Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ó, dásamlega fortíð! Líklega mun
fortíðarþráin toga þig til baka til áranna
þegar þú leist dásamlega út. Sjálfsagt er
að njóta góðra sigra.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er aldrei til annars en góðs að
sækja sér aukinn fróðleik á hvaða sviði
sem er. Taktu hlutunum samt með ró og
kláraðu það sem skiptir máli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert mínímalískur í hugsunum.
Reyndu að dekra svolítið við sjálfan þig og
finna tíma til þess að hvíla þig, lesa og
stunda naflaskoðun.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er alltaf best að búa að sínu
og, ef þannig stendur á, að lána nágrönn-
um sínum. Ef þú lætur hjartað ráða og hef-
ur hreina samvisku mun þín aðferð ná fót-
festu með tímanum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir freistast til að segja ósatt til
að forðast óþægilega aðstöðu í dag. Vin-
áttan er peningum mikilvægari.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óreiða og ruglingur þurfa ekki endi-
lega alltaf að vera af hinu slæma. Reyndu
samt ekki að slá ryki í augu þeirra sem
spyrja.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef ágreiningur rís upp meðal fjöl-
skyldumeðlima þarf að komast að mála-
miðlun. Málið er að fólki líkar við þig og
það vill vera nálægt þér og heyra rödd
þína.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekki nóg að fá hug-
myndir ef þú hrindir þeim ekki í fram-
kvæmd. Andagiftin fær þig til að skara
fram úr á ótrúlegan hátt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þig langar til að taka þátt í
heillandi og ástríðufullu ævintýri, en veist
að maður leikur sér ekki að eldi. Slakaðu á.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt þú sért að farast úr forvitni
skaltu ekki skipta þér af því sem þér kemur
ekki við. Síðan fer að færast meiri hraði í
líf þitt. Ekki eyða tíma í að kvarta.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sá sem alltaf er tilbúinn til
átaka við aðra, verður að reikna með mis-
jöfnu gengi. Dreifðu áhættunni þannig að
þú þurfir ekki að sitja eftir með sárt ennið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Náin sambönd eru eitthvað erfið í
dag. Hafnaðu því allri fljótfærni og láttu þig
ekki dreyma um að hætta því sem þér er
dýrmætast og helgast í þessu lífi.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Í brjósti mér löngum bærist.
Í blænum vart seglið hrærist.
Látæði montinna manna.
Hjá mörgum er tímabil anna.
Guðrún Bjarnadóttir svarar „í
orðastað bóndans sem átti bát og
slær um sig í þriðju hendingu“:
Hjartað í hamfaraslætti,
hreyfir sláttur vart bátinn.
Mestan bát (mont) hélt ég ætti
og met næðist fyrir slátt, státinn.
Helgi R. Einarsson kemur með
„lausnina þessa vikuna“:
Er línur hafði litið á
ég ljómandi var sáttur
því það sem af þeim merkja má
er mismunandi sláttur.
Helgi Seljan segir, að „þetta kom
í hugann þegar sláttutíðin kom inn í
gátu Guðmundar“:
Æðilangt er síðan með orfi og ljá
ég sló
og aldrei reyndist flinkur að dengja
ljáinn minn.
Sjaldan þó sem unglingur slegið
alveg nóg,
að ekki þótti beysinn hjá Seljan
flekkurinn.
Árni Blöndal svarar:
Í brjósti mér berst mitt hjarta.
Í blæ lafir seglið bjarta.
Sá er mont-hana háttur,
heyannir bændanna sláttur.
Pétur Friðrik Þórðarson á þessa
lausn:
Hjartsláttur í hjartagátt.
Heyri slátt í seglum hátt.
Um sig hefja slánar slátt.
Slætti bændur ljúka brátt.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Bærist í hverju brjósti sláttur.
Blaktir vart segl í hægum slætti.
Sláttur er montinna manna háttur.
Mörgum á slætti góð hvíld þætti.
Og lætur limru fylgja:
Er Hallvarður fór í háttinn
með harðsperrur eftir sláttinn
og erfiðan drátt
á ýmsan hátt
hann alveg misst hafði máttinn.
Og að síðustu kemur Guðmundur
með laugardagsgátuna:
Síst ég má í leti lúra,
lengur ekki værðar nýt.,
laugardagsins limru klúra
og létta gátu semja hlýt:
Hreinlætinu þjónar það.
Þetta menn um hálsinn bera.
Blóðrás heftir strax í stað.
Strangi korns má líka vera.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er sláttur á honum
Í klípu
„EF ÞETTA HELDUR ÁFRAM MUNTU
ALDREI KOMAST ÚR SKÓLANUM.
