Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
✝ Birgir Sveins-son fæddist í
Reykjavík 25. maí
1938. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 21. júní
2017.
Foreldrar hans
voru Nanna
Tryggvadóttir, f. 2.
júní 1908, d. 13.
ágúst 1985, og
Sveinn Guðmunds-
son, f. 28. apríl 1912, d. 12. maí
1998. Birgir ólst að mestu leyti
upp hjá móðurforeldrum sínum
í Garði og síðar hjá Auði, móð-
ursystur sinni. Börn hennar,
Finnbogi og Björg, voru því
frekar eins og systkini hans en
frændsystkini.
Birgir kvæntist árið 1960
Helgu Hólmfríði Frímanns-
dóttur, f. 1940, þau skildu.
Börn þeirra eru: 1) Kristín, f.
1960, eiginmaður hennar er
Sigurjón Örn Guðfinnsson, f.
1961. Börn þeirra eru: a) Sæv-
ar Örn, f. 1982, eiginkona Sæ-
unn Sæmundsdóttir, f. 1983, og
börn þeirra eru Maren Rós,
Ólöf Hera og Oddur Henry. b)
Hafþór Ægir, f. 1986, sambýlis-
kona er Andrea Eiríksdóttir, f.
Eftirlifandi eiginkona Birgis
er Auður Guðvinsdóttir, f.
1940. Þau bjuggu lengi á Skóla-
braut 12 í Garði en síðar á
Stekkjargötu 29 í Innri-
Njarðvík. Síðustu árin þegar
heilsu Birgis hafði hrakað
fluttu þau að Njarðarvöllum 6 í
Ytri-Njarðvík.
Birgir ólst upp í Garði og
veturinn fyrir fermingu var
hann á Héraðsskólanum á Núpi
en fór 16 ára gamall í Iðnskól-
ann í Reykjavík. Hann tók mót-
ornámskeið hjá Fiskifélagi Ís-
lands árið 1958 og lauk síðar
verklegu sveinsprófi í bifvéla-
virkjun árið 1978. Birgir var
vélstjóri á sjó hluta starfs-
ævinnar en eftir að hann kom í
land vann hann lengst af á
verkstæði Aðalverktaka á
Keflavíkurflugvelli en síðasta
hluta starfsævinnar starfaði
hann hjá Hitaveitu Suðurnesja.
Birgir var virkur í starfi stétt-
arfélaga sinna. Hann sat í
stjórn Vélstjórafélags Suð-
urnesja og í stjórn Iðnsveina-
félags Suðurnesja. Árið 1989
gekk hann í Lionsklúbbinn í
Garði og var þar virkur félagi
eins lengi og heilsan leyfði.
Lengi var hann í hópi þeirra
Lionsmanna sem sinntu útfar-
arþjónustu á Suðurnesjum.
Útför Birgis hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
1980, og dóttir
hennar er Eiríka
Ýr. c) Helga
Dagný, f. 1988,
sambýlismaður
hennar er Alex-
ander Jóhönnuson,
f. 1980, og sonur
þeirra er Raknar.
2) Óskar, f. 1963,
eiginkona hans er
Kolfinna Njáls-
dóttir, f. 1971.
Börn þeirra eru: a) Aldís, f.
1992, og sonur hennar er Aron
Leví, b) Birgir Þór, f. 1994, c)
Árni Björn, f. 2000, og d) Ey-
þór Trausti, f. 2004. 3) Hilmar,
f. 1966, eiginkona hans er
Pálmfríður Gylfadóttir, f. 1978,
og sonur þeirra er Hilmar
Daði, f. 2003. Einnig á Hilmar
dæturnar a) Nönnu Bryndísi, f.
1989, sambýlismaður Sigur-
björn Kristjánsson, f. 1988, og
b) Írisi Birgittu, f. 1991, sam-
býlismaður Vignir Ragnarsson,
f. 1982, og dóttir þeirra er
Ingibjörg Freyja, sonur Vignis
er Jóhann Trausti. 4) Þórir
Smári, f. 1972, eiginkona er
Bára Skúladóttir, f. 1975, synir
þeirra eru Skúli Már, f. 1996,
og Elmar Þór, f. 1998.
