Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Skrifstofustjóri óskast til starfa hjá
Loðnuvinnslunni hf, á Fáskrúðsfirði.
Starfssvið
Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum skrifstofu.
Umsjón með fjármálum, reikningshaldi og uppgjörum.
Umsjón með reikningagerð og innheimtumálum.
Ábyrgð og umsjón með launagreiðslum og vsk uppgjörum.
Undirbúningur bókhalds til endurskoðanda.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur háskólamenntun
sem nýtist í starfi æskileg.
Reynsla af bókhaldi og uppgjörum.
Góð greiningarhæfni og færni til að halda utan um töluleg gögn og miðlun
upplýsinga.
Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
Nánari upplýsingar veitir Friðrik Mar 8928622, fridrik@lvf.is
Loðnuvinnslan hefur verið ört vaxandi fyrirtæki í sjávarútvegi
og öll starfsemi félagsins fer fram á Fáskrúðsfirði.
Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling.
Umsækjendur sendi umsóknir til:
Loðnuvinnslan h/f, Skólavegi 59, 750 Fáskrúðsfirði/fridrik@lvf.is fyrir 10.ágúst n.k.
LVF
H
é
ra
ð
sp
re
n
t
Geirabakarí
Borgarnesi vantar bakara.
Upplýsingar hjá Geira í síma 437-1920
eða 696-0025
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Framkvæmdastjóri
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Daglegur rekstur og umsjón með fjármálum
• Reikningshald og ársuppgjör
• Áætlanagerð
• Samningagerð og eftirfylgni með samningum
• Starfsmannamál
• Yfirsýn með starfsstöðvum fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði,
viðskiptafræði og stjórnun
• Reynsla af stjórnun í framleiðslufyrirtæki er kostur
• Víðtæk þekking og reynsla af rekstri og stjórnun
• Þekking og áhugi á markaðsmálum
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Kynningarbréf ásamt ferilskrá fylgi umsókninni
þar sem fram koma ítarlegar upplýsingar um
menntun, reynslu og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst nk.
Ístex leitar að öflugum framkvæmdastjóra til að stýra daglegum rekstri fyrirtækisins, framsýnum og
drífandi einstaklingi sem fær það verkefni að halda öflugri uppbyggingu fyrirtækisins áfram.
Ull íslensku sauðkindarinnar hefur lagað sig að veðurfari og aðstæðum frá landnámi. Hún hefur haldið hita á íslensku
þjóðinni í gegnum aldirnar og er einstök á heimsvísu.
Ístex er ullarvinnslufyrirtæki með höfuðstöðvar í Mosfellsbæ, sem hefur verið starfrækt frá árinu 1991. Ístex er eina
fyrirtækið á Íslandi sem safnar ull beint frá bændum og vinnur úr henni lopa og band. Fyrirtækið rekur ullarþvottastöð
á Blönduósi og spunaverksmiðju í Mosfellsbæ. Vörur fyrirtækisins eru seldar um allan heim í gegnum umboðsaðila.
Undir vörumerki Ístex, Lopa, er t.a.m. seldur Léttlopi, Plötulopi, Álafosslopi, Einband og Bulky Lopi. Fyrirtækið
framleiðir einnig vélprjónaband og stendur fyrir útflutningi á óunninni ull og framleiðslu ullarteppa.
Rekstrartekjur fyrirtækisins á árinu 2016 voru um 920 milljónir kr. og hjá því störfuðu á milli 40 og 50 starfsmenn.
Stýrimaður / Afleysing
Dögun ehf. leitar að stýrimanni á Dag SK 17. Um er
að ræða afleysingu í 2-3 vikur. Reynsla af togveiðum,
helst á rækju, æskileg.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn, með
upplýsingum um menntun og fyrri störf, með tölvupósti
til: oskar@dogun.is og/eða gissurb@simnet.is.
Nánari upplýsingar veita Gissur Baldursson í síma
690-1652 eða Óskar Garðarsson í síma 892-1586.
Dögun ehf. var stofnað árið 1983.
Fyrirtækið stundar rækjuvinnslu og útgerð, og er með
aðsetur á Sauðárkróki.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á