Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 29

Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 29
menns trausts og vinsælda sem hann naut í hverju því sem honum var til trúað. Hann gaf óspart af sjálfum sér með glaðværu viðmóti og áhuga og skilningi á annarra kjörum og þörfum, jafnframt því sem hann helgaði sig fjölskyldu sinni og myndarlegum búrekstri í Hjallanesi. Hann hafði næmt auga fyrir náttúrunni og kunni tök á ræktun gróðurs og bústofns svo sem best mátti verða. Kynni mín af Kjartani hófust þegar hann og Elínborg dóttir mín felldu hugi saman fyrir tvítugsald- ur og úr varð farsælt hjónaband og stofnun heimilis í Hjallanesi. Þar byggðu þau sér eigið íbúðar- hús og bjuggu félags- búi með foreldrum Kjartans meðan þeirra naut við. Alls höfðu þau búið þar í rúm 40 ár – fram til þeirra umskipta sem nú eru orðin. Búsæld og barnalán hefur þeim gefist ríkulega þessi ár – og efni- legir afkomendur, börn og barna- börn, bera uppruna sínum fagurt vitni. Auk fjölþættra starfa og áhuga- mála sem áður var getið var Kjartan mjög virkur í söngmálum í héraðinu. Hann hafði bjarta rödd sem hann kunni vel að beita – og söng í kirkjukór Skarðssóknar, Karlakór Rangæinga og söng- sveitinni Öðlingum. Oft var hann valinn til einsöngs eða tvísöngs eftir því sem tilefni gafst – og þá einnig í söngferðum til annarra landa. Eftir að Kjartan veiktist alvar- lega fyrir um fjórum árum fór hann í læknisaðgerð til Svíþjóðar. Virtist hann síðan á batavegi og sinnti að mestu sem áður búskap og félagsmálum, þrátt fyrir skerta heilsu. Ljúft er að minnast ferða með Kjartani og fjölskyldu hans inn um Landmannaafrétt og í Veiði- vötn þar sem hann þekkti hvern blett til fjalla og jafnvel á botni vatna. Og hafði frá svo mörgu að segja úr þessu umhverfi sem lá honum svo hjarta nærri. Síðustu ævidaga hans var bjart og fagurt í Landsveitinni og anna- samt við öflun grænna og ilmandi heyjanna, óskastundir bóndans – og viðbúnaður til velferðar fólks og fénaðar. Og daginn áður en hinsta kallið kom var hann með nágrönnum og vinum inni í Veiði- vötnum við störf að fiskirækt, til að efla vatnabúskapinn þar. Allt virtist falla að óskum bóndans og ræktunarmannsins sem var önn- um kafinn við sín áhugamál – allt til hinstu stundar. Áfallið er þungt, ástvinum, ætt- ingjum og samferðafólki hans inn- an sveitar og utan. Söknuður býr í huga, en líka þakklæti fyrir það sem gafst í samfylgdinni með hon- um. Það er hásumar þegar Kjartan í Hjallanesi er kallaður til nýrrar ferðar. Innra í huga finnst mér bera fyrir óm af rödd hans: „Undir blá- himni blíðsumarsnætur …“. Ástvinum hans votta ég ein- læga samúð. Hann sé Guði falinn og gæsku hans. Sváfnir Sveinbjarnarson. „Söngurinn göfgar og glæðir, guðlegan neista í sál“ – er sá söng- texti sem mér kom fyrst í hug þeg- ar ég settist niður til að minnast míns kæra frænda, Kjartans Grétars Magnússonar, sem lést langt fyrir aldur fram. Þessar lín- ur eru úr ljóðinu Máttur söngsins eftir Þuríði Kristjánsdóttur, en það ljóð sungum við frændurnir gjarnan á ættarmótum og við margvísleg tækifæri. Það er margs að minnast þegar Kjartan er annars vegar. Ég var einungis 5 ára þegar ég fór að dvelja sumarlangt hjá foreldrum hans í Hjallanesi í Landsveit og alls var ég í 11 sumur þar í sveit. Stærstan hluta þess tíma deildum við frændurnir saman herbergi og þrátt fyrir að hann væri nokkrum árum eldri en ég þá var ég alltaf tekinn með á viðburði í sveitinni. Það er því ekki að undra að í huga mínum og bræðra minna eru Kjartan og systur hans uppeldis- systkini okkar, enda hefur alltaf verið einkar kært okkar á milli. Kjartan var með eindæmum