Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA
Nutrilenk fyrir liðina
Náttúrul
egt
fyrir liðin
a
GOLD
NNA
Vertu laus við
LIÐVERKINA
Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi
„Ég var búinn að fara í þrjár hnéaðgerðir á nokkurra ára tímabili, var mjög slæmur og treysti
mér engan veginn í aðra aðgerð. Semmúrari er ég mikið á hnjánum og starfið reynir gríðarlega
á liðina. Til allrar hamingju ákvað ég að prófaNUTRILENKGOLD. Ég tók inn 6 töflur
fyrstu tvær vikurnar og það dugði mér til að verða góður. Nú tek ég 2 töflur á dag til að viðhalda
batanum. Það má segja að batinn sé kraftaverki líkastur. Ég hvet því kollega mína í iðninni til að
prófa,“ segir Davíð en hann setti hvorki meira né minna en Íslandsmet í keilu í fyrra.„Ég trúi því
aðNUTRILENKGOLD haldi mér góðum í keilunni a.m.k næstu 20 árin.“
Davíð Löve, múrari og keilusnillingur
„ÉG HVET AÐRAMÚRARA TIL AÐ PRÓFA
NUTRILENK GOLD“
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Annar leikur íslenska kvenna-
landsliðsins á Evrópumótinu í
knattspyrnu í Hollandi fer fram í
dag þegar íslenska liðið mætir því
svissneska. Mikið er undir í leikn-
um í dag enda töpuðu bæði lið
fyrstu leikjum sínum í mótinu.
Stærri gerast leikirnir ekki og
spennan er orðin áþreifanleg hjá
leikmönnum og stuðningsmönnum
íslenska liðsins.
Eitthvað fyrir alla í Hollandi
Fyrir þá Íslendinga sem staddir
eru í Hollandi hefst upphitun
klukkan 12 á stuðningsmannasvæð-
inu í Doetinchem. Svæðið er í
Ijsselkade, við hliðina á ánni Ijssel,
sem er í um 1,8 km fjarlægð frá
vellinum.
Boðið verður upp á skemmtiatriði
og ýmiskonar leiki fyrir alla fjöl-
skylduna, auk þess sem hoppkast-
alar verða á svæðinu fyrir yngstu
kynslóðina. Það eiga því allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þeim stuðningsmönnum Íslands
sem ekki komust til Hollands
stendur nóg til boða. EM-torgið á
Ingólfstorgi verður á sínum stað
og þar má setjast niður og fylgjast
með leiknum á risaskjá. Auk þess
munu íþróttabarir víðsvegar um
land sýna leikinn, hann verður til
að mynda sýndur í Stúdenta-
kjallaranum í Háskóla Íslands,
Spot í Kópavogi og Shake and
Pizza í Grafarvogi.
Leikurinn hefst klukkan 16:00
og verður sýndur á RÚV. EM-
stofan hitar upp fyrir leikinn og er
ráðgert að upphitunin hefjist um
45 mínútum fyrir leik.
Mikil spenna fyrir leiknum í dag
EM-torgið og
stuðningsmanna-
svæði á sínum stað
Morgunblaðið/Elín Þórðardóttir
Stemning Annar leikur íslenska kvennalandsliðsins á Evrópumótinu í knattspyrnu í Hollandi fer fram í dag þegar íslenska liðið mætir því svissneska. Ráð-
gert er að um 3.000 Íslendingar mæti á völlinn og styðji þétt við bakið á stelpunum í leiknum sem hefst klukkan 16 í dag og verður sýndur beint á RÚV.
KSÍ og stuðningsmannasveit ís-
lenska landsliðsins, Tólfan, hafa
unnið saman síðustu daga að því
að koma nokkrum
meðlimum Tólf-
unnar á leikinn
gegn Sviss í dag.
Arnar Friðriks-
son, trommari
Tólfunnar, var á
síðasta leik liðsins
gegn Frökkum
ásamt Friðgeiri
Bergsteinssyni.
