Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 18

Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 • Bindivír 1 mm U hankir og rúllur 1.4 mm • Fjarlægðarstjörnur og steinar 20-50 mm • Plastlistar á undirslegnar plötur, einnig harðir • U listar á ull eða plasteinangrun • Járnstólalengjur, sterkir og góðir stólar frá 50 mm • Mótarör og kónar 10–50 mm • Öryggishlífar á kambstál, listar og sveppir Járnabakkar Járnabindingavörur Erum með á lager allar helstu gerðir af járnabökkum Vír og lykkjur ehf www.viroglykkjur.is - viroglykkjur@internet.is 772-3200/692-8027 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Gísli Rúnar Gíslason gislirunar@mbl.is Undanfarin ár hafa algjör um- skipti orðið í sölu gosdrykkja og sala á sykurlausum drykkjum auk- ist mikið. Ölgerðin Egill Skalla- grímsson selur nú meira magn af sykurlausum en sykruðum gos- drykkjum, en árið 2002 var ein- ungis þriðjungur seldra gos- drykkja frá Ölgerðinni sykurlaus. „Það er í raun tvennt í þessu. Annars vegar hafa vatnsdrykkir vaxið mjög hratt á markaðnum og hins vegar sykurlausir kóladrykk- ir. Kristall er til að mynda orðinn stærsta vörumerkið okkar og er vinsælasti sykurlausi gosdrykkur- inn á markaðnum. Þá hefur sala á Pepsi Max aukist mjög mikið. Þetta eru aðallega Kristall og Pepsi Max sem hafa þessi áhrif hjá okkur en við verðum líka varir við aukningu í öðrum sykurlausum gosdrykkjum eins og til dæmis diet-appelsíni,“ segir Gunnar B. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Aðspurður staðfestir Einar Snorri Magnússon, framkvæmda- stjóri markaðs- og sölusviðs Coca Cola European Partners á Íslandi, þessa þróun á markaðnum. „Syk- urlausir gosdrykkir, bæði vatns- drykkir og kóladrykkir, vaxa mjög hratt og á móti minnka sykraðir gosdrykkir hægt og rólega. Coke Zero hefur vaxið mjög hratt hjá okkur og sömu sögu er að segja um Toppana. Coca Cola ber þó enn höfuð og herðar yfir önnur vörumerki á markaðnum,“ segir Einar. Vatnsdrykkir vinsælir Í sykurlausa hluta gosdrykkja- markaðarins er Kristall vinsælasta vörumerkið. „Sala á kolsýrðu vatni hefur aukist mjög hratt undanfar- in ár og kolsýrðir vatnsdrykkir eru orðnir næstmest seldi vöruflokk- urinn á markaðnum. Það stefnir allt í að vatnsdrykkir verði mest seldi vöruflokkurinn á næsta ári,“ segir Gunnar. RJC ehf. blandaði sér nýverið í samkeppnina á gosdrykkjamark- aðnum með framleiðslu og sölu á kolsýrðu vatni undir vörumerkinu Klaka. „Við kepptumst við að bjóða upp á mun betra verð og sal- an hefur aukist mjög mikið hjá okkur,“ segir Ásgeir Johansen, framkvæmdastjóri RJC. Neyslu stýrt í minni einingar Sykurinnihald gosdrykkja hefur lengi verið umræðuefni hérlendis og umræða og tillögur um ein- hvers konar skattlagningu til að sporna við gosdrykkjaneyslu hafa reglulega komið upp. Fyrr á árinu tilkynnti Coca Cola European Partners á Íslandi að á næstunni myndi hin svokallaða súperdós hverfa af markaði hérlendis. Þann- ig væri fyrirtækið að sýna ábyrgð hvað varðar skammtastærðir með því að bjóða ekki upp á stærri skammt en 330 ml í umbúðum sem ekki eru endurlokanlegar. „Það er áberandi meiri eftirspurn eftir minni umbúðum, eins og 330 ml dósum og 500 ml plastflöskum, en sala á stærri umbúðum hefur dregist saman,“ segir Einar. Í skýrslu Ölgerðarinnar um samfélagslega ábyrgð kemur fram að stilla þurfi neyslu