Morgunblaðið - 22.07.2017, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Nafn mannsins sem lést í Gullfossi
2. Lést eftir vinnuslys í Keflavík
3. „Enginn getur bjargað mér núna“
4. Sýslumaður kyrrsetur eignir …
Hildur Guðnadóttir tónskáld semur
tónlist við væntanlega kvikmynd um
Maríu Magdalenu sem frumsýnd
verður í desember í Bandaríkjunum.
Þekktir kvikmyndaleikarar fara með
helstu hlutverk í myndinni, þau Roon-
ey Mara sem leikur Maríu, Joaquin
Phoenix sem leikur Jesú og Chivetel
Ejiofor sem leikur Pétur. Kvikmyndin
heitir Mary Magdalene og er leikstjóri
hennar Garth Davis sem á m.a. að
baki kvikmyndina Lion.
Hildur hefur verið að gera það gott
í Hollywood en hún vinnur um þessar
mundir að tónlist við kvikmyndina
Soldado sem er framhald kvikmynd-
arinnar Sicario sem Jóhann Jóhanns-
son samdi tónlist við. Einnig má
nefna að „Heyr himnasmiður“, tón-
verk Þorkels Sigurbjörnssonar við
sálm Kolbeins Tumasonar, í flutningi
Hildar, heyrist í tveimur þáttum hinn-
ar vinsælu þáttaraðar The Hand-
maid’s Tale og einnig annað lag eftir
Hildi, „Erupting Light“.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Semur tónlist við
Maríu Magdalenu
David Cassan frá Frakklandi er org-
anisti helgarinnar á Alþjóðlegu orgel-
sumri í Hallgrímskirkju sem haldið er í
samstarfi við Alþjóðlegu orgelkeppn-
ina í dómkirkjunni í Chartre í Frakk-
landi. Verðlaunahafar fá að launum að
halda tónleika á orgelsumrinu og
hlaut Cassan fyrstu verðlaun keppn-
innar í fyrra. Í dag kl. 12, mun Cassan
flytja tónlist eftir G. Händel, J. Sibe-
lius og leika spuna og á
morgun kl. 17 mun
hann leika tónlist eft-
ir J.S. Bach, Saint-
Saëns, Vierne, Widor,
Dupré, Stravinsky og
einnig leika spuna.
Verðlaunaorganisti í
Hallgrímskirkju
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað og úrkomulítið sunnan til, rigning eða súld með köflum
vestast, en birtir heldur til inn til landsins. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á sunnudag Suðlæg átt 5-13 m/s, en 10-18 á norðanverðu Snæfellsnesi fram eftir degi.
Skýjað um landið sunnan- og vestanvert og dálítil væta vestast, en talsverð rigning á
Snæfellsnesi um tíma. Léttskýjað að mestu norðan- og austanlands. Hiti 13 til 23 stig,
hlýjast NA-lands.
„Í hvert skipti sem hann reimar á sig
körfuboltaskóna bætir hann sig í
íþróttinni,“ segir meðal annars í um-
sögn um landsliðsmanninn Tryggva
Snæ Hlinason í Morgunblaðinu í dag.
Strákurinn úr Bárðardalnum hefur
risið hratt upp á stjörnuhimininn og
er eitt ótrúlegasta ævintýri sem
íþróttahreyfingin hefur séð, segir
Benedikt Guðmundsson. »4
Þekkti bara dráttarvélar
en ekki Jón Arnór
„Frá því að við mættum
þeim síðast hefur okkar
leikur orðið mikið betri og
við teljum okkur vera með
svör við hraða þeirra og
sóknarleik,“ sagði Ásmund-
ur Haraldsson, aðstoðar-
þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu,
fyrir annan leik Íslands á
EM í Hollandi gegn Sviss í
dag. Ekki er búist við breyt-
ingum á liði Íslands. »1,3
Ísland hefur svör-
in gegn Sviss
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er efst í
kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi
sem heldur áfram á Hvaleyrarvelli um
helgina. Hún setti vallarmet í gær
þegar hún lauk leik á fjórum höggum
undir pari. Hún er samtals með
tveggja högga forskot á Valdísi Þóru
Jónsdóttur og Ragnhildi Krist-
insdóttur. Í karlaflokki eru hins vegar
sex kylfingar jafnir í efsta sæti á
fimm höggum
undir pari
vallarins og
spennan
mikil.
