Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 45

Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Sænska ungstjarnan og gítarleik- arinn Susanna Risberg leikur á sumartónleikum veitingahússins Jómfrúarinnar í Lækjargötu í dag ásamt Eirik H.J. Lund sem leikur á kontrabassa og Jonathan Lund- berg trommuleikara. „Þetta kemur í gegnum samstarf okkar á Jómfrúnni við fyrirbæri sem heitir Jazz i parken í Svíþjóð,“ segir Sigurður Flosason, tónlistar- maður og umsjónarmaður sumar- tónleikanna. „Þeir skipuleggja djasstónleika í almenningsgörðum þar, sem er reyndar skemmtilegt fyrirbæri. Ég er nýlega búinn að spila sjálfur á slíkum tónleikum hjá þeim í Stokkhólmi, fyrir 1.300 manns í garði um síðustu helgi. Við skiptumst eiginlega á því þau senda okkur tónlistarmann á móti.“ Susanna Risberg er upprennandi tónlistarmaður sem hefur notið nokkurra vinsælda og gefið út tvær hljómplötur. „Þetta er ung kona, framarlega í yngri kynslóð- inni í Stokkhólmi,“ segir Sigurður. „Hún spilar svona djass með rokk- áhrifum og lýrísku yfirbragði. Þetta er músík sem er bæði nú- tímaleg og aðgengileg í senn.“ Sigurður segir ekki erfitt að fá hæfa tónlistarmenn til að spila á tónleikunum í tónleikaröðum Jómfrúarinnar hvert sumar. „Miklu færri komast að hjá okkur en vilja. Það er aldrei sama pró- grammið tvö sumur í röð. Margir hafa oft komið fram á tónleikunum í gegnum árin en það eru alltaf einhverjir nýir á hverju ári sem hafa aldrei komið. Þeir þekktu og minna þekktu; þeir ungu og gömlu; Íslendingar og einstaka út- lendingar sem stelast með inn. Þetta er rosalega skemmtilegt fyr- irbæri og vel tekið í það af Reyk- víkingum, allavega ef veðrið er miðlungsgott og upp úr.“ Mæta með regnhlífar og teppi Sigurður hefur staðið fyrir tón- leikum á Jómfrúartorgi í tvo ára- tugi og segir stemninguna þar jafnan hafa verið góða en hún breytist þó þegar leikið er úti. „Stemningin er svolítið öðruvísi ut- andyra, sérstaklega ef veðrið er gott. Þá er skemmtilegur fílingur. Að sjálfsögðu kemur fyrir að veðr- ið sé slæmt. Þá kemur færra fólk en sumir áheyrendur eru ótrúlega þrautseigir; mæta með regnhlífar og teppi. Það er alveg hægt að hafa það fínt þannig líka.“ Tónleikarnir með Susönnu Ris- berg-tríóinu standa frá kl. 15 til 17 í dag og aðgangur er ókeypis. Lýrískur rokkdjass  Sænska tónlistarkonan Susanna Ris- berg á sumartónleikum Jómfrúarinnar Ungstjarna Susanna Risberg leikur á sumartónleikum Jómfrúarinnar. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Á Skálholtshátíð í ár er þess sér- staklega minnst að 500 ár eru liðin frá upphafi siðbótarinnar, sem Mar- teinn Lúter hratt af stað þegar hann mótmælti sölu aflátsbréfa í október 1517. Klukkan 16 í dag, laugardag, hefjast hátíðartónleikar í Skálholts- kirkju undir stjórn Benedikts Krist- jánssonar tenórs og Jóns Bjarnason- ar orgelleikara þar sem flutt verður kantata eftir Johann Sebastian Bach sem byggð er á sálmi Lúters „Erhalt uns Gott bei deinem Wort“ eða „Halt oss, Guð, við þitt hreina orð“. Auk Benedikts koma fram þau Hildigunnur Einarsdóttir altsöng- kona og Oddur Arnþór Jónsson bassi. Skálholtskórinn syngur svo upphafs- og lokakór. „Hvergi betri hljómur“ „Benedikt er í rauninni aðal- sprautan í verkefninu. Hann býr í Berlín og hefur atvinnu af því að ferðast milli heimshorna og syngja í uppsetningum á mörgum stærstu verkum kirkjutónbókmenntanna,“ segir Jón. Sjálfur hefur Jón verið organisti í Skálholtskirkju frá árinu 2009. Á þeim tíma hefur hann haft aðkomu að sumartónleikum Skál- holts á hverju ári og hjálpað gestaf- lytjendum á tónleikunum að aðlaga tónlist sína sunnudagsmessunni. „Það er eiginlega hvergi betri hljómur en í þessari kirkju.Stærsta atriðið á tónleikunum er kantata Bachs, sem hann samdi árið 1725 við texta sem óþekktur samstarfsmaður hans orti út frá sálmi Lúters,“ held- ur Jón áfram. „Fyrst ætlum við þó að gera svolítið skemmtilegt: Bene- dikt verður með kynningu á stíl- brögðum Bachs og tekur sýnishorn úr verkum hans til þess að fólk átti sig á hverju Bach er að reyna að ná fram. Við viljum að fólk átti sig á því hvað hann gerir í tónlistinni til þess að ná fram áhrifum í samhengi við orð og merkingu textans. Það er mjög skemmtilegt að hafa svona dæmi fyrir áheyrendur sem hafa kannski ekki áttað sig á því hvað gengur á. Það er gömul og góð hefð að vera með svona kynningar áður en byrjað er að spila verkið.