Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
VASULKA-STOFA - Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Fuglarnir, fjörðurinn og landið í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Hugsað heim á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14.öld
Spegill samfélagsins 1770
Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Ismo er finnskur uppistandari sem
ég kynntist þegar ég var að ferðast
hvað mest til Finnlands fyrir
nokkrum árum. Við komum oft
saman fram á hátíðum og hann er
alveg ótrúlega vel heppnaður grín-
isti,“ segir Ari Eldjárn sem verður
með uppistand undir yfirskriftinni
Iceland vs. Finland ásamt finnska
grínistanum Ismo Leikola í Tjarn-
arbíói í kvöld kl. 20.
Ari segir Leikola vera frægan
fyrir að vera súr og með stutta
brandara. „Hann er alveg rosalega
finnskur, með mjög skemmtilega
vandræðalegan stíl, það er eins og
hann sé að drepast úr feimni allan
tímann,“ segir Ari. „Það sem gerir
hann svolítið merkilegan er að þeg-
ar hann var orðinn þjóðþekktur í
Finnlandi og búinn að koma sér vel
fyrir þar sem grínisti ákvað hann
að fara til Los Angeles og taka þátt
í keppni um fyndnasta mann heims
árið 2014,“ segir hann. Skemmst er
frá því að segja að Leikola vann
keppnina, sem kallast Funniest
Person in the World og er haldin á
vegum Laugh Factory. „Í kjölfarið
flutti hann til Bandaríkjanna og er
að troða upp eins og brjálæðingur, í
spilavítum í Las Vegas og ég veit
ekki hvað og hvað,“ segir Ari. „Ég
myndi segja að hann væri norrænn
og finnskur í fasi en efnistökin hans
séu alþjóðleg.“
Enginn sem tapar eða sigrar
Ari og Leikola eru báðir á leið á
stórar hátíðir með sýningarnar sín-
ar; Leikola á Just for Laughs í
Montreal og Ari á Edinburgh
Fringe Festival. „Hann kemur í
gegnum Ísland á leið sinni til Mont-
real og við ætlum að nota tækifærið
og renna í gegnum ensku sýning-
arnar okkar,“ segir Ari.
Hann segir að þó að nafnið á
uppistandinu gefi til kynna ein-
hvers konar keppni sé það ekki svo.
„Við erum hvor með sitt uppistand-
ið; ég fyrir hlé og hann eftir. Við
munum líklega báðir tala eitthvað
um Norðurlöndin en þessu er bara
stillt svona upp í gríni. Það verður
enginn sem tapar eða sigrar.“
Lifir á uppistandi
Ari segir Leikola hafa komið
fram á Íslandi áður, á tveimur sýn-
ingum með Mið-Íslandi. „Það var
rétt áður en hann fór til LA og varð
fyndnasti maður í heimi. Nú er
hann svokallaður „working comed-
ian“, hann vinnur við uppistand og
nær að lifa vel á því.“
Því þekki hann ágætlega til Ís-
lands, en það sé nokkuð mikill sam-
gangur milli íslenskra og finnskra
uppistandara um þessar mundir.
Nefnir Ari m.a. André Wickström
sem hefur komið oft til landsins.
„Þetta er svona íslensk-finnsk vin-
agrínistaklíka sem er að myndast.
Ég spái því að fleiri Finnar komi
hérna með tíð og tíma.“
Ari heldur að sýningin í kvöld
verði skemmtileg og minnir á að
hún sé öll á ensku og því geti hver
sem er mætt á hana, hvort sem það
er Íslendingur, Finni eða einhver
annar.
„Við verðum með þessa einu sýn-
ingu í Tjarnarbíói og gerum ráð
fyrir að fylla hana,“ segir Ari að
lokum.
„Íslensk-finnsk vinagrínistaklíka“
Grínvinir Ari Eldjárn og finnskur kollegi hans og vinur, Ismo Leikola, verða með uppistand í Tjarnarbíói í kvöld.
Ari Eldjárn og Ismo Leikola með
uppistand í Tjarnarbíói Leikola
fyndnasti maður í heimi árið 2014
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Þetta er áttunda sýningin sem
Sveinssafn stendur fyrir í Krýsuvík
þar sem höfuðáherslan hefur verið
að draga fram ýmislegt í list Sveins
Björnssonar sem ekki hefur verið
hugsað almennilega út í hingað til,“
segir Erlendur Sveinsson sem
stendur ásamt bræðrum sínum,
Þórði og Sveini, fyrir sýningaropnun
í safni tileinkuðu föður þeirra,
Sveinssafni, á sunnudag klukkan 15.