Lífið er núna og það er dýr-
mætt. Við erum minnt á það á
margan hátt og því fengum við
fjölskyldan að kynnast þegar
tengdafaðir minn til 30 ára
kvaddi alltof fljótt. Á þeim degi
sem lengstur er og birtu nýtur
við kvaddi Birgir þetta líf. Þó
að andlátið hafi borið brátt að
vissum við sem hann þekktum
að tíminn gæti komið hvenær
sem væri. Við höfum verið sam-
ferðamenn frá því að ég kom
fyrst til Óskars á Smáratúnið
16 ára gömul. Síðan þá höfum
við átt góðar samvistir og deilt
saman gleði og sorg. Birgir var
hlýr og traustur og hann var
mikill húmoristi. Honum þótti
afar vænt um Auði sína, börnin
og barnabörnin og fylgdist vel
með þeim og var stoltur af
þeim áföngum sem náð var.
Fjölskyldan var honum afar
mikils virði og þegar ég hugsa
til æsku hans skil ég það afar
vel. Hann var elsta barn for-
eldra sinna sem slitu samvistir.
Hann ólst því upp í faðmi móð-
urfjölskyldu sinnar í Garði sem
umvafði hann í æsku. Samskipti
hans við föður voru lítil þó svo
að hann hafi vitað af föðurfjöl-
skyldu sinni í Skagafirði og
heimsótt föður sinn af og til.
Sveinn faðir hans var jarðsung-
inn í Dómkirkjunni rétt fyrir
sextugsafmæli Birgis. Enn
þann dag í dag get ég ekki skil-
ið hvers vegna frumburður
Sveins var ekki nefndur á nafn
við útförina. Það er algjörlega
ofar mínum skilningi og mig
langaði mest til að standa upp
og benda á Birgi sem hjá mér
sat en við sögðum ekki orð
enda var tengdafaðir minn ekki
maður margra orða. Þetta
skiptir engu máli sagði hann
svo oft og ég veit að hann væri
ekki kátur með að ég nefni
þetta hér en ég veit líka hve
fljótur hann er að fyrirgefa.
Höfum gaman af lífinu og lát-
um ekki aðra hafa áhrif á það
hvernig okkur líður. Eftir út-
förina bauð hann okkur upp á
kaffi í Iðnó.
Auður fylgdi honum allt til
enda á sinn ljúfa og nærgætna
hátt. Hún fylgdi honum í gegn-
um erfið veikindi og var stoð
hans og stytta fram á síðasta
dag og erum við henni afar
þakklát. Þótt það blási kemur
lognið innan tíðar. Þegar rætt
var um veður við Birgi stóð
ekki á svörum, sérstaklega veð-
ur í Garði sem var honum kær.
Þar höfum við skjól af vitanum
sagði hann og átti við Garð-
skagavita. Þessi orð minna mig
á Birgi og það æðruleysi sem
einkenndi hann. Þeir nafnar,
hann og Birgir Þór sonur minn,
áttu svo fallegt vinasamband og
ég er þakklát fyrir að börnin
mín fengu að kynnast afa sín-
um og Auði sem tók þeim sem
sínum eigin.
Við höfum nú fylgt Birgi síð-
asta spölinn og hvílir hann í
Innri-Njarðvík að eigin ósk þar
sem sjávarsýn er góð og vindar
blása. Hann hafði óskað eftir að
útförin færi fram í kyrrþey sem
er svo lýsandi fyrir persónu
hans. Hann vildi ekki að haft
yrði mikið fyrir sér og vildi
hvorki umstang né fjölmenni.
Athöfnin var látlaus og falleg
og alveg í hans anda. Tónlistin
spilaði stórt hlutverk og ber að
þakka öllum þeim sem komu að
athöfninni.
Kærar þakkir frá fjölskyld-
unni til allra þeirra sem fylgdu
honum. Það er alltaf sárt að
kveðja ástvin en minningar um
ljúfan föður, tengdaföður, afa
og langafa lifa með okkur Ósk-
ari, börnum og barnabarni.
Kolfinna Njálsdóttir.
Birgir Sveinsson
Elsku afi.
Ég vona innilega
að þú sért kominn á
betri stað núna.
Mér finnst ósann-
gjarnt að þú hafir verið tekinn
frá okkur en ég vona að þar sem
þú ert líði þér vel. Takk fyrir all-
ar stundirnar sem við erum búin
að eiga saman.