glaðlyndur og ávallt hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Það sýndi sig ekki hvað síst í veikind- um hans hvað stutt var í hláturinn þótt dauðans alvara væri skammt undan. Hann hafði fallega og bjarta söngrödd og var alltaf syngjandi. Á okkar yngri árum sungum við gjarnan saman fyrir kýrnar þegar flórinn var mokaður – og lög eins og t.d. „I can‘t live without you“ og „Hamraborgina“ kunnu kýrnar örugglega utanbók- ar eftir alla tónleikana sem þær fengu. Kjartan byrjaði ungur að syngja í ýmsum kórum og söng- hópum, þar á meðal í Karlakór Rangæinga og Öðlingunum. Þar eru góðir söngmenn sem syngja með hjartanu, sem skilar sér beint til áheyrenda. Var Kjartan þar ætíð í fremstu röð meðal jafningja. Kjartan var virkur í félagsmál- um og ekki hvað síst áttu málefni og uppbygging Veiðivatna hug hans allan. Hann var alla tíð fylginn sér og vinnusamur hvort sem það sneri að búskapnum eða félagsstarfi, söng og íþróttum. Þá má ekki gleyma hans styrku stoð og lífsförunaut, henni Ebbu, sem hefur verið ótrúlegur klettur í veikindum Kjartans og ætíð staðið við hlið hans í blíðu og stríðu. Á undanförnum árum hef ég notið þess að umgangast frænda oftar eftir að við fjölskyldan byggðum okkur sumarhús í Lún- ansholti, næstu jörð við Hjallanes. Var það ætíð tilhlökkunarefni allra í fjölskyldunni að hitta þau hjónin, hvort sem var til að spjalla um lífið og tilveruna, ýmsar fram- tíðarhugmyndir eða fyrir dreng- ina mína til að ræða um Arsenal og fótbolta við Kjartan eða keppa við hann í körfubolta eins og þeir gerðu um daginn. Það er ótrúlega skrítin tilfinn- ing að þú, kæri frændi, sért fallinn frá. Við sem þekktum þig getum þó ætíð glatt okkur við tilhugs- unina um einstaklega góðan dreng sem skilur eftir sig ljúfar og skemmtilegar minningar. Elsku Kjartan, takk fyrir allt. Ebbu, börnum og barnabörnum vottum við fjölskyldan okkar innilegustu samúð. Sævar Kristinsson og fjölskylda. Kjartan dáinn! Við símtal frá Halla mági Kjartans setti að mér skrítinn ugg en ég átti samt ekki von á jafn ömurlegum fréttum og raunin var. Kjartan í Hjallanesi, vinur minn og höfðingi, lést í morgun. Ég varð orðlaus þótt ég viti að lífið er ekki sjálfgefið. Ég man fyrst eftir Kjartani fyrir rúm- um fjörutíu árum, laglegur dreng- ur og léttur á fæti. Síðan fer ég að kynnast Kjartani betur þegar æskuvinur minn Halli giftist syst- ur hans, henni Pálínu. Í Hjallanesi eignaðist ég frá- bæra vini, Ebbu, foreldra Kjart- ans og marga ættingja hans og vini. Ebba kona Kjartans er ein- stök kona, hún stóð með Kjartani sem klettur í blíðu og stríðu alla tíð. Kjartan og Ebba eignuðust fjórar yndislegar stúlkur og einn strák. Fjölskyldan stækkar svo arfleifð Kjartans á eftir að lifa um ókomin ár. Á árum áður var ég að smíða smávegis í Hjallanesi, þá kynntist ég því vel hverslags öð- lingur Kjartan var með góða skap- ið og húmorinn að vopni. Í eitt sinn gekk gleðin úr hófi fram (eða ekki). Þá hafði Kjartan fengið vin sinn Braga á Vindási til að hjálpa okkur. Ég sagði frá því í afmæli Ebbu stuttu seinna að það hefði verið gott að geta farið í eldhúsið hjá Ebbu, fengið kaffi og átt við hana „vitrænar“ samræður eftir að hafa unnið daginn með grínist- unum Kjartani og Braga. Ekki svo að skilja að Kjartan hafi ekki get- að verið alvarlegur. Í vetur gisti ég hjá þeim heið- urshjónum, Ebba fékk í heimsókn heilan kvennabókaklúbb, við Kjartan settumst að inni í eldhúsi með bjórdósir í hendi og áttum langar og góðar „vitrænar“ sam- ræður, að ég held. Kjartan var góður söngmaður og m.a. söng hann með Karlakór Rangæinga, einn af máttarstólpunum, þar söng Kjartan af einstakri