Ber sýningin yfirskriftina Móðir
jörð og Steinninn ég.
Erlendur segir safnið góðum kosti
búið og því sé hægt að rannsaka
verk Sveins í þaula. „Það gefur okk-
ur möguleika á að koma með ábend-
ingar sem listamenn myndu kannski
ekki gera en söfn geta leyft sér.
Flest sem þarna kemur fram heyrði
ég listamanninn aldrei tala um.
Við erum að rýna í teiknibæk-
urnar hans í fyrsta sinn og þegar
grannt er skoðað má sjá hvernig
listamaðurinn vinnur úr lífsreynslu
sinni í myndum, eins og lesa má út
úr myndunum sem urðu til í
tengslum við andlát eiginkonunnar,“
segir Erlendur. Sólveig Erlends-
dóttir lést aðeins 51 árs að aldri eftir
langvarandi veikindi. „Þetta eru til-
finningaþrungnar myndir.“
Skemmtilegar uppákomur
„Sveinn tjáir upplifun sína af því
þegar konan hans liggur banaleguna
og fram yfir andlátið í gegn um
myndstefið Móður jörð,“ segir Er-
lendur. Þess vegna hafi hann málað
heilan vegg í safninu svartan og fyllt
hann af þessum myndum.
Erlendur segir ýmislegt skemmti-
legt hafa gerst meðan á uppsetningu
sýningarinnar stóð. „Fyrir tveimur
árum þegar hugmyndin að sýning-
unni var að fæðast vorum við bróðir
minn eitthvað að bardúsa uppi í húsi.
Af einhverri rælni þá opnum við
skúffu í borði og komu þá í leitirnar
einar tíu, fimmtán olíupastelmyndir,
allar tilbrigði við steinaþema sýning-
arinnar. Það var einskonar ábending
um að hugmyndin væri góð. Ég lét
innramma þær sem myndaröð og
hún prýðir ganginn hjá okkur.
Svo þegar ég var að mála veggina,
meðal annars þann svarta, vantaði
mig pappaspjöld til að hlífa gólfinu.
Þegar ég var að ganga frá þessum
spjöldum eftir nokkrar tarnir sem
teygðu sig inn í vinnsutofu, og var
reyndar búinn að ganga frá spjöld-
unum áður en kom að viðbótinni í
vinnustofunni, þá sé ég að á und-
irhlið eins spjaldsins er rissuð teikn-
ing af Móður Jörð sjálfri í garði
Sveinshúss. Svolítið illa farin, ekki
út af vinnunni minni heldur vegna
þess að það var greinilega engin ætl-
un Sveins að varðveita þessa mynd.
Þetta finnst mér vera eitthvert teikn
um það að við séum á réttri leið.“
Barátta við höfuðskepnurnar
Sveinssafn er til húsa í Sveinshúsi
sem stendur upp af Grænavatni í
Krýsuvík. Húsið hafði Sveinn til af-
nota fyrir listsköpun sína um árabil.
Sveinssafn var stofnað árið 1997 í
kjölfar andláts listamannsins og er
því 20 ára í ár.
„.Í vetur háði húsið gríðarleg bar-
áttu við jörð, vatn og vind. Svo hafði
verið kveikt í Krýsuvíkurkirkju,
megin orkuveri safnsins, og þá vor-
um við komin með eldinn í fangið og
þar af leiðandi allar höfuðskepn-
urnar fjórar. Kannski er þá eitthvað
rétt í því þá að taka landið svona
sterkt inn, Maddonnuna sem liggur í
landinu og steina landsins Við
fáumst við landið og þessi öfl í kring-
um okkur í sýningunni.“
Opið verður í Sveinshúsi fyrsta
sunnudag í mánuði yfir sumarmán-
uðina frá kl. 13.00 til 17.30 og fyrir
hópa á öðrum tímum eftir sam-
komulagi. Leiðsögn og kaffiveit-
ingar fylgja á opnunardögum. Mun
sýningin standa til ársloka 2018.
„Teikn um það að við
séum á réttri leið“
Ný sýning á verkum Sveins Björnssonar opnuð í Sveins-
safni í Krýsuvík á morgun 20 ár liðin frá stofnun safnsins
Upphenging Erlendur Sveinsson önnum kafinn við upphengingu sýning-
arinnar í safninu sem tileinkað er list föður hans, Sveins Björnssonar.