Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 36

Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 Spennandi viðskiptatækifæri á Hvolsvelli Sveitarfélagið Rangárþing eystra leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum eða fyrirtæki til að taka að sér rekstur Sögusetursins á Hvolsvelli. Æskilegt er að viðkomandi aðilar hafi menntun eða reynslu á sviði menningar-, viðskipta- eða ferðamála og hafi framúrskarandi þjónustulund. Leitað er eftir aðilum sem eru tilbúnir að reka Sögusetrið af lífi og sál, byggja upp öflugt fræðslu- og menningarsetur í samstarfi við sveitarfélagið, og veita góð þjónusta á öllum sviðum. Miðað er við að viðkomandi taki við rekstri 1. október n.k. Sögusetrið á Hvolsvelli var stofnað 1997. Þar er að finna tvær fastar sýningar; Á Njáluslóð, sem kynnir tíðaranda og persónur Njáls sögu, og Kaupfélagssafnið, sem segir hluta sögu verslunar á Suðurlandi í 100 ár. Þar er einnig verið að sauma 90 m langan Njálurefil sem er afar merkilegt framtak einstaklinga og verkið í höndum þeirra en engu að síður er góð samvinna aðila nauðsynleg. Í Sögusetrinu er einnig Söguskálinn, salur í anda langhúsanna, sem hentar fyrir veislur og aðrar uppákomur; Gallerí Ormur, sýningarsalur fyrir fjölbreyttar listsýningar og tónlistarviðburði og verslun með minjagripi. Upplýsingamiðstöð ferðamanna hefur verið staðsett í setrinu. Undanfarin tæp tuttugu ár hefur Sögusetrið verið byggt upp sem menningarsetur sveitarfélagsins og þar eru miklir möguleikar fyrir áhugasama og hugmyndaríka einstaklinga. Æskilegt er að umsækjendur skila inn viðskiptaáætlun og hugmyndum til næstu 3-5 ára með umsókn sinni. Umsóknir skulu berast fyrir 10. ágúst 2017. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða umsóknum sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar má nálgast í síma 488-4200; Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, isolfur@hvolsvollur.is eða Árný Lára Karvelsdóttir , markaðs- og kynningarfulltrúi, arny@hvolsvollur.is Sögusetrið á Hvolsvelli brautryðjandi í menningartengdri ferðaþjónustu Starf yfirmanns tæknideildar Stykkishólmsbæjar er laust til umsóknar. Stykkishólmsbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfirmanns tæknideildar Stykkishólmsbæjar sem jafnframt er byggingar- og skipulagsfulltrúi. Undir tæknideild fellur rekstur áhaldahúss, rekstur fasteigna Stykkishólmsbæjar og mannvirkja Stykkishólmshafnar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu samfélagi. Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni.. Byggingarfulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Ráðið verður í starfið frá og með 1.september n.k. eða eftir nánara samkomulagi Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur til og með 31. júlí nk. Samkvæmt auglýsingunni er starfssvið byggingarfulltrúa eftirfarandi: • Framkvæmd skipulags- og byggingarmála. • Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar. • Undirbúningur- og eftirfylgni funda skipulags- og byggingarefndar. • Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála. • Umsjón framkvæmda og eignaumsýslu í sveitarfélaginu. • Önnur verkefni. Menntunar- og hæfniskröfur: • Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi menntun og löggildingu samkvæmt ákvæðum 8. og 25.grein mannvirkjalaga nr.160/2010 og uppfylli kröfur 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. • Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda mikilvæg.. • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum. • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð. • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur. • Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar. • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku. • Góð almenn tölvukunnátta. Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á netfangið sturla@stykkisholmur.is eigi síðar en 31. júlí nk. Umsókninni þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til starfans út frá ofangreindum hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni. Nánari upplýsingar veitir Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmi í síma 433-8100/863-8888 eða tölvupósti: sturla@stykkisholmur.is. Stykkishólmi, 7. júlí 2017 Sturla Böðvarsson Yfirmaður tæknideildar Stykkishólmsbær Hjúkrunarfræðingur og Iðjuþjálfi Hjúkrunarfræðingur, 50% starf Gerð er krafa um íslenskt starfsleyfi og löggildingu. Helstu verkefni: • Hjúkrun heimilismanna • Teymisvinna • Þátttaka í þróun og uppbyggingu á Hornbrekku Reynsla og hæfni: • Reynsla af hjúkrun aldraðra æskileg • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunafræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2017. Iðjuþjálfi, 50- 60% starf Gerð er krafa um starfsréttindi í iðjuþjálfun Helstu verkefni: • Iðjuþjálfun heimilismanna • Teymisvinna • Þátttaka í þróun og uppbyggingu á Hornbrekku Reynsla og hæfni: • Reynsla af iðjuþjálfun aldraðra æskileg • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Laun eru samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2017. Hornbrekka, hjúkrunar- og dvalarheimili óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum í eftirtalin störf: Nánari upplýsingar veitir: Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri. Netfang: elisa@hornbrekka.is, símar: 466 4060 /847 0426 www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.