Hann segir að
ferðin hafi verið farin í samráði
við KSÍ. „Tólfan, í góðu samstarfi
við KSÍ, náði að senda út tvo með-
limi úr kjarna Tólfunnar. Þegar út
var komið reddaði KSÍ miðum á
leikinn fyrir okkur.“
Senda reynslubolta
til Hollands
Arnar segir að formaður Tólf-
unnar hafi valið þá meðlimi sem
voru sendir til Hollands og þar
sem einungis tveir fóru var
ákveðið að senda allra reyndustu
stuðningsmenn landsliðsins. „Ég
var beðinn að fara þar sem ég er
trommari sveitarinnar. Friðgeir
hefur verið lengi í Tólfunni og er
vanur að rífa upp stemninguna á
Laugardalsvelli og annars stað-
ar.“
Arnar og Friðgeir komu til
landsins í vikunni og munu aðrir
meðlimir sveitarinnar fá að
spreyta sig í leiknum gegn Sviss.
„Við komum heim núna fyrr í vik-
unni og aðrar Tólfur tóku við
keflinu og munu sjá til þess að
stemningin á leikjunum verði
jafngóð og hún var á leiknum
gegn Frökkum,“ segir Arnar sem
vonast til þess að það gangi eftir.
„Stemningin var gjörsamlega raf-
mögnuð bæði fyrir og eftir fyrsta
leik. Íslendingar létu vel í sér
heyra í Tilburg og rúmlega það.
Við áttum völlinn og það heyrðist
ekki í neinum nema íslensku
stuðningsmönnunum. Ég er hand-
viss um að það sama verður upp á
teningnum í dag.“
aronthordur@mbl.is
Tólfan skiptir leikjum íslenska kvennalandsliðsins á milli sín
Arnar
Friðriksson
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Vettvangur viðureignar Íslands og
Sviss í dag verður Stadion De Vij-
verberg.
Völlurinn er heimavöllur De Gra-
afschap í hollensku fyrstu deildinni
og tekur um 12.600 manns í sæti.
Búist er við svipuðum fjölda og á
leiknum á móti Frakklandi og gert
ráð fyrir að Íslendingar verði í tals-
verðum meirihluta.
Völlurinn var opnaður árið 1954
en síðan þá hefur hann nokkrum
sinnum gengið í gegnum endurnýj-
un og stækkun.
Nafnið á vellinum gæti útlagst
Tjarnarhæð á íslensku, en nafnið er
komið frá hóteli sem áður stóð þar
sem völlurinn er nú.
Áður en hótelið var byggt þurfti
að fylla upp í margar tjarnir á
svæðinu, en unnið var af svo miklu
kappi að hæð myndaðist. Eigendum
hótelsins fannst nafnið tilvalið og
hefur svæðið því verið kallað
Tjarnarhæðin allar götur síðan.
Ísland áður leikið á vellinum
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ís-
lenskt landslið spilar á vellinum en
ólympíulið Íslands í karlaflokki spil-
aði þar gegn Hollandi 1988. Aðeins
573 áhorfendur mættu á þann
landsleik, sem þótti heldur lélegur.
Gera má ráð fyrir að annað verði
upp á teningnum í dag enda munu
3.000 íslenskir stuðningsmenn láta
vel í sér heyra. Völlurinn er tilval-
inn til þess að mynda góða stemn-
ingu enda sitja stuðningsmenn al-
veg við völlinn.
Það verður því gaman að fylgjast
með íslenskum stuðningsmönnum
sem eflaust munu styðja vel við
bakið á stelpunum þegar flautað
verður til leiks klukkan 16 í dag.
Mæta Sviss á
Tjarnarhæð
Gera ráð fyrir um 3.000 Íslendingum
Völlurinn Mikið er undir á Tjarnarhæð þegar Ísland mætir Sviss í dag. Ef
Ísland ætlar að eiga möguleika í mótinu dugar ekkert minna en sigur.
EM KVENNA Í FÓTBOLTA 2017
Matur