Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 28
✝ Kjartan GrétarMagnússon
fæddist í Hjalla-
nesi, Landsveit, 27.
nóvember 1953.
Hann lést á heimili
sínu 13. júlí 2017.
Foreldrar hans
voru Elsa Dóróthea
Pálsdóttir, f. 1924,
d. 2007, og Magnús
Kjartansson f.
1924, d. 2012,
bændur í Hjallanesi. Systur
Kjartans eru Pálína Halldóra
gift Hallgrími Óskarsyni og
Bryndís Hanna gift Rúnari
Haukssyni. Kjartan kvæntist El-
ínborgu Sváfnisdóttur, f. 1956,
hinn 10. júlí 1976. Foreldrar
hennar eru Sváfnir Sveinbjarn-
arson, f. 1928, og Anna Elín
Gísladóttir, f. 1930, d. 1974.
Börn Kjartans og Elínborgar
eru: 1) Anna Elín, f. 1975. Maki
Gísli Heiðar Bjarnason, f. 1975.
Þeirra börn eru Kjartan Gauti,
Eva Rakel og Gísli Marel. 2)
Elsa Dóróthea, f. 1979. Maki Jón
manna og Mjólkursamsölunnar
um árabil. Hann var markavörð-
ur í Rangárvallasýslu og einn af
stofnendum Sauðfjárræktarfé-
lags Landmanna.
Hans sælustaður voru Veiði-
vötn á Landmannaafrétti. Hann
var formaður Veiði- og fiski-
ræktarfélags Landmannaaf-
réttar í 35 ár og hafði brennandi
áhuga á uppbyggingu og
framþróun Veiðivatnasvæðisins.
Hann var virkur þátttakandi í
ungmennafélagshreyfingunni
alla tíð. Spilaði bæði körfubolta
og fótbolta og tók þátt í fjölda
frjálsíþróttamóta á sínum yngri
árum.
Kjartan var mjög söngelskur,
hafði fagra söngrödd og söng
með Kirkjukór Skarðskirkju í
tæp 50 ár. Einnig söng hann
með Karlakór Rangæinga, Öðl-
ingum, Samkór Rangæinga og
The Saga Singers ásamt mörg-
um öðrum sönghópum. Hann
var mjög tónelskur og gat spilað
á nánast hvaða hljóðfæri sem er.
Fyrir fjórum árum greindist
Kjartan med MDS-blóðsjúkdóm
og fór í framhaldi þess í stofn-
frumumeðferð til Svíþjóðar vor-
ið 2014 og náði góðri heilsu á ný.
Útför Kjartans fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 22. júlí 2017,
klukkan 13.
Vignir Guðnason, f.
1979. Þeirra börn
eru Sváfnir Ingi,
Birna Borg og El-
ísabet Ebba. 3)
Kristín Rós, f. 1980.
4) Sigurlinn, f.
1990. Sambýlis-
maður Örn Sigurð-
arson, f. 1990. 5)
Magnús Grétar, f.
1992.
Kjartan ólst upp
í Hjallanesi, gekk í Laugalands-
skóla, Skógaskóla og Bænda-
skólann á Hvanneyri. Árið 1976
stofnuðu Kjartan og Elínborg
félagsbú í Hjallanesi með for-
eldrum hans. Árið 1994 tóku
þau alfarið við búrekstri í
Hjallanesi og starfaði hann sem
bóndi til dánardags.
Hann sinnti mörgum trúnað-
arstörfum um ævina og átti
meðal annars sæti í hreppsnefnd
Landmannahrepps, Holta- og
Landsveitar og sveitarstjórn
Rangárþings ytra. Einnig sat
hann í stjórn Mjólkurbús Flóa-
Elsku pabbi, þú ert farinn allt
of fljótt frá okkur.
Deginum varðir þú á þínum
sælustað, inni í Veiðivötnum með
kærum vinum við seiðasleppingar.
Þú lékst á als oddi, grínaðir og
gantaðist eins og venjulega. Svo
þurftir þú að drífa þig heim í fjós.