“ Tyrkjamorð verður fjandamorð Jón segir flutninginn á kantötu Bachs eftir texta Lúters verða há- punkt tónleikanna en þó verði ýmis önnur atriði flutt. „Það verður tekið lag sem Róbert Abraham Ottósson útsetti, „Guð, helgur andi“, og svo verðum við með aðra kafla úr Bach, t.d. „Slá þú hjartans hörpustrengi“. Við völdum auðvitað Lúterskantöt- una vegna þess að nú er Lútersár. Þessi kantata eftir hann Lúter er númer 126 af nærri 200 sem hafa varðveist eftir hann. Benedikt er einmitt nýbúinn að taka þátt í hljóð- ritun á henni fyrir upptöku- fyrirtækið Carus, og er hún nýút- komin á geisladiski. Hin verkin sem við völdum tengjast ekki Lúter en þau tengjast vissulega Skálholti og „Heyr himna smiður“ var náttúrlega frumflutt þar,“ segir Jón. Aðspurður hvort hann telji tilvís- anir í samtímastjórnmál í texta Lút- ers enn eiga erindi við nútímahlust- endur svarar Jón því að Lúter eigi alltaf erindi en þó verði auðvitað að hafa í huga að hann skrifaði inn í sinn samtíma, eins og önnur skáld. Textinn hafi reyndar verið ritskoð- aður frá frumútgáfu Lúters. Sálmur Lúters hafi upprunalega verið skrif- aður stuttu eftir að Austurríki tapaði stríði um Ungverjaland gegn Ottóm- anveldinu og því hafi páfinn og Tyrkjaveldið þótt mestu ógnirnar gegn heimi Lúters á þeim tíma. „Það er nefnilega búið að taka út orðið „Türkenmord“ eða Tyrkjamorð. Orðið papst eða páfi er fjarlægt og Tyrkjamorð gert að „fjandamorði.“ Þetta var þó ekki mildað svona fyrr en eftir daga Bachs,“ segir Jón. Hátíðartónleikar Skálholtshátíðar verða í dag kl. 16, sem fyrr segir, og á morgun heldur Jón orgeltónleika kl. 11 þar sem efnisskráin er samsett af orgelverkum eftir Bach. „Við und- irbúning þessa viðburðar ber sér- staklega að þakka frú Margréti Bóasdóttur, vígslubiskupsfrú og verkefnisstjóra kirkjutónlistar, fyrir ómetanlega aðstoð við að manna hljómsveitina og aðstoð á kóræfing- um,“ segir Jón. Lúter ómar í Skálholti  Verk Bachs eftir texta Marteins Lúters á hátíðartón- leikum í Skálholtskirkju  500 ár frá upphafi siðbótarinnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Kantata „Stærsta atriðið á tónleikunum er kantata Bachs, sem hann samdi árið 1725 við texta sem óþekktur samstarfsmaður hans orti út frá sálmi Lút- ers,“ segir Jón Bjarnason organisti um Skálholtshátíðina í ár. Þýski bassabarítónsöngvarinn Andreas Schmidt kemur fram á fjórðu tónleikum Sumartónleika í Akureyrarkirkju á morgun kl. 17 ásamt Ingu Rós Ingólfsdóttur selló- leikara og Herði Áskelssyni org- anista. Þau munu flytja kirkjulega tónlist, gamla og nýja, eftir tón- skáldin Schutz, Bach, Dvorák, Mendelssohn, Saint-Saëns, Árna Thorsteinsson og frumflytja nýtt verk eftir akureyrska tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson sem var sér- staklega samið fyrir tríóið og nefn- ist „Sól ek sá“. Hjónin Inga Rós og Hörður fóru til náms í Düsseldorf í Robert Schu- mann-tónlistarháskólann haustið 1976 þar sem þau kynntust Schmidt en hann og Hörður voru þá í fram- haldsnámi í kirkjutónlistardeild, að því er fram kemur í tilkynningu. „Hörður hélt áfram með kirkju- tónlistina á meðan Andreas fór al- farið yfir í söng og lærði hjá Inge- borg Reichelt og Dietrich Fischer-Dieskau. Á námsárunum mynduðu þau tríó sem kom fram á tónleikum í Þýskalandi og á Íslandi, auk þess sem þau komu fram á tón- leikum í sjónvarpssal íslenska sjón- varpsins. Mótettukór Hallgríms- kirkju kom í fyrsta sinn fram á tónleikum þar sem Andreas Schmidt söng tvær einsöngs- kantötur eftir Bach 1982 í kapell- unni í suðursal Hallgrímskirkju,“ segir í tilkynningunni. Andreas Schmidt þreytti frum- raun sína á óperusviðinu sem Mala- testa í óperunni Don Pasquale eftir Donizetti árið 1984. Hann hefur komið fram í flestum þekktustu óp- eruhúsum heims, La Scala, Covent Garden og á Metropolitan. Hann er einnig virtur óratóríu- og ljóða- söngvari og kenndi við Carl Maria von Weber-tónlistarskólann í Dres- den frá 2005 og frá 2010 við Hoch- schule für Musik und Theater München. Raddfagur Andreas Schmidt. Heimskunnur söngv- ari í Akureyrarkirkju  Andreas Schmidt á Sumartónleikum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.