eru rúmlega 7.000 nemendur teknir inn. Nemendur vinna
eigið efni og læra á því að vinna eins og gert er í kvikmyndabrans-
anum.
NEW YORK FILM ACADAMY
Fremstur á sínu sviði
Árdagar Reykja-
víkur er yfirskrift
sunnudagsins 23.
júlí í Árbæjarsafni,
en þann dag gefst
gestum safnsins
tækifæri til að
upplifa Reykjavík
eins og hún var í
gamla daga.
Starfsfólk mun
klæðast fatnaði
frá umræddum tíma, húsfreyjan í
Árbæ býður upp á nýbakaðar lummur
og í haga verða hestar, kindur og hæn-
ur. Þá verður guðsþjónusta klukkan 14
og fer prédikar Kristinn Ágúst Frið-
finnsson fyrir altari. Einnig verður
boðið upp á kaffi og ýmsar góðar veit-
ingar í Dillonshúsi. Ókeypis aðgangur
verður fyrir börn, eldri borgara og ör-
yrkja, og þá fá handhafar menning-
arkorts Reykjavíkurborgar og Gesta-
kortsins sömuleiðis frítt inn.
Árdagar í Árbæjarsafni
Gestir sendir
aftur í tímann
Heyjað við
Árbæjarsafn.
Tónlistarmaðurinn
Pálmi Sigurhjart-
arson er flestum
Íslendingum að
góðu kunnur. Í
kvöld mun hann
koma fram á
Græna herberginu
þar sem fram mun
fara Pálma Sigur-
hjartar-Sing-A-
Long og eru allir
sannir tónlistarunnendur hvattir til
þess að láta það ekki framhjá sér
fara. Pálmi mun fara hamförum á pí-
anóinu og munu gestir taka þátt í
bæði leik og söng. Pálmi er ekki
ókunnugur söng og gleði en hann var
um árabil meðlimur Sniglabandsins,
auk þess að hafa tekið þátt í gerð
fjölda hljómplatna, sem hljóðfæra-
leikari, lagahöfundur, söngvari, út-
setjari og upptökustjóri, allt frá árinu
1985. Þá hefur hann einnig unnið
sem hljómsveitar- og tónlistarstjóri í
útvarpi, sjónvarpi og leikhúsi sem og
unnið við tónlistarkennslu um árabil.
Sing-A-Long með Pálma
Gleði í Græna
herberginu
Pálmi
Sigurhjartarson
Skóli New York Film Academy er meðal fremstu kvikmyndaskóla heims.