VILTU VERÐA KENNARI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„GÆTIRÐU HELLT UPP Á ANNAN BOLLA FYRIR
MIG AF ÞESSU KAFFI. HUGSA AÐ ÉG MUNI ATHUGA
HVERNIG ÞAÐ FER Í GÍRKASSANN MINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... leyniuppskriftin
að fullkomnu fríi.
ROOOP! ROOOP!TAKKFYRIR! UPPKLAPP
JANUS SKARTGRIPA-
SALI ÆTLAR AÐ BORGA
ÞETTA ALLT!
HVERNIG HEFURÐU EFNI
Á AÐ BJÓÐA ÖLLUM UPP
Á FRÍAN DRYKK?
STEFNUMÓTA-
KVÖLD
FRÍIR DRYKKIR
HRINGIR
Víkverji á það sameiginlegt meðflestum þeim sem hann hefur
rætt við um símaþjónustu Reykja-
víkurborgar að fyllast reiði, pirringi
og óþolinmæði vegna þeirrar ein-
staklega lélegu þjónustu sem boðið
er upp á.
Raunar má taka svo djúpt í árinni
að segja að þegar nauðsyn á upplýs-
ingum úr völundargöngum borgar-
kerfisins krefst þess að Víkverji
hringi í 411-1111 er dagurinn ekki
samur eftir það.
x x x
Sumrin eru vitanlega versti tímiársins, þar sem heilu deildirnar
og sviðin hjá borginni virka sem
eyðimörk því enginn er við sem ná
þarf í, og ekki verða símadömurnar
hjá borginni sakaðar um að vera
hjálplegar þegar Víkverji er að leita
að viðmælendum sem kynnu að geta
veitt þær upplýsingar sem eftir er
leitað.
Þannig bar við nú um daginn að
Víkverji vildi fá að tala við starfs-
mann eða starfsmenn, helst yfir-
mann, Heilbrigðiseftirlits Reykja-
víkurborgar.
x x x
Eftir langa bið var röðin loks kom-in að Víkverja og þá upplýsti
símastúlkan Víkverja um það að
yfirmaðurinn væri í fríi til 24. júlí.
Hún gaf upp nafn á öðrum starfs-
manni eftirlitsins sem gæti hugs-
anlega veitt upplýsingar. Sagði svo
Víkverja að hringja aftur milli kl. 13
og 14 því þá væri viðkomandi starfs-
maður með símatíma.
Vinsamleg ábending Víkverja um
að þetta væri ósk fjölmiðils um stutt
símaviðtal við viðkomandi haggaði
ró símadömunnar ekki hið minnsta.
Hún sagði einfaldlega að hún mætti
ekki gefa símasamband við manninn
utan símatímans! Er þetta boðlegt?
Er ekki kominn tími til þess að
starfsmenn opinberra stofnana og
fyrirtækja, kjörnir fulltrúar og emb-
ættismenn geri sér grein fyrir þeirri
staðreynd að þeir eru í vinnu hjá
skattgreiðendum þessa lands, þar
með talið Víkverja, sem hefur það að
atvinnu að afla upplýsinga fyrir les-
endur Morgunblaðsins?
vikverji@mbl.is
Víkverji
Sá er situr í skjóli Hins hæsta og dvelst
í skugga Hins almáttka segir við
Drottin: „Hæli mitt og háborg, Guð-
minn, er ég trúi á.“
(Sálm. 91:1-2)
DIVINE HARMONY SERUM
E I N STÖK SAMV I RKN I S EM
V IÐHELDUR UNGLEGR I HÚÐ
Þar sem land og haf mætast, skapar náttúran eilífa fegurð. Immortelle Millésimée er blómið
sem aldrei fölnar, Jania Rubens er rauðþörungur sem getur endurnýjað sig óendanlega
oft. Þessi tvö einstöku innihaldsefni frá Korsíku sameinast í nýja Divine Harmony Serum
frá L‘ OCCITANE. Það er hannað til að viðhalda jafnvægi og ungleika húðar með virkum
innihaldsefnum í formi 5.000 fíngerðra ördropa sem vinna djúpt í húðinni.
Eftir þriggja mánaða notkun hafa kinnar og kinnbein meiri fyllingu (91%**), útlínur andlits eru
skýrari (78%**) og húð er sjáanlega sléttari (93%**).
* E
in
ka
le
y
fi
íu
m
só
kn
ar
fe
rl
ií
F
ra
kk
la
n
d
i.
**
N
ey
te
n
d
ap
ró
f
á
5
5
ko
n
u
m
se
m
n
o
tu
ð
u
D
iv
in
e
H
ar
m
o
n
y
S
e
ru
m
ít
vo
m
án
u
ð
i.
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
5 EINKALEYFIÍ UMSÓKN*