sykraðra gos- drykkja í hóf og að neysluskammt- ar þeirra hafi undanfarið verið í stöðugri þróun með aukinni áherslu á að minnka þær einingar. Þá segir í skýrslunni að góður árangur hafi náðst á því sviði og sala á minni einingum hafi aukist umtalsvert. Bjuggust við umskiptum 2008 „Við héldum að vatnsdrykkirnir færu að taka fram úr um 2008, en þetta snerist við í kreppunni og Íslendingar fóru aftur að sækja í sykraða drykki. Það er örugglega mannfræðistúdía hvað liggur þar að baki. Það er ýmislegt sem við sjáum í vísitölum hjá okkur, til dæmis rýkur salan á Egils þykkni upp þegar hart er í ári en snögg- lækkar í góðæri. Hagstofan ætti eiginlega að vera í beinu sambandi við okkur til að fylgjast með efna- hagsástandinu,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar- innar. Meira drukkið af sykurlausu gosi Sykur Sala á sykurlausum gosdrykkjum hefur aukist mikið undanfarin ár.  Algjör umskipti í drykkjarvenjum síðustu árin  Kolsýrt vatn orðið stærsti vöruflokkur Ölgerðarinnar Sykurlaust gos vinsælla » Ölgerðin selur nú meira magn af sykurlausum drykkjum en sykruðum. » Coca Cola á Íslandi stað- festir sambærilega þróun í sinni sölu. » Eftirspurn eftir minni um- búðum hefur einnig aukist. 22. júlí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 102.57 103.05 102.81 Sterlingspund 133.62 134.26 133.94 Kanadadalur 81.26 81.74 81.5 Dönsk króna 15.934 16.028 15.981 Norsk króna 12.669 12.743 12.706 Sænsk króna 12.382 12.454 12.418 Svissn. franki 107.45 108.05 107.75 Japanskt jen 0.9146 0.92 0.9173 SDR 143.34 144.2 143.77 Evra 118.52 119.18 118.85 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.5921 Hrávöruverð Gull 1247.25 ($/únsa) Ál 1897.5 ($/tonn) LME Hráolía 49.65 ($/fatið) Brent Evran hélt áfram að styrkjast gagn- vart bandaríkja- dal í gær og hefur gengi evru ekki verið sterkara í tvö ár. Fór gengið upp í 1,1659 dali á gjaldeyrismörk- uðum. Eftir fund pen- ingastefnunefndar Evrópska seðla- bankans á fimmtudaginn lýsti Mario Draghi seðlabankastjóri því yfir að bankinn myndi endurskoða peninga- stefnuna. Þykir það merki um að farið sé að síga á síðari hluta tímabil ódýrs fjármagns í álfunni. Lækkuðu helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu í kjölfar- ið. Þá er pólitískur órói í Bandaríkj- unum talinn ýta undir styrkingu evr- unnar gagnvart bandaríkjadal. Evran ekki hærri í 2 ár Mario Draghi  Gengi evrópskra hlutabréfa lækka ● Primera Air hyggst fljúga beint til Norður-Ameríku frá þremur nýjum stöðum innan Evrópu frá og með apríl 2018. Flogið verður frá Birmingham, Stanstead-flugvelli í London, og Charles de Gaulle-flugvelli í París til New York og Boston í Bandaríkjunum. Í tilkynn- ingu frá Primera Air segir að greint verði frá tveimur nýjum flugleiðum yfir Atlantshafið frá sömu brottfararstöðum í lok sumars. Primera Air er með áætlunarflug til yfir 70 flugvalla í Evrópu. Á næstu tveimur árum hyggst félagið stækka við sig á núverandi flugvöllum og hefja flug frá nýjum stöðum. Byggist það á núver- andi flugflota Primera Air og tuttugu nýjum Boeing MAX 9 ER sem eru í pöntunarferli. Fleiri nýjar flugleiðir yfir Atlantshafið eru á stefnuskránni, segir í tilkynningu flugfélagsins. Primera Air hefur beint flug yfir Atlantshaf Primera Hefur flug til Ameríku. STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.