innlifun. Nú sit ég og hlusta á hann syngja tvísöng og með karlakórnum lagið Þórsmerkurþrá af diskinum Bræðralag. Ég tárast að hugsa til þess að fá ekki að heyra rödd þessa yndislega gleðigjafa í lifandi lífi. Kjartan gat búið til vísur án fyrirhafnar, einni skellti hann á mig daginn eftir fimmtugsafmælið mitt. Ég læt seinni hlutann flakka: Hann er vaskur og vænn, og víst er hann „grænn“, því vald’ hann að ganga í Breiðablik. (Framsóknarflokkinn). Þarna kom grínistinn Kjartan sterkur inn í restina. Við Inga átt- um með þeim hjónum margar gleðilegar stundir, t.d. þorrablótin ca 20 í Brúarlundi, afmæli og margar góðar stundir við eldhús- borðið í Hjallanesi. Kjartan skilur bara eftir sig góðar minningar sem við þökkum fyrir. Maður getur bara verið rík- ari eftir að hafa kynnst manni eins og Kjartani í Hjallanesi. Blessuð sé minning hans! Elsku Ebba og fjölskylda öll, við Inga vottum ykkur okkar inni- legustu samúð. Einar Pétursson. Mikið var mér brugðið fimmtu- daginn 13. júlí sl. við aðgerðar- borðið í Veiðivötnum, þegar Bryn- dís flutti okkur Sigrúnu fregnir af andláti okkar góða vinar Kjartans í Hjallanesi. Fregnin fannst mér svo óskiljanleg og óraunveruleg. Við vorum jú búnir að vera saman að sleppa seiðum í Veiðivötnum daginn áður. Þar höfðum við átt góða stund á þeim stað á jarðríki sem er okkur hvað kærastur. Kjartan hafði leikið við hvern sinn fingur og dagstundin skemmtileg. Þrátt fyrir að Kjartan hafi átt í baráttu við veikindi á undanförn- um misserum þá var hann alltaf jafn kátur og hress og ekkert gaf tilefni til að kveðjustund væri í nánd. Maður var því einfaldlega ekki tilbúinn að taka við slíkum fregnum. Vinskapur okkar Kjartans hef- ur verið einlægur og traustur til margra ára, enda betri félaga og vin erfitt að hugsa sér. Ávallt létt- ur í lund, réttsýnn og sanngjarn, stutt í glettni og gamanmál og að ógleymdum söngnum. Tónlistin og söngurinn var honum í blóð borinn og betri félaga var ekki hægt að hugsa sér hvort sem var í söng eða gítarspili. Kjartan kom víða við í fé- lagsstörfum og fékk ég að njóta þess að starfa með honum í sveit- arstjórn Holta- og Landsveitar. Var það samstarf afar farsælt og gott. Það var lærdómsríkt að fá að vinna með honum á vettvangi sveitarstjórnarmála þar sem hann hafði áralanga reynslu. Veiðivötn voru Kjartani afar hugleikin og hagsmunir Veiði- og fiskiræktarfélags Landmannaaf- réttar hans hjartans mál. Hann var kosinn í stjórn veiðifélagsins árið 1982 og kjörinn formaður stjórnar á fyrsta fundi nýrrar stjórnar í maí sama ár. Hann var því búinn að vera formaður stjórn- ar veiðfélagsins í 35 ár og fyrir það ber að þakka. Störf hans á þessum vettvangi voru afar farsæl og hef- ur samstarf okkar á þessum vett- vangi verið ánægjulegt og gef- andi, sem ég þakka af heilum hug. Elsku Elínborg og fjölskylda, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð og megi góður guð styrkja ykkur og hugga. Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel. Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk - en blettinn sinn prýddi hún vel. Ég veit það er úti um engin mörg önnur sem glitrar og skín. Ég þræti ekki um litinn né ljómann en liljan í holtinu er mín! Þessi lilja er mín lifandi trú, þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og von mín og yndi. Þessi lilja er mín lifandi trú! Og þó að í vindinum visni, á völlum og engjum hvert blóm. Og haustvindar blási um heiðar, með hörðum og deyðandi róm. Og veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó. Hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. (Þorsteinn Gíslason.) Ég kveð Kjartan Grétar Magn- ússon frá Hjallanesi