Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 27

Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 ✝ Björn StefánLíndal Sig- tryggsson fæddist 21. maí 1934 á Ak- ureyri. Hann lést föstudaginn 14. júlí 2017 á Heilbrigðis- stofnun Norður- lands á Húsavík. Foreldrar hans voru Sigtryggur Pétursson, f. 1912, d. 1966, bakari, og Helena María Líndal Björns- dóttir, f. 1912, d. 1995, kaup- maður og verslunareigandi á Húsavík. Björn var elstur fjög- urra systkina en þau eru Pétur Örn, f. 1937, Bertha Stefanía, f. 1941, og Helena Bjargey, f. 1946. Björn giftist Málmfríði Páls- börn þeirra eru Þóra Björk Lín- dal, f. 1974, og Sævar Sigurðs- son, f. 1976. Yngri dóttir Björns er Fríða Ágústa, f. 1953, gift Sigurjóni Haukssyni, f. 1952, börn þeirra eru Haukur Örn, f. 1973, Sigfús Þór, f. 1976, Birna Ósk, f. 1988, og Andri Már, f. 1990. Björn var menntaður og starf- aði sem bifvélavirki á Húsavík. Hann var um tíma starfsmaður Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og vann síðar sem blikksmiður til starfsloka. Björn spilaði á saxó- fón, píanó og harmoniku, hann spilaði í danshljómsveit og á skemmtunum og var einn af stofnendum Lúðrasveitar Húsa- víkur. Hann var listrænn, teikn- aði, málaði og bjó til skúlptúra. Hann hafði mikinn áhuga á hönnun og arkitektúr og vann við sviðsmyndagerð fyrir Leik- félag Húsavíkur í mörg ár. Björn Líndal verður jarðsunginn frá Húsavík- urkirkju í dag, 22. júlí 2017, klukkan 11. dóttur, f. 8. febrúar 1936, hinn 30. des- ember 1971. Eign- uðust þau fjóra drengi: Drengur, f. 1955, d. 1955, drengur, f. 1956, d. 1956, drengur, f. 1957, d. 1957, og Rafn Líndal Björns- son, f. 1966, giftur Sigurdísi Reynis- dóttur, f. 1968, börn þeirra eru Björn Líndal, f. 1995, Fannar Steinn Líndal, f. 2001, og Harpa Dögg Líndal, f. 2003. Frá fyrra sambandi átti Björn tvær dætur, Guðrúnu Líndal, f. 1952, d. 2010. Frá fyrra sambandi átti Guðrún Hrafnhildi Jónu Jón- asdóttur, f. 1969. Guðrún var gift Sigurði Jóhannssyni, f. 1950, Elsku pabbi minn. Nú hefur þú kvatt þennan heim í hinsta sinn. Ég vildi að ég hefði getað haft þig lengur í lífi mínu. Ég gerði mér vonir um að fá ykk- ur Möllu til mín í sumarfríinu en heilsa þín leyfði það því miður ekki. Ég bjóst þó ekki við því að ég fengi ekki að njóta fleiri stunda með þér. Á svona tímum rifjar maður upp gamlar minningar. Við Bidda vorum að rifja það upp þegar þú komst í rakarahúsið með jólagjaf- irnar til okkar systra, klæddur jólasveinabúningi. Auðvitað fékk Bidda frænka líka pakka. Svo settist þú við orgelið og amma Sig söng með. Við hittumst líka oft hjá ömmu og afa á Garðarsbrautinni. Þá settist þú oftar en ekki við pí- anóið og spilaðir eitthvað fallegt. Ég var svo stolt af því hvað þú varst flinkur að spila. Þér var þó ýmislegt fleira til lista lagt. Dúkkuhúsið sem þú bjóst til, og við lékum okkur svo mikið að, var alveg hreint ótrúleg smíði. Húsið var ekki það eina sem þú smíðaðir, heldur líka dúkkuvagn og margt, margt fleira. Eftir barnsárin fluttist ég suð- ur. Fyrstu árin var að mestu síma- samband en nú til seinni ára hefur sambandið aukist töluvert. Þið Malla hafið alltaf sýnt öllum við- burðum í okkar lífi mikinn áhuga og þykir mér mjög vænt um það. Það var svo æðislegt að fá ykkur í heimsókn þarna um sumarið og svo er ég svo þakklát fyrir