Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.01.2018, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 06.01.2018, Qupperneq 6
NeyteNdur Lítraverð á bensíni hjá Costco og Dælunni hefur hækkað um og yfir 20 krónur frá því um miðjan ágúst. Þrátt fyrir þessa hækkun eru þessi tvö fyrirtæki þau einu, auk valinna sölustaða Ork- unnar X, sem selja bensínlítrann á undir 200 krónum í dag. Opinberar álögur á bensínlítr- ann hækkuðu um 4,15 krónur um áramótin vegna hækkunar bensín- gjalds, sérstaks bensíngjalds og kolefnisgjalds en Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hafði reiknað út að lítrinn til neytenda myndi hækka um 5,2 krónur fyrir vikið. Þessar hækkanir hafa skilað sér í lítraverðið og hækkað listaverð allra söluaðila á nýju ári. Mánuðina þar á undan hafði þróunin sömuleiðis verið til hækkunar. Mestar hækkanir hafa orðið á lítraverði Dælunnar og Costco þar sem verð frá því í ágúst hefur hækkað um rúmlega 11 prósent. Stóru olíufélögin, sem eru almennt með töluvert hærra lítraverð, hafa á sama tíma hækkað lítraverðið um 5,3-5,9 prósent. Fréttablaðið fjallaði um það í október síðastliðnum að verulega hefði dregið saman með Costco, sem þá hafði verið að hækka lítra- verðið hjá sér, og Dælunni sem á sama tíma hafði verið að lækka. Þegar minnstu munaði á verði þeirra var bensínlítrinn 5,9 krónum ódýrari í Costco en hjá Dælunni en dísillítrinn fjórum krónum ódýrari. Í dag er þessi munur 11,8 krónur á bensíni en 15,6 krónur á dísil. Þegar lítraverðið á bensíni var sem lægst hjá Costco, skömmu eftir opnun verslunarinnar síðasta sumar, kostaði lítrinn 166,9 krónur og hefur því hækkað um 20 krónur síðan. Meðlimir í Costco hafa þó á þessum tíma ávallt getað fengið ódýrasta lítrann á dælustöð versl- unar risans í Kauptúni. Í aðdraganda opnunar Costco, fyrri hluta síðasta árs, lækkuðu olíufélögin eldsneytisverð hjá sér nokkuð en frá því í haust hefur verðið leitað upp á við á ný. Run- ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir hækkanirnar í takt við sviptingar á heimsmarkaðsverði. „Um það leyti sem Costco er að koma inn á markaðinn var heims- markaðsverðið, umreiknað í kostn- aðarverð í krónum per lítra miðað við gengi Bandaríkjadals, um 39-40 krónur en í lok árs var það komið í kringum 49 krónur.“ Runólfur segir áhrif Costco hafa verið meiri en sést í skráðu verði olíufélaganna. „Ódýrari stöðvar tóku kipp auk þess sem ríkulegri afsláttarkjör og fleiri afsláttardagar hafa fylgt í kjölfarið hjá félögunum.“ mikael@frettabladid.is Ódýrustu bensínlítrarnir hækkað um tuttugu krónur Eftir hækkanir um áramótin og mánuðina þar á undan eru nú aðeins þrjú fyrirtæki sem selja bensínlítrann á minna en 200 krónur. Lítraverð hjá Costco, Orkunni X og Dælunni hefur hækkað um og yfir 20 krónur síðustu mánuði. Framkvæmdastjóri FÍB segir þróunina í takt við hækkun á heimsmarkaði. Costco hefur látið finna fyrir sér á eldsneytismarkaði. Býður enn lægsta verðið en það hefur hækkað um 19 krónur síðustu mánuði. FréttaBlaðið/SteFán ágúst Október Desember 5. janúar Hækkun kr. Hækkun % Costco 167,9 171,9 180,9 186,9 19,0 kr. 11,4% atlantsolía 198,4 199,9 203,9 208,9 10,5 kr. 5,3% n1 199,9 202,8 206,8 211,8 11,9 kr. 5,9% Dælan 177,8 180,5 193,7 198,7 20,9 kr. 11,7% Olís 199,9 202,8 206,8 211,8 11,9 kr. 5,9% ÓB 198,4 199,9 203,9 208,9 10,5 kr. 5,3% Skeljungur 199,9 202,8 205,8 210,8 10,9 kr. 5,4% Orkan 198,3 199,8 203,8 208,8 10,5 kr. 5,3% Orkan X Skemmuvegi* 177,6 180,6 195,6 196,9 19,3 kr 10,8% *Mismunandi verð á sölustöðum. Frá 196,9 kr. upp í 200,6 kr. Þróun 95 okt. bensínverðs Öll verð án afsláttar eFNAHAGSMÁL „Í mínum huga verð- ur þessi vetur vetur hagræðingar hjá mörgum fyrirtækjum,“ sagði Hall- dór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins (SA), á hádegisfundi samtakanna með fjölmiðlum í gær. Fram kom í máli hans að eftir undraverðan hag- vöxt á umliðnum árum væri íslenska hagkerfið að breyta um takt. Hægt hefði á vexti þess. Eftir ríflega sjö prósenta