með þakklæti fyrir góð og kær kynni. Genginn er drengur góður og hans verður sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Valtýr Valtýsson. Það kom verulega á mig þegar ég frétti lát Kjartans í Hjallanesi. Hann hafði staðið af sér erfið veik- indi, var hressilegur og virtist vera að ná orku á ný, þótt greini- legt væri að dugnaður og áhugi bar hann oft lengra en heilsufarið leyfði. Hann var mættur til æfinga í Karlakór Rangæinga furðu fljótt eftir að hann kom úr erfiðri að- gerð í Svíþjóð og var að venju kát- ur í Rússlandsför kórsins nú í vor. Hann lét sig heldur ekki muna um að halda áfram söng með Öðling- um sem starfa árið um kring og syngja við ýmsar athafnir. Kjart- an hafði úrvals rödd og lengi verð- ur minnisstæður einsöngur hans í lögum eins og „Ég fann þig“ þar sem rödd hans naut sín einkar vel. Hann var raddviss og fljótur að læra sína rödd og það var ákaflega gott að ná að heyra til hans þegar finna þurfti tóninn. Oft sátum við saman á æfingum í 2. tenór og iðu- lega var aðeins spjallað meðan hinar raddirnar æfðu, við tak- markaðan áhuga stjórnanda sem sussaði nokkuð reglulega á hinn símasandi 2. tenór. Kaffihléið svo nýtt til frekara spjalls, alltaf var hægt að taka umræðu um enska boltann við Kjartan, sem var dyggur stuðningsmaður Arsenal. En hvort sem umræðan var um boltann eða pólitík og landsmálin var hún á léttum nótum eins og vænta mátti. Upp komu ýmis álitamál, Kjartan varpaði fram fullyrðingu um gæði Arsenal- liðsins eða forystu Framsóknar- flokksins til að skerpa aðeins um- ræðuna en alltaf stutt í brosið og gamanið. Þar naut sín léttleiki og víðsýni Kjartans sem átti auðvelt með að setja sig inn í ólík viðhorf annarra, eiginleiki sem ekki er öll- um gefinn. Kjartan tók virkan þátt í félags- störfum og sveitarstjórnarmálum. Hann var eftirsóttur til foryst- ustarfa og víst er að hann annaði ekki eftirspurn á þeim vettvangi. Víðsýni hans og umburðarlyndi gagnvart skoðunum annarra nýtt- ist honum vel í þeim störfum. Kjartans verður sárt saknað í kórastarfi Rangæinga og úr öllu því fjölbreytta félagsstarfi sem hann kom að. Innilegar samúðar- kveðjur sendi ég til Ebbu og fjöl- skyldu. Ásgeir Jónsson. Í dag grætur sönggyðjan því hún hefur misst einn sinn fegursta þjón. Í dag gráta fjölskylda og vinir sinn elskaða eiginmann, föður, tengdaföður, afa, bróður, frænda og vin. Í dag grátum við í söng- hópnum Öðlingum því við höfum misst Kjartan úr okkar hópi en hann hefur sungið með hópnum frá upphafi eða í 20 ár. Öruggari söngmenn eru vand- fundnir og hljómfögur röddin gerði Öðlingana alltaf mun betri þegar Kjartan var með. Að ekki sé nú minnst á hans léttu lund og skemmtilegu hláturrokurnar sem einkenndu hann. Unun var að fylgjast með honum syngja og þá sérstaklega fjörugri lögin en þá dillaði hann sér í takt, fyrst með höndunum og svo öllum líkaman- um. Mikil forréttindi eru að hafa notið krafta hans í starfi okkar og alltaf mætti hann til að syngja við athafnir ef hann mögulega gat komist. Betri ferðafélaga en þau hjón í Hjallanesi er vart hægt að hugsa sér en við ferðuðumst víða saman bæði innanlands og utan. Kjartan var ásamt nokkrum í Öð- lingunum að undirbúa 20 ára af- mæli sönghópsins og hlakkaði hann óskaplega til þess að fara með söngmenn og maka þeirra í ferð á sinn uppáhaldsstað, Veiði- vötn. Við þökkum Kjartani fyrir hans óeigingjarna starf í þágu hópsins og samfélagsins alls. Vottum Ebbu og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Öðlinganna og maka, Hlynur Snær Theodórsson. Haustið 1974 mætti flokkur ný- nema í Bændadeildina á Hvann- eyri. Þeirra á meðal var glóhærð- ur, brosmildur náungi