Morgunblaðið - 22.07.2017, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.07.2017, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is gerðu tónlist á makkann þinn Duet 2 stúdíógæði í lófastærð One fyrir einfaldar upptökur MiC hágæða upptökur Jam alvöru gítarsánd Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í gær og fyrrinótt að lögfræðinga- teymi Trumps væri að skoða leiðir til þess að draga úr trúverðugleika rann- sóknar Roberts Muellers, sérstaks saksóknara, á meintum tengslum rússneskra yfirvalda við lykilmenn sem komu að forsetaframboði Trumps. Sagði í frétt Washington Post að m.a. væri verið að kanna mögulega hagsmunaárekstrar Muellers. Væru þeir til staðar væri dómsmálaráðu- neytinu heimilt að reka Mueller. Þá hefðu Trump og aðstoðarmenn hans einnig kannað það hvort forsetinn gæti beitt náðunarvaldi sínu á þá sem rannsóknin beindist að, og jafnvel hvort Trump gæti náðað sjálfan sig. Segir fjármálin vera rautt strik Þá mun lögfræðingateymið einnig hafa kannað hvort rannsókn Muellers gæti náð til ýmissa atriða sem ótengd eru Rússlandsmálinu en Trump lét sjálfur svo um mælt í viðtali við New York Times að hann liti á fjármál fjöl- skyldu sinnar sem eitthvað sem Mu- eller ætti ekki að koma nálægt. Sagði hann að þar væri um „rautt strik að ræða“. Demókratar hafa brugðist ókvæða við tíðindunum en Mark Warner, helsti fulltrúi demókrata í þeirri þing- nefnd öldungadeildarinnar sem rann- sakar Rússlandsmálið, sagði að það yrði í hæsta máta óeðlilegt ef forset- inn myndi náða einhvern á þessu stigi. Þá mætti ekki takmarka rann- sókn Muellers á nokkurn hátt með „rauðum strikum“. Sanders fyrir Spicer Í þessari hringiðu sagði Sean Spi- cer, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, óvænt upp störfum um hádegisbilið að bandarískum tíma í gær og nokkr- um stundum síðar var Sarah Hucka- bee Sanders ráðin í hans stað. Með uppsögninni vildi Spicer mótmæla ráðningu nýs almannatengslafulltrúa til Hvíta hússins. Býst til varna gegn Mueller  Trump sagður vera að kanna mögulegar náðanir vegna Rússamálsins AFP Uppsögn Sean Spicer, fjölmiðla- fulltrúi Trumps, hætti óvænt í gær. Jarðskjálfti af stærðinni 6,7 skók suðvesturhluta Tyrk- lands og grísku Dodecanese-eyjarnar í fyrrakvöld. Tveir ferðamenn létust á grísku eyjunni Kos eftir skjálftann. Að sögn yfirvalda var annar þeirra sænskur en hinn tyrkneskur. Hundruð særðust þá í skjálftanum og skemmdir eru töluverðar bæði á Kos og eins á ferða- mannastaðnum Bodrum í Tyrklandi. Upptök jarð- skjálftans voru á tíu kílómetra dýpi á Eyjahafi. AFP Tveir ferðamenn létust eftir jarðskjálfta O.J. Simpson, fyrrverandi ruðningsbolta- kappi og kvik- myndaleikari, verður látinn laus til reynslu, eftir að hafa set- ið níu ár í fang- elsi í Nevada-ríki fyrir að hafa rænt tveimur mönnum sem sér- hæfðu sig í sölu íþróttaminjagripa og haldið þeim á hótelherbergi í Las Vegas. „Takk kærlega!“ sagði hinn 70 ára Simpson við nefndar- menn eftir að þeir samþykktu beiðni hans um reynslulausn en hann mun losna úr fangelsi í októ- ber á þessu ári. Á tíunda áratug síðustu aldar var Simpson sakaður um að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína, Nicole Brown, og vin hennar, Ron Gold- man. Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að hann væri saklaus, eftir löng og umdeild réttarhöld. O.J. Simpson fær reynslulausn O.J. Simpson BANDARÍKIN Líkamsleifar list- málarans Salva- dors Dalís voru grafnar upp í fyrradag í þeim tilgangi að taka úr þeim DNA- sýni. Dalí lést ár- ið 1989 og var tal- inn vera barnlaus en kona á sjö- tugsaldri, Pilar Abel, segir móður sína hafa átt í sambandi við Dalí og hún gæti þar af leiðandi verið dóttir hans. Abel gæti átt rétt á fjórðungi af eignum Dalís, sem eru metnar á 400 milljónir evra, ef sýnt verður fram á að hann sé faðir hennar. Eitt af því sem Dalí var þekktur fyrir var yfirvaraskeggið. Það var greitt upp þannig að það væri í stell- ingu sem lýsa má með vísum klukk- unnar sem tíu mínútur yfir tíu. Að sögn fréttastofu AFP var skeggið víst nákvæmlega í stellingunni tíu mínútur yfir tíu og hárið óraskað er Dalí var grafinn upp. Skeggið óhaggað eftir 28 ár í gröfinni Salvador Dalí SPÁNN Tomas Ojea Quintana, fulltrúi Sam- einuðu þjóðanna gagnvart Norður- Kóreu í mannréttindamálum, hvatti í gær Kínverja til þess að hætta að senda norðurkóreska flóttamenn aft- ur til heimalands síns, þar sem þeir megi eiga von á þungri refsingu eða jafnvel dauðadómi. Quintana, sem var að ljúka heim- sókn til Suður-Kóreu, sagðist hafa nefnt þetta oft við kínversk stjórn- völd á síðustu misserum, en fjölgun hefði orðið í hópi þeirra flóttamanna sem skilað hefði verið til Norður- Kóreu þrátt fyrir þá áeggjan. „Ég hvet þá aftur til þess að leysa þetta vandamál með því að veita þeim ríkisborgurum Norður-Kóreu sem fara í gegnum landsvæði Kín- verja sérstaka vernd,“ sagði hann. Að minnsta kosti 51 Norður-Kór- eumaður hefur verið handtekinn í Kína frá því í júlí á síðasta ári sam- kvæmt áætlunum Human Rights Watch. Segja samtökin að þegar hafi um 13 þeirra verið sendir aftur til heimalands síns, þar sem þeirra bíði grimm örlög, pyntingar og jafnvel líflát. Banna allar ferðir til landsins Bandarísk yfirvöld tilkynntu í gær, að þau hygðust banna ríkis- borgurum sínum að ferðast til Norð- ur-Kóreu. Heather Neuert, talsmað- ur bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, sagði að þetta yrði gert opinbert í næstu viku, en ástæð- an fyrir banninu er andlát Ottos Warmbiers, bandarísks háskóla- nema, sem lést fyrr í sumar eftir að hafa verið handtekinn og sendur í þrælkunarbúðir í fyrra. Munu bandarísk vegabréf þá ekki vera gild til ferðalaga til Norður- Kóreu, en þeir sem þurfi að sækja landið heim, til dæmis í mannúðartil- gangi eða öðrum afmörkuðum erindagjörðum, muni geta sótt um sérstök vegabréf. sgs@mbl.is Flóttamenn verði ekki sendir til baka  Bandaríkin setja ferðabann til Norður-Kóreu AFP Norður-Kórea Mikil spenna hefur ríkt á Kóreuskaga að undanförnu. Að minnsta kosti þrír Palestínumenn létust í átökum við ísraelskar örygg- issveitir rétt hjá musterishæðinni í Jerúsalem í gær. Mótmælin kviknuðu þegar ríkisstjórn Ísraels neitaði að fjarlægja málmleitarhlið, sem sett voru upp við hæðina í síðustu viku, en þar er að finna suma af helgustu stöð- um bæði gyðingdóms og íslams. Jafn- framt ákvað lögreglan í Jerúsalem í ljósi ólgu síðustu daga að takmarka aðgang múslima að föstudagsbænum í al Aqsa-moskunni þannig að einung- is konur og karlmenn yfir fimmtugt fengu að fara til bæna. Leiðtogar Palestínumanna hafa krafist þess að málmleitarhliðin verði tekin niður, en þau voru sett upp í kjölfar þess að tveir ísraelskir lög- reglumenn voru myrtir í síðustu viku af byssumönnum, sem leituðu síðan skjóls á hinum helgu stöðum must- erishæðarinnar. sgs@mbl.is Óeirðir vegna ör- yggisleitar  Að minnsta kosti þrír látnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.