Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borun fjórðu rannsóknarholunnar við Hoffelli
í Hornafirði er nú lokið og allt stefnir í góðan
árangur að því fram kemur í frétt á heima-
síðu Íslenskra orkurannsókna.
ÍSOR hefur á undanförnum árum leitað að
jarðhita og séð um rannsóknir á svæðinu fyr-
ir RARIK, en Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða hefur séð um borunina. Hoffell er í um
20 kílómetra fjarlægð frá Höfn. Það yrði mik-
il búbót fyrir sveitarfélagið ef nægilegt vatn
finnst til húshitunar. Á Höfn er nú rekin fjar-
varmaveita sem nær til stórs hluta bæjarins.
Fjórða borholan 1.750 metra djúp
Borun fjórðu borholunnar(HF-4) lauk 14.
júlí. Hún varð 1.750 metra djúp og eftir
stutta afkastamælingu (þrepadælingu) í bor-
lok virðist holan geta gefið allt að 50 sek-
úndulítra af um og yfir 80°C heitu vatni við
120 metra niðurdrátt. Frekari upplýsingar
um afköst holunnar munu síðan fást í lang-
tíma prófun með djúpdælu.
Áður hafa verið boraðar þrjár djúpar
vinnslu-/rannsóknarholur auk fjölda hitasti-
gulsholna og hafa þær allar verið boraðar af
Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða. Hola
HF-2 gaf ekki vatn en holur HF-1 og HF-3
hittu á vatnsæðar og gefa vatn; hola HF-3
mun meira en HF-1.
„Staðsetning holu HF-4 var m.a. ákveðin út
frá því módeli að aðaluppstreymi jarðhita-
vatns á svæðinu sé um sprungur með NA-SV
strikstefnu og að þeim halli flestum til SA,“
segir í fréttinni á heimasíðu ÍSOR. Upplýs-
ingar sem fengist hafa út úr mælingum hafa
hjálpað til við að staðsetja lóðréttar vinnslu-
holur með meiri nákvæmni en ella og auka
þannig líkurnar á að holurnar hitti á vatns-
gæfar sprungur í jarðhitakerfinu.
Í stórum dráttum gekk þetta allt eftir með
HF-4. Æðar komu inn í holuna á því bili sem
búist var við þeim, á 800-1.200 m dýpi. Þær
voru þó ekki mjög vatnsgæfar og var borun
því haldið áfram. Fleiri æðar héldu áfram að
koma inn alveg niður á 1.690 metra dýpi og
var holan blásin nokkrum sinnum á meðan á
borun stóð ásamt því að vera hitamæld.
Blástursprófanirnar bentu til að meira vatn
hefði komið inn eftir því sem dýpra var farið
og að holan væri ekki að fara út úr eða fjar-
lægjast jarðhitakerfið. Helstu innrennslisæð-
ar í HF-4 virðast vera á 1.160 m, 1.315 m,
1.470 m og 1.650-1.690 metra dýpi. Mjög lík-
lega skila æðarnar á 1.650-1.690 metradýpi
allt að helmingi vatnsins inn í holuna og er
hitinn þar um 83°C. Það er um 7-10°C meiri
hiti heldur en fengist hefur úr hinum vinnslu-
holunum og þykir benda til að HF-4 sé nær
meginuppstreymi jarðhitakerfisins og að það
teygi sig lengra norðaustur frá Hoffelli.
Jarðhitakerfið flóknara en talið var
Á undanförnum árum hefur ÍSOR unnið að
jarðhitaleit við Hoffell í Hornafirði fyrir RA-
RIK með það að markmiði að finna heitt vatn
fyrir hitaveitu á Höfn. Áður unnu Jarðfræði-
stofan Stapi og Orkustofnun að jarðhitaleit
við Hoffell. Eftir að ÍSOR tók við rann-
sóknum á svæðinu kom fljótlega í ljós að
jarðhitakerfið við Hoffell var flóknara en talið
hafði verið. Jarðlaga- og holusjármælingar í
völdum borholum á svæðinu studdu það og
breyttu þeim hugmyndum sem menn höfðu
áður haft um jarðhitakerfið og sprungur
þess.
Boranir í Hornafirði árangursríkar
Fjórða rannsóknarholan gefur 50 sekúndulítra af 80 gráða heitu vatni Leita að vatni fyrir Höfn
Ljósmynd/Heimir Ingimarsson
Við Hoffell Ræktunarsamband Flóa og Skeiða hefur séð um borunina. Á meðan á þrepaprófinu
stóð var mælingabíll ÍSOR með hita- og þrýstimæli á 400 m dýpi í holunni og skráði breytingar.
SVIÐSLJÓS
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Sögufélagið Steini á Kjalarnesi hefur
hafið áheitafjársöfnun á vefsíðunni
Karolinafund.com vegna gerðar úti-
altaris með keltnesku hringsniði, sem
félagið er að reisa við Esjuberg á
Kjalarnesi. Framkvæmdirnar eru
komnar nokkuð á veg, á síðasta ári
var stæði útbúið fyrir altarið. Nú er
risinn einn fjögurra ystu skjólveggja
þess, en annar áfangi fram-
kvæmdanna felur í sér að reisa vegg-
ina, ytri hring altarisins af tveimur og
leggja göngustíga á altarissvæðið.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, tók fyrstu skóflustungu að
altarinu 8. maí á síðasta ári.