sem þá þegar var ákveðinn í að verða bóndi; Kjartan Magnússon. Hann var í eldri kanti í hópnum sem skipað var í tvær bekkjadeild- ir eftir stafrófsröð og því var hann í B-bekknum, sat í fremstu röð við gluggann, fylgdist grannt með, hafði skoðanir og spurði spurn- inga. Kjartan var skarpgreindur með brennandi áhuga fyrir náminu, enda á leið í búskap með kærust- unni að loknu búfræðiprófi. Hæfileikar Kjartans voru margvíslegir, hann var söngelsk- ur, spilaði dável á gítar sem var ekki bara gripinn á heimavistinni, heldur fylgdi með ef nemendur brugðu sér af bæ. Gítarinn og söngurinn komu einnig að góðum notum þegar dagamunur var, svo sem 1. desember og á árshátíð skólans. Kjartan hafði skemmtilegan talanda sem nýttist vel í ræðu- mennsku og þegar tala þurfti máli nemenda við skólayfirvöld, enda valdist hann til trúnaðarstarfa á þeim vettvangi. Eftir því sem við eldumst er lík- legra að skörð fari að koma í hóp- inn. Skarð Kjartans myndast því miður allt of snemma. Við minn- umst hans við söng og gleði, haf- andi fjölda texta og laga á tæru. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans sem nú sér á bak góðum dreng og lífsförunaut. Blessuð veri minning Kjartans. Fyrir hönd búfræðinga frá Hvanneyri vorið 1975; Edda, Friðjón, Kristín, Ágústína, Halldór, Jónas, Ásta, Guðjón, Haukur, Inga, Gunnar, Jón, Þórhildur, Jens. Það dofnaði yfir deginum en birti á himninum 13. júlí síðastlið- inn þegar einn af öðlingum sveit- arinnar kvaddi. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells.) Mér er efst í huga þakklæti. Takk Kjartan fyrir hjálpina. Takk fyrir að vera fyrirmynd á svo ótal mörgum sviðum, og síðast en ekki síst takk fyrir mig. Elsku hjartans Ebba, Anna, Elsa, Rós, Silla og Magnús, hugur okkar er hjá ykkur. Megi allar góðar vættir styðja ykkur í sorg- inni. Jóhanna Hlöðversdóttir og heimilisfólkið Hellum. Það var alltaf glatt á hjalla í kringum Kjartan hvar sem hann var. Hann hafði lag á að smita um- hverfi sitt með glettni sinni og glaðværð. Kjartan var mikill félagsmála- maður og kom hann því víða við í störfum sínum fyrir samfélagið. Hann var valinn í stjórnir margra félaga og samtaka, enda oft leitað til hans þegar á þurfti að halda. Kjartan var góður söngmaður og var virkur félagi í kirkjukór sveitarinnar og Karlakór Rang- æinga. Í þeim félagsskap sómdi hann sér vel, fremstur meðal jafn- ingja. Kjartan bjó myndarbúi í Hjallanesi og stjórnuðu þau hjón- in því af miklum dugnaði og mynd- arskap. Það var oft gestkvæmt á heim- ilinu, en Kjartan gat alltaf sest niður til þess að spjalla við gest- ina. Þó frístundirnar séu ekki marg- ar í búskapnum þá gafst tími til þess að ferðast innanlands og ut- an. Í seinni tíð voru utanlandsferð- irnar oft í tengslum við söngferðir Karlakórsins. Það má segja að Kjartan hafi átt sínar uppáhaldsstundir í Veiði- vötnum. Stundirnar þar voru ígildi sumarleyfis fyrir hann. Það var einstakt að fá að kynn- ast og vera samferða jafn heilum manni og Kjartan í Hjallanesi var. Hulda og Jason. HINSTA KVEÐJA Hrókur alls fagnaðar eru orð sem eiga vel við þegar við kveðjum Kjartan í Hjallanesi, einn okkar besta dreng og félaga í Karlakór Rangæinga, en glaðværð og söngelska hans var hans aðalsmerki, það einfaldlega birti upp þegar hann mætti á svæðið og verður skarð hans vand- fyllt, eftir stendur minning sem aldei verður frá okkur tekin um einstakan söng- bróður og vin. Fjölskyld- unni í Hjallanesi sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Hvíldu í friði, félagi og vinur. Fyrir hönd Karlakórs Rangæinga, Hermann Árnason, formaður. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.