Kýrnar voru mjólkaðar og fáum
stundum síðar lagðir þú upp í þína
hinstu för, ferðina löngu. Dagana
áður hafðir þú náð að ljúka fyrri
slætti, sinna búskapnum af kappi
eins og þér var einum lagið og
fangna 41 árs brúðkaupsafmæli
ykkar mömmu. Þér féll aldrei
verk úr hendi og þú gast allt, hvort
sem það var að gera við búvélarn-
ar, steypa fjósgólf, spila körfu-
bolta, fótbolta eða golf. Allt lék í
höndunum þínum. Þú varst okkur
hin allra besta fyrirmynd á allan
máta og hvattir okkur áfram við
íþróttaiðkun og nám. Þú kenndir
okkur að vinna og standa okkar
plikt og studdir okkur í öllu sem
við tókum okkur fyrir hendur,
keyrðir okkur á óteljandi íþrótta-
mót og leiki. Afagrautarins verður
sárt saknað af barnabörnunum og
því miður náðu mömmurnar ekki
að komast upp á lagið með að búa
hann til. Sérrétturinn þinn var
„pabbahakk“ eða hakk í brúnni
sósu með kartöflum, var alltaf eld-
aður þegar mamma brá sér af bæ.
Óteljandi góðar minningar fylla
huga okkar, þar á meðal ógleym-
anlegar Veiðivatnaferðir þar sem
þú kenndir okkur að veiða, varst
hrókur alls fagnaðar og söngst
með okkur manna hæst fram eftir
nóttu. Þú kenndir okkur að keyra
traktor og eyddum við ófáum tím-
unum úti á túni þér við hlið í trak-
tornum. Þó þú værir ekki hár í
loftinu hafðir þú stóran persónu-
leika sem fyllti hvert herbergi
með gleði og glens. Þú varst mjög
virkur í öllu félagsstarfi og afskap-
lega bóngóður og áttir mjög erfitt
með að segja nei ef þú varst beð-
inn um greiða. Okkur eru ómet-
anleg þau þrjú góðu ár sem þú
fékkst eftir að þú náðir heilsu eftir
alvarleg veikindi. Fráfallið var
skyndilegt og við óundirbúin, en
við erum þakklát fyrir að þú upp-
lifðir ekki langa sjúkralegu.
Þín er sárt saknað.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Góða nótt.
Anna Elín, Elsa Dóróthea,
Kristín Rós, Sigurlinn og
Magnús Grétar.
Elsku besti bróðir minn hefur
nú sungið sitt síðasta hér á jörð.
Hvað ég var heppin að eiga hann
fyrir bróður, svo hæfileikaríkan
og skynsaman.
Við höfum alla ævi starfað sam-
an í ást og virðingu hvort fyrir
öðru. Sem börn í búinu okkar í
Bjallanum heima, svo nær 33 ár
saman við rekstur Veiðifélagsins,
þar sem við Rúnar nutum hand-
leiðslu Kjartans.
Alltaf hefur blundað í mér svo-
lítill bóndi og fékk ég að hafa
nokkrar kindur á fóðrum hjá
Kjartani og Ebbu, mér til mikillar
ánægju.
Nú er dáinn partur af mér með
bróður mínum, en lífið heldur
áfram.
Elsku Ebba mín, börnin ykkar
og barnabörn, þið eigið alla mína
ást og virðingu. Með ykkur finn ég
að fjölskyldan er alltaf í fyrsta
sæti.
Bryndís Hanna Magnúsdóttir.
Ég hef átt heimsins besta bróð-
ur – nú eigum við aðeins bjartar
minningar. Hláturinn er þagnaður
og söngurinn heyrist ekki framar,
en afkomendur hans munu halda
minningunni vakandi um ókomin
ár.
Hann bróðir minn var nettur að
vexti og ekki fyrirferðarmikill en
hann hafði stóra nærveru sem
lýsti upp umhverfið og kallaði
fram glaðværð og bjartsýni. Hann
var góður sonur, einstakur fjöl-
skyldufaðir og eiginmaður, traust-
ur vinur, orðheldinn, greiðvikinn
og fyrirmyndarbóndi.