að hafa fengið að hafa ykkur yfir jólin sem brúðkaupið var, það var dásam- legt. Ég vildi að ég gæti átt fleiri svona stundir með þér, pabbi minn. Elsku pabbi minn. Ég kveð þig með söknuði. Ég elska þig óendanlega mikið. Þín dóttir, Fríða Ágústa (Dysta). Pabbi, eða Böddi í bakaríinu, lést sl. föstudag. Pabbi átti langa ævi fyrir minn dag og mætti ýmsu mótlæti í lífinu sem hann hafði sjaldan orð á en hann hafði líka upplifað mikla gleði og afrekað ýmislegt. Hann var hæglátur, rólegur, skipti sjaldan skapi og aðeins einu sinni man ég eftir að hann hafi reynt að siða mig þegar ég gekk of langt, sem gerðist nú sennilega mun oftar en þetta eina skipti. Pabbi vann og lifði fyrir bíla og skúrinn sinn. Ég man eftir ferðum með pabba í Willys og Panhard og ferðum úr Mývatnssveit til Húsa- víkur með ógleði í aftursætinu á Citroën, hvort heldur sem var vegna þess að pabbi keðjureykti á þeim tíma eða að Citroëninn var mjúkur. Þegar ég var unglingur man ég eftir þegar ég bað pabba að lána mér fyrir notaðri skelli- nöðru, en nei engar notaðar – ég kaupi heldur nýja sem ekki þarf að gera við. Hann hefur kannski verið að hugsa um sjálfan sig, því þegar ég loksins fór á fætur um helgar þá var hann oft búinn að fara langan túr á skellinöðrunni. Hann átti nefnilega fleiri mótor- hjól sem ungur maður. Þegar mótorhjólin mín urðu fleiri og kraftmeiri þá héldu þessar ferðir áfram eftir að ég var fluttur til Reykjavíkur og síðar til útlanda, en hjólin urðu eftir í skúrnum hjá pabba. Pabbi smíðaði forláta mót- orhjólakerru handa mér svo ég gæti dregið eitt hjólið á eftir bíln- um. Eitt sinn bilaði bílinn við Brú- arskála á leiðinni suður, en nokkr- um tímum seinna var pabbi á staðnum, kominn frá Húsavík, reif hluta af vélinni og reddaði málinu. Það var aldri neitt sem hann ekki var tilbúinn að gera fyrir mig og flesta aðra til að hjálpa til. Fyrir mér var pabbi aldrei neinn íþróttamaður en alltaf komu þau mamma á völlinn að horfa á fót- bolta þegar ég spilaði. Hins vegar er mér minnisstætt að ég fór nokkur skipti með pabba á skauta, sex til sjö ára gamall og þá skyndi- lega renndi hann sér í hringi og aftur á bak, hlutir sem ég get ekki gert enn þann dag í dag þrátt fyrir að vera búinn að vera mikið á skautum með miklu betri græjur en hann átti. Hann var líka liðtæk- ur að renna sér á skíðum í fáein skipti sem ég man eftir honum með mér sem barn. Pabbi var mjög músíkalskur, spilaði á píanó flesta daga og ég kenni enn sjálfum mér um að hann hætti að spila á saxófón eftir að ég fæddist þar sem strákurinn byrjaði að orga þegar músíkin hófst og hann hætti í stað þess að loka orminn inni og halda áfram. Þegar aldurinn færist yfir og lífið sígur á seinnihlutann þá er gott að líta yfir farinn veg og eiga bara góðar minningar um pabba. Ég vil þakka honum og mömmu fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig, stutt mig og hvatt til að læra eins og þau höfðu ekki haft sama tækifæri til, eins óska ég þess að mín börn fái sama vega- nesti og ég fékk. Þá vil ég sér- staklega þakka fjölskyldu mömmu á Húsavík fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir pabba og mömmu og ekki minnst fyrir alla hjálp við þau í gegnum tíðina meðan ég hef verið búsettur í út- löndum. Hvíl í friði, pabbi. Rafn Líndal Björnsson. Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða. Þessi tilvitnun í fornar sögur kemur upp í hugann nú þeg- ar mágur okkar er sunginn til moldar frá Húsavíkurkirkju. Hann hefur nú í miðjum gróand- anum vikið sæti. Þegar klukkan glumdi honum hafði hann staðið ferðbúinn um hríð því erindinu var að ljúka, svo skammt var ófar- ið vegarins. Það var nærri miðjum sjötta áratug síðustu aldar sem Malla og Böddi tóku stefnu til framtíðar og innan skamms fluttu þau í íbúð sína við Ketilsbraut á Húsavík. Fyrstu árin færðu þeim sann- arlega bæði sætt og súrt því mannanna lán á misjöfnu gengi að fagna. Svo kom að því að barna- lánið drap á dyr. Snemma hneigð- ist hugur Bödda að bílum og við- gerðum og sá varð starfs- vettvangurinn ásamt blikksmíði. Ekki verður skilið við þann þátt án þess að nefna franska bíla, einkum Citroën sem hann hafði miklar mætur á og varð reyndar landskunnur fyrir þekkingu sína á þeirri bíltegund. Hann var hlé- drægur fagurkeri og hafði næmt auga fyrir hönnun og list. Málaðar myndir og skúlptúrar spilltu ekki híbýlaprýðinni hjá þeim hjónum og eru til marks um frjótt ímynd- unarafl og hugmyndaflug. Hann var dagfarsprúður, fremur dulur og orðvar, fjarri því skaplaus en sóaði ekki tilfinningum sínum. Böddi var vel músíkalskur og með þeim fyrstu á Húsavík sem fengu áhuga á djassi og deildi þeirri „sérvisku“ með Jóni Múla og setti sig ekki úr færi með að hlusta á djassþætti hans. Þá naut hann dægurlaga af betra tagi og margskonar sígildrar tónlistar. Plötusafn þeirra hjóna ber þessa merki og smitaði alvarlega okkur hin sem höfðum ekki annars stað- ar aðgang að plötuspilara. Hann kom að stofnun Lúðrasveitar Húsavíkur þar sem hann lék á saxófón og á sama hljóðfæri lék hann í danshljómsveit á staðnum Börn nutu heimsókna til þeirra hjóna og ekki skemmdi þegar hús- bóndi greip í píanóið. Sérstaklega eru minnisstæð jólaböll fjölskyld- unnar, þar spilaði Böddi á píanóið, amma Huld stjórnaði lagavali og hvernig fólkið raðaði sér í kring- um jólatréð, alltaf tvöfaldur hring- ur og allir sungu af hjartans lyst. Það eru ekki síst slíkar stundir sem koma upp í hugann þegar við minnumst mágs okkar fáeinum orðum. Einn var sá þáttur í fari Bödda sem við mágar hans skild- um ekki og stakk mjög í stúf við atferli hans annað og iðni. Það var hve hann var að okkar dómi ver- kasmár við matborðið sem við skildum aldrei nógu vel, en þar létum við verkin tala með tilheyr- andi ruðningsáhrifum. Alinn upp í andrúmslofti kaupmennsku og umsvifa fetaði hann ekki þá leið en var trúr uppruna sínum, hjálp- samur og greiðvikinn sem hér skal þakkað. Hans er gott að minnast og nú þegar þrotin er leið og sól gengin undir nestum við þig mág- ur fyrir síðasta spölinn með vísu- korni Árna Jónssonar frá Múla. Ég læt mig engin binda bönd. Því bregst mér ei mín styrka hönd. Ég sé í fjarska sól á strönd og sigli burt að nema lönd. (Árni Jónsson frá Múla.) Malla og aðstandendur allir eiga samúð okkar. Kristján, Ásmundur Sverrir og fjölskyldur. Björn Stefán Lín- dal Sigtryggsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALDÍS PETRA ALBERTSDÓTTIR, áður til heimilis í Krókatúni 8, Akranesi, andaðist á Dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 4. júlí. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 24. júlí klukkan 13. Hinrik Helgi Hallgrímsson Sigrún Sigurðardóttir Guðrún Hallgrímsdóttir Sigríður Hallgrímsdóttir Sigurður Már Jónsson Petrína Hallgrímsdóttir Ragnhildur Hallgrímsdóttir Guðjón Arnar Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA JENSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést mánudaginn 10. júlí á sjúkrahúsi Akraness. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Vilborg Ragnarsdóttir Sævar Ríkarðsson Ómar Örn Ragnarsson Guðrún R. Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, EINAR ÓLAFUR STEINSSON, Furuási 8, Hafnarfirði, lést af slysförum mánudaginn 17. júlí. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 26. júlí klukkan 13. Sigríður Dagbjört Jónsdóttir Hildur Einarsdóttir Jón Einarsson Haukur Einarsson Elísabet Einarsdóttir tengdabörn og barnabörn Steinn Erlingsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA SKARPHÉÐINSDÓTTIR, Skipasundi 84, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 18. júlí. Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. ágúst klukkan 13. Rannveig B. Ragnarsdóttir Jóhannes H. Steingrímsson Ragnar Ólafur Ragnarsson Anna Kristín Pétursdóttir Ingvar Orri, Eyrún Anna Berglind, Ingunn, Ragnar Ingi Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGJÓN BJARNASON, Brekkubæ, Hornafirði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þriðjudaginn 18. júlí. Kristín Einarsdóttir Einar Sigjónsson Bjarni Sigjónsson Ásthildur Gísladóttir Þórólfur Sigjónsson Guðný Vésteinsdóttir Ragnheiður L. Sigjónsdóttir Helga V. Sigjónsdóttir Þór Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR MAGNÚS ERLENDSSON húsgagnasmiður, Kleifahrauni 3 b, áður til heimilis Illugagötu 12, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum miðvikudaginn 19. júlí. Útförin auglýst síðar. Ása Ingibergsdóttir Ingibergur Einarsson Sigríður K. Finnbogadóttir Sigríður Einarsdóttir Baldvin Örn Arnarsson Ágúst Einarsson Iðunn D. Jóhannesdóttir Helgi Einarsson Agnes B. Benediktsdóttir Hrefna Einarsdóttir Pétur Jónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og tengdasonur, KRISTJÁN BJÖRN TRYGGVASON, Kiddi, lést á líknardeildinni í Kópavogi miðvikudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 27. júlí klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnunarreikning fyrir börnin hans, rn. 0140-15-380088, kt.060681-3849. # [1]lífið er núna Kristín Þórsdóttir Ísak Þór Kristjánsson Agla Björk Kristjánsdóttir Bóas Örn Kristjánsson Tryggvi Örn Björnsson Helga Kristjánsdóttir Anna Kristín Tryggvadóttir Lóa Birna Tryggvadóttir Bjarney Sigurðardóttir Þór Sverrisson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞRÁINN SIGURÐSSON, sjómaður og útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum, lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 20. júlí. Jarðað verður frá Landakirkju Vestmannaeyjum miðvikudaginn 26. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkað. Aðstandendur hafa stofnað reikning til kaupa á nýrnavél til Sjúkarhússins í Vestmannaeyjum. Reikningur 0370-22-002562, kt. 260269-4029. Sigurður Frans Þráinsson Hallgrímur Þráinsson Jóhann Helgi Þráinsson Jónína Unnur Gunnarsdóttir Jóhanna Svanborg Jónsdóttir Axel Franz, Elín Helena, Sigurþór, Ingunn Silja, Þráinn Jón, Þorsteinn og Elísabet Aría

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.