Ég mun alltaf hlæja og brosa
þegar ég hugsa um minningarn-
ar þegar við vorum í Portúgal og
fórum í gokart saman og keyrð-
um saman á vespunum, mér
mun ávallt þykja vænt um þær
minningar.
Það mun verða tómlegt án þín
í þessari ítölsku stórfjölskyldu
okkar.
Ég vildi að ég gæti knúsað
þig. Ég elska þig ótrúlega mikið.
Þín
Íris Björk.
Fyrstu kynni mín af Hauki
mági mínum voru þegar hann
kom norður til að hitta vænt-
anlega tengdafjölskyldu. Þau
voru svo fallegt par hann og
Gréta systir. Haukur var
strákslegur og stríðinn. Hann
bauð mér, stelpunni, í kvöldbíó
og það var nú ekki ónýtt. Ugg-
laust hefur honum fundist gott
að sleppa um stund frá árvök-
ulum augum tilvonandi tengda-
foreldra. Eftir að Haukur og
Gréta fóru að búa við Kapla-
Haukur K.
Gunnarsson
✝ Haukur K.Gunnarsson
fæddist 11. janúar
1937. Hann lést 2.
júlí 2017. Útför
hans hefur farið
fram í kyrrþey.
skjólsveginn fór ég
í heimsókn til
þeirra. Í minning-
unni var það álíka
spennandi og utan-
landsferðir eru í
dag. Ánægjulegt
var að fylgjast með
þegar börnin fóru
að koma, þau
Helga, Baddý og
Kiddi. Gréta og
Haukur voru mjög
stolt af börnunum sínum, enda
máttu þau vera það. Haukur var
mér og minni fjölskyldu mjög
góður og hjálplegur. Hann sýndi
börnunum okkar alltaf áhuga og
gladdist þegar vel gekk.
Haukur átti við vanheilsu að
stríða undanfarna mánuði og þá
var hann vel studdur af fjöl-
skyldu sinni.
Elsku Gréta, Helga, Baddý,
Kiddi og fjölskyldur, innilegustu
samúðarkveðjur frá okkur
Helga og börnunum okkar. Það
er gott að eiga minningar um
góðan dreng.
Þorgerður (Gerða).
Elsku afi.
Takk fyrir allar frábæru
stundirnar sem við höfum átt
saman. Þú varst yndislegur og
góður maður og hafðir einstakt
lag á því að fá okkur krakkana
til að hlæja, enda mikill stríðn-
ispúki og ávallt til í að fíflast
eitthvað með okkur. Ég mun
sakna afaknúsanna þinna svo
mikið en ég á góðu minning-
arnar um þig í staðinn.
Ég elska þig, afi, og þú munt
alltaf eiga stað í hjarta mínu.
Þín
Hildur Ýr.
Afi Haukur var einn af þess-
um mönnum sem hlýjan og al-
úðin skein af. Ég man sérstak-
lega eftir því hversu augljóst
það var þegar ég fór með honum
og ömmu Grétu til Mæjorka. Í
þessari ferð, þar sem afi sá til
þess að það var aldrei dauð eða
leiðinleg stund, fóru hinir krakk-
arnir á hótelinu að kalla afa
minn „afa“ eða afa Mæjorka. En
þannig var það bara með hann
afa, hann var bara svo mikill afi,
svo hlýr og góður að aðrir
krakkar fundu það líka.
Einnig var alltaf stutt í húm-
orinn hjá honum og þrátt fyrir
að brandararnir hafi verið mjög
misjafnir náðu þeir alltaf að vera
fyndnir þegar hann sagði þá,
hann fékk mann bara alltaf ein-
hvern veginn til þess að brosa.
Afi, þú bjóst til endalaust af
minningum. Ég lærði mikið af
þér og mun ævinlega vera þakk-
látur fyrir þær stundir sem við
áttum saman enda ekki hægt að
hugsa sér betri mann til þess að
geta kallað afa.
Gretar Þorsteinsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÞÓRU INGIBJARGAR
KRISTJÁNSDÓTTUR,
Dídíar,
Kirkjuteigi 25.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir
góða umönnun og hlýju.
