Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 41

Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 41
skeiðið aðallega til að nota í kennsl- unni því þetta var ekki í boði fyrir okkur stelpurnar í íþróttakenn- aranáminu. Meðan strákarnir voru að læra um fótboltann vorum við í dansskrift. Ég dæmdi aðallega hjá yngri strákum í fótboltanum.“ Sigrún tók verslunarpróf frá Verslunarskóla Íslands, íþrótta- kennarapróf frá Íþróttakennara- skóla Íslands og stúdentspróf Flensborgarskóla, auk ýmissa nám- skeiða hjá á vegum VÍ. Sigrún vann ýmis verslunarstörf og leiðbeinendastörf á íþrótta- námskeiðum með skóla. Hún var íþróttakennari í Kópavogi, síðast í Réttarholtsskóla 1989 og inni á milli gjaldkeri og fulltrúi við Verslunar- banka Íslands. „Ég var til skiptis að kenna og í Verslunarbankanum eft- ir því hvað hentaði.“ Sigrún stofnaði ásamt eig- inmanni ferðaþjónustufyrirtækið Íshesta 1982 sem þau seldu í árslok 2011. Hún starfaði þar sem fjár- málastjóri og sat í stjórn Íshesta. Fyrirtækið var brautryðjandi í löngum hestaferðum um hálendi Ís- lands. Sigrún hreifst af samvinnu- hugsjóninni og starfaði um tíma fyrir Framsóknarflokkinn í Kópavogi m.a. í nefndum og sem formaður heil- brigðisnefndar Kópavogs. „Mikil- vægasta starfið er samt uppeldi barnanna. Ég held upp á afmælið á Núpi í Dýrafirði, ljósmyndari kemur á svæðið til að taka fjölskyldumynd og svo ætlum að horfa á leikinn með stelpunum á EM og borðum eftir leikinn.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar er Einar Gunnar Bollason, f. 6.11. 1943. fyrr- verandi kennari, körfuknattleiks- þjálfari og framkvæmdastjóri Ís- hesta. Foreldrar hans voru hjónin Hjördís Einarsdóttir, fulltrúi í Tryggingastofnun ríkisins, f. 8.4. 1923, d. 2001, og Bolli Gunnarsson loftskeytamaður , f. 1.7. 1918, d. 1994. Börn: Hjördís Einarsdóttir, f. 8.1. 1973, mannfræðingur og mennta- skólakennari. Maki er Guðmundur Hafsteinsson, trompetleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, búsett í Kópavogi. Þau eiga fjögur börn; 2) Bryndís Einarsdóttir, f. 11.8. 1974, klínískur sálfræðingur. Maki er Ein- ar Þór Jóhannsson leiðsögumaður, búsett á Álftanesi. Þau eiga fjórar dætur, 3) Svandís Dóra Einarsdóttir, f. 5.7. 1984, leikkona. Maki er Sig- tryggur Magnason rithöfundur, bú- sett í Kaupmannahöfn, hann á þrjú börn; 4) Stjúpsonur: Sigurður Örn Einarsson, f. 18.3. 1965, starfar hjá Securitas, búsettur í Kópavogi. Hann á einn son; 5) stjúpdóttir: Sól- veig Lilja Einarsdóttir, f. 31.5. 1968, viðskiptafræðingur og MBA. Maki er Þórður Heimir Sveinsson lög- fræðingur, búsett í Hafnarfirði. Þau eiga þrjú börn. Systkini: Dóra Hlín Ingólfsdóttir, f. 17.8. 1949, d. 22.12. 2016, rann- sóknarlögreglukona, og Svanhvít Eygló Ingólfsdóttir, f. 15.2. 1954, fyrrverandi lögreglufulltrúi. Hálf- systkini, samfeðra: Sigurður Ingólfs- son, f. 12.4. 1944, búsettur í Dan- mörku, og Lísa Björk Valgerður Saga Ingólfsdóttir, f. 12.7. 1966, bú- sett í Kópavogi. Foreldrar: Jóhanna Bjarnfreðs- dóttir bókavörður, bús. í Kópavogi, f. 31.12. 1922, d. 4.10. 2010 og Ingólfur Finnbjörnsson loftskeytamaður, síð- ast bús. á Seltjarnarnesi, f. 25.4. 1925, d. 5.4. 2010. Þau voru gift en skildu árið 1970. Úr frændgarði Sigrúnar Ingólfsdóttur Sigrún Ingólfsdóttir Árný Eiríksdóttir húsfr. í Háu-Kotey Sigurbergur Einarsson bóndi í Háu-Kotey í Meðallandi Ingibjörg Sigurbergsdóttir húsfr. á Efri-Steinsmýri Bjarnfreður Ingimundarson bóndi á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaft. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir bókavörður Sigurveig Vigfúsdóttir húskona í Mjóafirði en lengst húsfr. í Vík í Mýrdal Ingimundur Árnason húsm. í Mjóaf. og sjómaður í Vestmannaeyjum Gíslrún Sigurbergsdóttir húsfr. á Syðri-Steinsmýri Sigurbjörn Einarsson biskup Sigmundur Ó. Steinarsson rithöfundur og fv. íþrótta- fréttamaður Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verkakona og alþingismaður Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur Finnbjörn Þorvaldsson hlaupari, ólympíufari og margf. Íslandsmeistari Halldóra Kristín Finnbjörnsdótt- ir húsfreyja í Kópavogi Magnús Bjarnfreðsson fréttamaður Tryggvi Hübner tónlistarmaður Helga Þorgerður Guðmunds- dóttir húsfr. í Reykjavík Steinar Þorsteinsson Íslands- meistari með KR í fótbolta Þorkell Sigur- björnsson tónskáld Karl Sigurbjörns- son fv. biskup Herdís Hübner kennari á Ísafirði Halldóra Finn- björnsdóttir húsfr. í Hnífsdal og Rvík Sigríður Júlíana Sighvatsdóttir húsfr. á Flateyri, dóttir Sighvats Borgfirðings Guðmundur Ólafur Jónsson sjómaður á Flateyri Ragnhildur Guðrún Guðmundsdóttir hárgreiðslumeistari á Ísaf. Finnbjörn Finnbjörnsson málarameistari á Ísafirði Ingólfur Finnbjörnsson loftskeytamaður Halldóra Halldórsdóttir húsfr. í Görðum og Hnífsdal Finnbjörn Elíasson útvegsbóndi í Görðum í Aðalvík, síðar bátasmið- ur og form. í Hnífsdal ÍSLENDINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 Katrín Jakobsdóttir Smárifæddist í Kaupmannahöfn22. júlí 1911. Foreldrar hennar voru Jakob Jóhannesson Smári, málfræðingur, rithöfundur og yfirkennari við MR, f. 1889, d. 1972, og k.h. Helga Þorkelsdóttir Smári, kjólameistari, f. 1884, d. 1974. Bróðir Katrínar var Bergþór Smári læknir, f. 1920, d. 2012. Jakob Smári var sonur Jóhann- esar prests á Kvennabrekku, bróður Valgerðar, langömmu Guðrúnar Á. Símonar óperusöngkonu. Jóhannes var sonur Jóhanns, prests á Hesti Tómassonar, b. og stúdents á Stóru- Ásgeirsá, Tómassonar. Móðir Jak- obs var Steinunn, systir Guð- mundar, föður Þórarins tónskálds. Steinunn var dóttir Jakobs, prests á Kvennabrekku, Guðmundssonar. Faðir Jakobs var talinn Ingjaldur, prestur í Nesi, Jónsson, bróðir Frið- riks, langafa Ólafs Hjartar, afa Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrv. forseta. Móðir Steinunnar var Steinunn, dóttir Guðmundar, verslunarstjóra í Innri-Njarðvík, Péturssonar og k.h., Ragnheiðar Guðmundsdóttur, syst- ur Helga biskups, langafa Sigurðar Hafsteins, föður Hannesar Haf- steins sendiherra. Katrín lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1930 og stundaði nám í forspjallsvísindum og frönsku við Háskóla Íslands 1930-1931. Næstu árin vann hún ýmis störf, m.a. sem þingskrifari. Árið 1959 var Katrín kjörin varaþingmaður Al- þýðuflokksins og sat á Alþingi 1960, 1964 og 1965. Hún var kennari við Hagaskóla 1960-1961 og 1962-1964. Eftir það starfaði hún sem lækna- ritari til 1973. Katrín var mjög félagslega sinn- uð, sat í ýmsum nefndum, m.a. í stjórn Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykjavík og í stjórnum fleiri kven- félaga. Eiginmaður Katrínar var Yngvi Pálsson, fulltrúi í Reykjavík, f. 22.5. 1909, d. 2.7. 1980. Börn Katrínar og Yngva eru Helga Björg, f. 1943, og Jakob, f. 1945. Katrín lést 13.1. 