Ég lít á það sem sérstakt lán í
lífinu að hafa átt Kjartan að bróð-
ur. Við vorum svo heppin að alast
upp í stórfjölskyldu, þar sem
amma var til staðar á heimilinu og
frændfólk var tíðir gestir. Þó við
systkinin værum bara þrjú þá átt-
um við líka nokkra „sama sem
bræður“ sem ólust upp meira og
minna með okkur, synir Fjólu
móðursystur okkar. Samband
okkar allra hefur alltaf verið gott,
og þegar ég hugsa til baka, þá
minnist ég þess ekki að okkur hafi
orðið alvarlega sundurorða. Her-
mann frændi var nánast heimilis-
maður í Hjallanesi og var vinátta
og samvinna þeirra frænda traust
og góð.
Í einkalífinu var Kjartan láns-
maður. Þau Elínborg kynntust
ung að árum og hafa lifað í fyr-
irmyndarhjónabandi alla tíð og
hefur hún staðið sem klettur við
hlið hans í blíðu og stríðu. Barna-
lán þeirra er mikið og bera þau
foreldrum sínum fagurt vitni og
barnabörnin sex veita ómælda
gleði. Ég er ekki í vafa um hvað
orðið ríkidæmi felur í sér.
Kjartan tók alla tíð virkan þátt í
Kjartan Grétar
Magnússon
félagslífi og starfi nærsamfélags-
ins og voru honum falin mörg
trúnaðarstörf á þeim vettvangi.
Þrátt fyrir margskonar annir
tókst honum að rækta sitt stærsta
áhugamál, sem var söngurinn.
Hann hafði fallega söngrödd og
hefur notið þess að syngja með
mörgum sönghópum. Söngur
hans með Öðlingunum hefur
hljómað í mörgum útförum og við
önnur tækifæri.
Fyrir fjórum árum bankaði al-
varlegur sjúkdómur upp á og
breytti lífinu. Í þessu stríði hafa
margar orrustur unnist og bjart-
sýni og jákvæðni ráðið för. Elín-
borg stóð eins og klettur við hlið
hans og fjölskyldan öll tók hönd-
um saman um að viðhalda hans
góða starfi og aðstoða við áfram-
haldandi uppbyggingu undir
handleiðslu bóndans. Bjarki Eiðs-
son kom til starfa í Hjallanesi
haustið 2013 og hefur hann verið
ómetanleg stoð, ekki er nógsam-
lega hægt að þakka þessum góða
dreng störfin hans.
Undanfarnir mánuðir hafa vak-
ið vonir um að sigur væri í nánd en
þær voru óvænt slökktar. Síðasta
daginn var hann við seiðaslepp-
ingar í Veiðivötnum, sem voru
hans uppáhaldsstaður og upp-
bygging fiskiræktar þar var hon-
um mjög hugleikin. Hann gegndi
starfi formanns veiðifélagsins um
áratugaskeið, fram á síðasta dag.
Fyrir okkur Halla er það
ómetanlegt að eiga athvarf í tún-
jaðrinum heima. Á þessum sorg-
artímum er okkur efst í huga
þakklæti fyrir að hafa fengið að
vera samferða þessum góða
dreng, hans skarð verður aldrei
fyllt og minningin býr í hjörtunum
að eilífu.
Megi minningin um elskaðan
eiginmann, föður og afa veita fjöl-
skyldunni styrk á þessum erfiðu
tímum og um alla framtíð.
Pálína Magnúsdóttir.
Það slær fölva á Landsveitina,
háin beygir blaðtopp stundarkorn.
Dauft ómar gáskinn og hláturinn
hljóðnar, en söngurinn hljómar þó
enn í minningunni. Vinur okkar,
mágur og svili, Kjartan í Hjalla-
nesi, er fallinn frá. Það eru mörg
orð sem koma upp í hugann þegar
við hugsum til baka og lítum yfir
þann tíma sem við þekktum þenn-
an öðling. Öðlingur er líka fyrsta
orðið sem kom upp, svo koma þau
á færibandi; söngfugl, þægilegur,
hjartahlýr, fyndinn, skemmtileg-
ur, gáskafullur, gestrisinn, örlát-
ur, Veiðivötn, mannblendinn,
félagslyndur, fjölskyldumaður,
sveitaprýði, barnalán og fleira
ósagt, sem prýða má einstakan
mann. Kjartan Grétar Magnússon
í Hjallanesi var sveitarhöfðingi af
þeirri gerð, sem gerir orðið sveit-
arhöfðingi tignarlegt. Allar minn-
ingarnar og öll okkar kynni af
honum einkennast af djúpstæðri
hlýju og gáskafullri gleði, sem
gerðu samverustundir okkar að
mannfögnuði. Það er með miklum
söknuði og trega að við kveðjum
þennan öðling og mannvin.