Kristín Júlíusdóttir Hilmar Andrésson
Júlíus Þór Júlíusson Viktoría Dagbjartsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Kærar þakkir fyrir hlýjar kveðjur og vinarhug
vegna fráfalls og útfarar
JÓNS SVEINSSONAR,
Reyni í Mýrdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Klausturhóla
og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vík og
á Selfossi fyrir einstaka umönnun.
Erla Pálsdóttir
Páll Jónsson M. Sigríður Jakobsdóttir
Margrét Jónsdóttir Sigurjón Árnason
Sigurlaug Jónsdóttir Ólafur Helgason
Sveinn Jónsson Jóna Svava Karlsdóttir
Jónatan G. Jónsson Valgerður Guðjónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Jón E. Einarsson
Einar Jónsson Ágústa Bárðardóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI TORFASON,
lögg. endurskoðandi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
19. júlí. Útför hans fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. júlí
klukkan 13. Fjölskyldan vill koma á framfæri sérstökum þökkum
til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir
einstaklega góða umönnun og hlýhug.
Sólveig Birna Gísladóttir Einar Jóhannes Lárusson
Loftur Bjarni Gíslason Guðbjörg Sigríður Jónsdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, afa
og langafa,
HELGA ÞÓRARINS GUÐNASONAR,
Álfkonuhvarfi 55,
Kópavogi.
Guðlaug Einarsdóttir
Guðný Helgadóttir
Linda Björk Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts
SVÖVU BJÖRGÓLFS.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingimundur Kr. Helgason
Brynhildur Ingimundardóttir Haraldur Johannessen
Ragna Ingimundardóttir Jón Júlíusson
Jóhannes Ingimundarson
ömmubörn og langömmubörn
Látinn er úr ill-
vígum og lang-
vinnum sjúkdómi
kær bróðir okkar,
Skarphéðinn
Valdimarsson. Yngstur var
hann fjögurra bræðra okkar í
stórum systkinahópi og sem
einstaklega rólegt og skapgott
barn varð hann uppáhaldið
okkar allra en þó sérstaklega
eldri systranna. Þær nutu þess
að sjá um og hampa þessum
ljúflingi sem hann var alla tíð.
Það launaði hann þeim síðar
ríkulega er kom að því að
systrabörnin þyrftu á gæslu
eða leikfélaga að halda því af-
ar barngóður var hann og átti
einkar auðvelt með að setja
sig inn í óskir þeirra og þarfir.
Eins var með hjálpsemi
Skarphéðins í garð ættingja
og vina. Það var nokkuð sem
aldrei þurfti að fara fram á.
Hún var ávallt til staðar ef
þurfa þótti og veitt af heilum
hug. Hann var sannarlega
gleðigjafi. Okkur í stórfjöl-
skyldunni var hann ómissandi
ef sameinast var á gleðistund-
um, ómissandi með sinn húm-
or, góða skapið og einstaka
frásagnarmáta um menn og
Skarphéðinn
Valdimarsson
✝ SkarphéðinnValdimarsson
fæddist 29. apríl
1933. Hann lést 24.
júní 2017. Útför
Skarphéðins fór
fram 6. júlí 2017.
málefni ef slíkt
bar á góma.
Skarphéðinn varð
þeirrar gæfu að-
njótandi að hafa
við hlið sér að lífs-
förunaut Hildi
Ágústsdóttur sem
af mýkt og festu
tók því sem að
höndum bar og
samhent voru þau
í öllu er að heimili
og fjölskyldu laut. Þeim varð
fjögurra barna auðið: Ragna
Dúfa, f. 22.12. 1955. Ágúst, f.
25.11. 1957. Jóhann Þröstur, f.
23.3. 1961. Ragnheiður Hildur,
f. 15.6. 1964, látin 1.11. 2008.
Nú er syrgður ástkær eigin-
maður og vinur, besti faðir,
afi, langafi og bróðir. Við syst-
ur Skarphéðins og börnin okk-
ar, sem nutum gæða hans og
væntumþykju, vottum Hildi og
fjölskyldu okkar innilegustu
samúð.
Við vitum hvað þau hafa
misst, söknuðurinn er sár en
látum kærleika okkar allra til
Skarphéðins fylgja honum á
guðsvegum.
Dóra Björg
Guðmundsdóttir,
Hanna Hafdís
Guðmundsdóttir,
Auður Bergþóra
Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Erna
Guðmundsdóttir,
Elísa Edda
Guðmundsdóttir.