2010. Merkir Íslendingar Katrín J. Smári Laugardagur 95 ára Jens Albert Pétursson 90 ára Diðrik Vilhjálmsson Sigríður Sigurðardóttir 85 ára Kristín Jónsdóttir Pétur Valdimarsson Sigurjón Guðnason 80 ára Árni Ólafsson Helgi Björn Einarsson Helgi Helgason Páll Ólason Sigurjón Valdimarsson 75 ára Jónína Björgvinsdóttir Sigrún Margrét Ragnarsdóttir Sigrún Scheving Sigurður Eggertsson 70 ára Guðlaug Jónsdóttir Guðrún Ragnhildur Karlsdóttir Hákon Aðalsteinsson Sigrún Ingólfsdóttir Svavar Guðmundsson Unnar Guðmundsson 60 ára Elín Margrét Hjelm Elísabet Guðlaugsdóttir Gísli Hermannsson Kristján V. Halldórsson Magna Guðmundsdóttir Svanhildur Jónsdóttir Svanhvít Ólafsdóttir Wieslaw Dabrowski Wilma J. Young Þórunn Stefánsdóttir 50 ára Anna Ingileif Erlendsdóttir Ásgeir Pétursson Bergur Kristinsson Halldór Snæfells Magnússon Hólmfríður Díana Magnúsdóttir Hrund Steindórsdóttir Jacek Lek Jóhanna Bára Þórisdóttir Lára Bjarney Kristinsdóttir Margrét Þórðardóttir Saulé Baltrusaitiené Sigríður Valdimarsdóttir Stefanía Björk Reynisdóttir Vladimír Pekný 40 ára Adam Piotr Waclawczyk Alexander Heiðar Ólafsson Hafsteinn Sigurbjörnsson Helga Rós Sveinsdóttir Margrét Guðvarðardóttir Mariusz Michal Owczarek Monika Gissurardóttir Rakel Friðriksdóttir Sigrún Hauksdóttir Steindór Steindórsson 30 ára Birkir Guðjónsson Bryndís Gyða Stefánsdóttir Edda Björk Jónsdóttir Ester Valgerður Brynjólfsdóttir Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir Harpa Káradóttir Hreiðar Gunnar Hákonarson Ísak Birgisson Kolbeinn Örn Guðmundsson Margrét Guðmundsdóttir Máni Cong Van Jósepsson Sigrid Merino Sarda Silja Hlín Guðbjörnsdóttir Sindri Viðarsson Sunnudagur 95 ára Lilja Aradóttir 85 ára Arndís Sigurðardóttir Jón Sigmundur Torfason 80 ára Björgvin Elíasson Eðvarð Karl Ragnarsson Elsa Fanney Pétursdóttir Halldór Ólafsson Kristín Sveinbjörnsdóttir 75 ára Guðmundur Bertelsson Helga Þórey Jónasdóttir Magnús H. Sigurðsson Róbert Jónsson 70 ára Birgir Þór Jónsson Björn Magnússon Elínborg Steinunn Pálsdóttir Hrafnhildur Gunnarsdóttir Hörður Runólfsson Jóhann Marinósson Margrét Ásta Skúladóttir Sigrún Guðnadóttir Sólrún Geirsdóttir 60 ára Einar Biering Ágústsson Fanný Gunnarsdóttir Ingvi Þór Sigfússon Ivan Jets Jófríður Hanna Sigfúsdóttir Jón Sigurbrandur Knútsson Lilja Hrönn Halldórsdóttir Margrét Björg Pétursdóttir Margrét Sigurgeirsdóttir 50 ára Berglind Steffensen Dorota Kochanska Helga Þóra Jónasdóttir Imeebelle Sif Mortola Ingimundur Guðnason Minu Toderascu Óskar Freyr Bjartmarz Reynir Reynisson Susana Perez Martienssen Þórhanna Þórðardóttir 40 ára Berglind Tómasdóttir Bjarnfríður Sveinbjörnsdóttir Íris Rut Jóhannesdóttir Ísrael Daníel Hanssen Kjartan Pálsson Margrét Dan Þórisdóttir Roman Rogozynski Rosana A. Estevez Estevez 30 ára Arnar Páll Birgisson Eyrún Jóna Reynisdóttir Guðmundur Andri Garðarsson Gunnar Tómas Gunnarsson Hannes Þór Þorláksson Heiðrún Arna Friðriksdóttir Inga Kristín Skúladóttir Júlía Margrét Einarsdóttir Lára Guðjónsdóttir Lukasz Rusc Oddný Heimisdóttir Ólafur Ívar Baldvinsson Telma Ýr Tórshamar Til hamingju með daginn mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón NÝ OG GLÆSILEG BLÖNDUNARTÆKJALÍNA Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 Bað- og sturtutæki með stút upp. 41.613 kr. FMM SILJAN Handlaugartæki án botnv. 20.321 kr. FMM SILJAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.