»2
Guðrún Brá setti vall-
armet á öðrum hring
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
„Blaðið er nánast eins og nýtt þrátt
fyrir að vera næstum orðið 104 ára,“
segir Kjartan Aðalbjörnsson, eig-
andi fyrsta tölublaðs Morgunblaðs-
ins í upprunalegu prenti.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóv-
ember 1913 og var fyrsta blaðið átta
blaðsíður að stærð. Upphafsmað-
urinn að stofnun blaðsins var Vil-
hjálmur Finsen, en vinur hans og
samherji, Ólafur Björnsson, lagði til
húsnæði og prentaðstöðu í Austur-
stræti.
„Langaafi minn, Aðalbjörn Stef-
ánsson, hefur líklegast keypt þetta
fyrsta tölublað Morgunblaðsins á
þrjá aura og ákveðið að geyma það,“
segir Kjartan en hann fann blaðið í
dánarbúi frænda síns, Aðalbjörns
Aðalbjörnssonar. Aðalbjörn eldri
starfaði sem prentari og var m.a.
einn stofnenda Gutenberg-
prentsmiðjunnar. Aðalbjörn yngri
starfaði hins vegar sem verkamaður
og bjó alla sína tíð á Skólavörðustíg.
Erfitt að meta verðmæti
„Pabbi minn tók við þessum gögn-
um frá Aðalbirni Aðalbjörnssyni ár-
ið 2002 þegar hann lést, en hann fór í
raun aldrei í gegnum þau. Þegar ég
fór síðan að garfa í þessu dóti í síð-
ustu viku fann ég þetta umslag sem
stóð á „Dagblöð: fyrstu tölublöð“,“
segir Kjartan en hann fann eintakið
af Morgunblaðinu í því umslagi
ásamt öðrum fyrstu tölublöðum sem
flestöll eru ekki til lengur. „Það kom
manni dálítið á óvart að finna þenn-
an Mogga innan um allt þetta dót.“
Spurður hvers vegna blaðið hafi
verið geymt svona lengi svarar
Kjartan að það hafi líklega verið
söfnunarárátta, „hann vildi greini-
lega geyma þetta, en blaðinu hefur
líklega verið lítið flett. Það hefur því
í raun verið geymt í þessu umslagi
allan þennan tíma.“
Kjartan hefur enn ekki ákveðið
hvað gera skal við blaðið, en segist
bæði hafa íhugað að selja það og að
koma því á safn. Spurður hvort hann
vilji ekki eiga blaðið sjálfur segir
Kjartan: „Ég eiginlega bara veit það
ekki. Ég hef verið að velta því fyrir
mér hvers virði þetta er en ég hef
enga hugmynd um það.“
Morgunblaðið ræddi við Ara Gísla
Bragason, eiganda Bókarinnar,
fornbókaverslunar í Reykjavík, sem
sagði að verðið lægi algjörlega í því
hversu mikið einhver væri tilbúinn
að borga fyrir það. „Það er mjög erf-
itt að segja til um hversu mikið er
hægt að fá fyrir blaðið og fer það al-
gjörlega eftir framboð og eftirspurn
en framboðið er að minnsta kosti lít-
ið,“ segir Ari Gísli.
Fékk fyrsta Moggann í arf
Fannst í um-
slagi ásamt öðrum
fyrstu eintökum
Morgunblaðið/Ófeigur
Morgunblaðið Kjartan fann fyrsta tölublað Morgunblaðsins í upprunalegu prenti í dánarbúi frænda síns. Kjartan
hefur enn ekki ákveðið hvað gera skal við blaðið, en segist bæði hafa íhugað að selja það og að koma því á safn.
Morgunblaðið/Ófeigur
Fyrstu eintök Mogginn fannst í umslagi ásamt öðrum tölublöðum.