hagvöxt á síðasta ári gera greinendur ráð fyrir þriggja til fjög- urra prósenta vexti í ár. „Við fundum fyrir þessu í funda- herferð SA um landið á haust- mánuðum síðasta árs þar sem við ræddum við hundruð manna og tugi fyrirtækja. Sagan var alltaf efnislega sú sama: Það hefur gengið vel en við finnum að launakostnaðurinn er farinn að taka í,“ sagði hann. Halldór Benjamín benti á að raun- gengi á mælikvarða launa hefði hækkað verulega undanfarin ár og væri nú álíka hátt og 2007. Hækk- unin væri til marks um þverrandi samkeppnishæfni íslenskra útflutn- ingsgreina. „Ef launaþróunin verður áfram sú sama næstu þrjú ár eins og hún hefur verið síðustu þrjú ár teikn ast upp einhvers konar ómögu- leiki þar sem íslenskir útflutnings- atvinnuvegir verða svo gott sem fullkomlega ósamkeppnishæfir á erlendri grundu. Stundum er mikið svigrúm til launahækkana og stundum lítið. Nú er það lítið og við verðum að laga okkur að því. Við höfum farið í gegnum gríðarlega miklar launa- hækkanir til alls þorra manna sem hafa skilað sér nánast að fullu í vaxandi kaupmætti þar sem verð- bólga hefur á sama tíma verið lág. Við getum ekki treyst á þessa aðferð aftur vegna þess að við verðum ekki svo heppin aftur.“ – kij Vetur hagræðingar fram undan að mati Samtaka atvinnulífsins Ódýrari stöðvar tóku kipp auk þess sem ríkulegri afsláttarkjör og fleiri afsláttardagar hafa fylgt í kjölfarið. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB Við getum ekki treyst á þessa aðferð aftur vegna þess að við verðum ekki svo heppin aftur. Halldór Benja- mín Þorbergsson, framkvæmda- stjóri SA Allir velkomnir á Bílasýninguna í HEKLU í dag! Frumsýning á nýjum Polo og T-Roc, Octaviu RS245 og Scout, forsala á nýjum Skoda Karoq, veltibíllinn, Annie Mist og ótrúleg tilboð á nýjum bílum. Komdu í Kaftár með Dunkin’ Donuts og settu í gírinn fyrir nýja árið. Hlökkum til að sjá þig! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is SAMFéLAG Samtök atvinnulífsins hvetja starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja til að gera gildan sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi, sem samtökin hafa útbúið, að hluta af daglegum rekstri. Í sáttmálanum eru dregin fram gildi sem minnkað geta hættu á einelti, áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum, að því er fram kemur á heimasíðu samtakanna. „Samtök atvinnulífsins hafa útbúið vegg- spjöld með sáttmálanum en þau er hægt að hengja upp í kaffistofum eða á göngum fyrirtækja til að minna á mikilvægi þess að tryggja vellíðan á vinnustöðum, öryggis- kennd og góðan starfsanda.“ – bg Sáttmáli gegn einelti, áreitni og ofbeldi HeiLbriGðiSMÁL Heilbrigðisráð- herra vonar að aukning til sjúkra- húsa og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni í nýsamþykktum fjárlögum verði til þess að laun hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) hækki og verði til jafns á við laun á Landspítalanum. Framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk segir hækkunina langt í frá nægja. Fréttablaðið greindi frá því að laun hjúkrunarfræðinga á SAk væru lægri en laun kollega þeirra á Landspítalanum. Blaðið innti heil- brigðisráðherra svara um hvort vilji væri til að breyta þessu og til hvaða aðgerða ráðherra myndi grípa. „Mönnunarmál eru eitt af því mest aðkallandi í heilbrigðiskerfinu öllu. Það heyrum við alls staðar á landinu,“ segir Svandís. Hildigunnur Svavarsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar á SAk, segir þá hækkun sem stofnunin fái á fjárlögum duga skammt. „Miðað við það sem við lögðum fram þá þurfum við miklu meira til að laga þetta að fullu.“ – sa Ekki nóg til að hækka launin 6 . j A N ú A r 2 0 1 8 L A u G A r d A G u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð 0 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :1 7 F B 1 2 0 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A C -C 2 D 4 1 E A C -C 1 9 8 1 E A C -C 0 5 C 1 E A C -B F 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.