Elsku yndislega Ebba okkar,
Anna, Elsa, Rós, Silla, Magnús og
fjölskyldur ykkar, megi góður
Guð leiða ykkur í sorginni og
styrkja áfram í lífinu.
Söngfuglinn hefur sungið
sitt síðasta ljóð
sjálf sitjum við eftir
sorgmædd og hljóð
minningin mun lifa
máttug og góð
Sigurlinn og Gústav.
Ekki fer að ævilengd hverju
áorkað verður öðrum til gagns og
góðs.
Og sumum auðnast að gefa og
gleðja öðrum fremur.
Þessi hugsun vaknar við fráfall
Kjartans í Hjallanesi, sem svo
óvænt var burtu kallaður og um
aldur fram – eftir fjölþætt lífs-
starf, farsælan búskap og mikil-
vægt framlag í félags- og menn-
ingarmálum í sveit og samfélagi.
Hann kom víða við vegna al-
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRA GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
Dalbraut 20,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Vífilsstöðum
14. júlí. Útför hennar fer fram frá
Laugarneskirkju mánudaginn
24. júlí klukkan 13.
Þóra Ólafsdóttir
Stefán Ólafsson Ingunn Magnúsdóttir
Kolbrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson
Sigrún Ólafsdóttir Fjalar Kristjánsson
Sólrún Ólafsdóttir Gunnar Sigmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR J. JÚLÍUSSON,
fyrrverandi veitingamaður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 24. júlí klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög.
Hanna Guðmundsdóttir
Gunnhildur J. Halldórsdóttir Sigurður Ö. Jónsson
Þ. Birna Halldórsdóttir G. Oddgeir Indriðason
Magnús P. Halldórsson Sigurlín S. Sæmundsdóttir
Halldór S. Halldórsson Þórunn G. Guðmundsdóttir
Eiginkona mín,
VIGDÍS SIGURÐARDÓTTIR,
fyrrverandi húsfreyja á Svalbarði,
Þistilfirði,
verður jarðsungin frá Þórshafnarkirkju
þriðjudaginn 25. júlí klukkan 14.
Jarðsett verður í Svalbarðskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigtryggur Þorláksson
Okkar ástkæra
SIGRÍÐUR JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR,
Skálahlíð 13,
Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju þriðjudaginn 25. júlí
klukkan 13.
Ásthildur Sigurðardóttir
Snorri Sigurðsson Sjöfn Friðriksdóttir
Jón Sigurðsson
Arndís Sigurðardóttir Benóný Benónýsson
og frændsystkini
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
INGÞÓR KJARTANSSON,
bókbindari og prentsmiður,
Hvassaleiti 56,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
fimmtudaginn 6. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Elísabet Árnadóttir
Kjartan Ingþórsson
Árni Gunnar Ingþórsson Erna Karen Þórarinsdóttir
og barnabörn
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARÍU EINARSDÓTTUR,
frá Lambhóli,
Reynihvammi 1, Kópavogi.
Einar Ólafsson Anna Sigmundsdóttir
Viðar Ólafsson Rannveig Tómasdóttir
Ólafía Jóna Ólafsdóttir Þór Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EMIL KRISTJÁNSSON,
fyrrverandi slökkviliðsmaður,
Kirkjuvegi 1,
Reykjanesbæ,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
föstudaginn 14. júlí.
Útför hans fer fram frá Kálfatjarnarkirkju
miðvikudaginn 26. júlí klukkan 13.
Margrét H. Emilsdóttir Elías Á. Jóhannsson
Hafsteinn Emilsson Helena Hjálmtýsdóttir
Guðríður Nyquist Per-Olov Nyquist
afa- og langafabörn
Elskulegur sonur okkar,
GUÐMUNDUR HELGI HELGASON,
lést mánudaginn 10. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. júlí klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krýsuvíkursamtökin.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingveldur Jónsdóttir
Helgi Guðmundsson