Um 4.600 evrur hafa þegar safnast,
eða rúm hálf milljón. Er það tæplega
þriðjungur þeirrar upphæðar sem
þarf til að ljúka öðrum áfanga fram-
kvæmda við altarið. Til að áheiti inn-
heimtist þarf öll upphæðin að nást
fyrir 5. ágúst. Heildarkostnaður við
verkið er svo áætlaður um tíu millj-
ónir króna.
Kjalarnessprófastsdæmi, hverf-
isráð Kjalarness og sóknarnefnd
Brautarholtssóknar hafa styrkt verk-
efnið duglega.
Reyndur hleðslumaður vinnur
verkið, en það er einnig að hluta unn-
ið í sjálfboðavinnu meðlima Sögu-
félagsins og hafa þeir m.a. tínt grjót
til að hlaða altarið, en ætlunin er að
allt grjótið komi af Kjalarnesi.
Sögufélagið driffjöðrin
Altarið er minnisvarði um kirkju
Örlygs Hrappssonar, sem talin er
hafa staðið á Esjubergi fyrir kristni-
töku, um árið 900. Er hún fyrsta
kirkja á Íslandi sem getið er í rit-
heimildum. Ýmsar heimildir renna
stoðum undir sögur af tilvist kirkj-
unnar en engar menjar hafa fundist
sem staðfesta hana. Líklegt er talið
að skriðuföll úr Esju á 17. eða 19. öld
hafi eytt henni. Örnefni á staðnum
vísa til helgihalds þar.
„Þetta hófst í fyrra, fyrsti áfangi,
að byrja á hringnum. Þá var einnig
settur hér veglegur altarissteinn sem
vegur ellefu tonn sem við fengum að
gjöf frá fyrri ábúendum Esjubergs,“
segir Hrefna Sigríður Bjartmars-
dóttir, formaður Sögufélagsins
Steina, en nú stendur yfir vinna við
annan áfanga. Hugmyndin um minn-
isvarða við Esjuberg vaknaði um
aldamót, en síðustu ár hefur Sögu-
félagið tekið hana á framkvæmda-
stig.
„Það er Sögufélagið sem er grunn-
urinn að þessu framtaki hérna. Ég er
í samstarfi við Sögufélagið í starfi
mínu sem sérþjónustuprestur á Bisk-
upsstofu á sviði helgihalds og þjóð-
menningar og bý að því að hafa sér-
þekkingu í keltneskum fræðum,“
segir séra Gunnþór Þ. Ingason.
Að hans sögn eru keltneskar rætur
við Esjuberg sterkar, en samkvæmt
Landnámu kom Örlygur frá Suður-
eyjum við Skotland, en settist síðar
að á Kjalarnesi. Fjölmörg örnefni á
svæðinu eiga einnig keltneskar ræt-
ur.
Nánar má lesa um útlit og upp-
byggingu altarisins hér til hliðar, en
það verður í keltneskum stíl líkt og
áður sagði. Sem dæmi má nefna, að í
miðju mannvirkinu mun standa stór
keltneskur hringkross.
Minnisvarði og
vígður helgistaður
Altarið mun ekki aðeins þjóna til-
gangi sem minnisvarði, heldur verður
það vígt sem kristinn helgidómur,
líkt og um kirkju væri að ræða. Þar
gefst fólki t.d. kostur á að láta gefa
sig saman eða láta skíra börn.
„Þetta er auðvitað kristinn helgi-
staður og minnisvarði um keltneska
arfleið okkar. Þetta getur samt líka
tengst útiveru og ferðamennsku því
hér er einmitt gönguleið upp á Ker-
hólakamb. Fólk getur þá komið hing-
að og talað við drottin áður en það fer
upp og hvílt sig þegar það kemur nið-
ur. Þetta getur orðið dýrmætur
hvíldar- og íhugunarstaður,“ segir
Hrefna Sigríður.
Ef allt gengur að óskum er áætlað
er að framkvæmdum við annan
áfanga ljúki fyrir lok þessa árs og að
altarið verði tilbúið í lok árs árið 2018.
Safna fé til að klára útialtarið
Reisa útialtari að keltneskum sið við Esjuberg á Kjalarnesi Til minningar um kirkju Örlygs
Hrappssonar Söfnun vegna altarisins hafin á Karolina Fund Hafa þegar safnað þriðjungi
Morgunblaðið/Golli
Náttúrufegurð Hrefna og séra Gunnþór gáfu sér tíma til að ræða við blaðamann og ljósmyndara við Esjuberg.
Útialtarið á Esjubergi verður í
keltneskum stíl og það teikn-
aði Sigurborg Haraldsdóttir
landslagsarkitekt eftir hug-
mynd sr. Gunnþórs Þ. Inga-
sonar. Fjórir hlaðnir veggir,
um 1,5 metra háir, marka ytri
mörk altarisins, og veggirnir
liggja í hring.
Tveir gangvegir, 18 metrar
að lengd, liggja þvert í gegn-
um altarið og mynda kross. Til
viðbótar við ystu veggina
liggja tveir hringir nær alt-
arinu sem lækka eftir því sem
nær dregur altarissteininum,
sem verður í miðjunni. Á
grjótveggjunum eru hlaðnir
bekkir sem snúa inn að alt-
arissteini, en einnig eru við
altarið skírnarfontur og pre-
dikunarstóll.
Altarið er
hringkross
AÐ KELTNESKUM SIÐ
Altarissteinn Upplýsingaskilti um altarið er í forgrunni. 11 tonna alt-
arisstein, í miðju altarisins, má sjá í bakgrunni aftan við hlaðinn vegg.