Fréttablaðið - 06.01.2018, Blaðsíða 34
að vernda börn gegn ofbeldi í allri
dagskrá kirkjunnar. Komi svona mál
upp þá er fyrsta skylda prestsins að
sinna þörfum barnsins og styðja það
og fjölskyldu þess,“ segir Gavin.
Í starfsreglunum lýsir kirkjan yfir
vanþóknun á hvers kyns líkamlegri,
kynferðislegri eða andlegri misnotk-
un eða ofbeldi innan kirkjunnar og
utan. Í reglunum heitir kirkjan því
einnig að hún tilkynni allar stað-
hæfingar barna yngri en átján ára
um hvers kyns ofbeldi og muni
starfa með yfirvöldum og öðrum
sérfræðingum til að bera kennsl á
gerandann og til að vernda börnin.
Þá vilji kirkjan hálpa þolendum
kynferðisofbeldis.
Sá sem brýtur á barni á ekki
heima í söfnuðinum lengur,“ segir
Gavin. „Hann á skilið refsingu
lögum samkvæmt. Guð getur fyrir-
gefið öll brot, en það er mitt hlut-
verk og fyrsta skylda að vernda
barnið og því fær sá sem brýtur á
barni ekki að taka þátt í safnaðar-
starfi,“ segir Gavin og segir mikil-
vægt að huga að því að það sé ekki
hægt að koma í veg fyrir kynferðis-
brot í samfélaginu. En það sé skylda
að reyna það. „Við getum ekki
komið í veg fyrir það vegna þess að
maðurinn hefur frjálsan vilja en við
getum sinnt skyldu okkar að vernda
börn, þegja ekki, bregðast við.“
Í reglum kirkjunnar eru skýr til-
mæli um viðbrögð þegar barn til-
kynnir um misnotkun. Barninu
skuli trúað undanbragðalaust, ekki
megi slá málinu á frest, hringja eigi í
Neyðarlínuna eins fljótt og kostur er
og þá megi ekki hafa nein samskipti
við grunaðan geranda varðandi
samtalið við barnið.
Þá eru safnaðarmeðlimir minntir
á refsiákvæði um að sá sem láti hjá
líða að tilkynna um illa meðferð
barns og að það varði sektum, varð-
haldi eða fangelsi allt að tveimur
árum.
„Við bjuggum áður á Írlandi þar
sem ég þjónaði með fjölskyldunni,
þar bjuggum við í átta ár. Umræðan
um kynferðisbrot innan kaþólsku
kirkjunnar voru áberandi þar. Brot
sem hafði verið haldið leyndum
og þögguð. Samfélagið þar, eins og
víðar þar sem slík leynd hefur verið
viðhöfð, er í sárum, sárin eru lengi
að gróa. Sem kristið fólk höfum við
ríka skyldu til að takast á við þetta.
Megum ekki láta þetta viðgangast,“
segir Gavin.
Hvenær er beitt safnaðaraga? Til
dæmis með brottvísun úr söfnuð-
inum? „Þegar um alvarlegar syndir
er að ræða þar sem einstaklingur
afneitar trú og brýtur lög Guðs,“
segir Gavin.
Þú ert þá að tala um morð, nauðg-
un, þjófnað og slíka glæpi? „Já.“
En hvað með til dæmis framhjá-
hald, heimilisofbeldi og slíkt? „Það
er alveg ljóst að þegar manneskja
lifir þvert á orð Guðs getur hún ekki
verið hluti af söfnuðinum, aðvent-
istar lifa eftir orði Guðs.“
Hvað með hjónaskilnað? Fram-
hjáhald? „Við höldum hjónabandið
í heiðri, manns og konu. Teljum það
mikilvægt.
Og safnaðarmeðlimir þurfa að
borga tíund? „Ekki að borga, heldur
gefa aftur til Guðs,“ segir Gavin.
„Við störfum eftir heimsskipulagi.
Tíundin fer í laun presta. Hér í okkar
söfnuði eru öll laun presta jöfn. Það
eru engar aukagreiðslur til okkar
fyrir störf okkar. Svo sem skírn. Ef
kirkja verður vettvangur viðskipta
er hún ekki traust. Það er mitt álit,“
segir Gavin „Við rekum líka hjálpar-
starf víða um heim þar sem áhersla
er lögð á samhjálp og menntun.“
Hvað með kynin? Hafa þau mis-
munandi hlutverkum að gegna í söfn-
uðinum eða kirkjunni? „Kynin eru
jöfn fyrir Guði, bæði kona og karl
eru sköpuð í mynd Guðs. Mér finnst
það alveg skýrt en aðrir gætu túlkað
sköpunarsöguna öðruvísi. Textar í
Biblíunni endurspegla annan menn-
ingarheim en er í dag. Endurspegla
það valdamisræmi sem var þá og er
enn víða um heim. Kirkja sjöunda
dags aðventista er heimssamtök og
því svolítið tekist á um ýmsa hluti í
kosningum því menning landanna
sem við störfum í er mismunandi.
Á Íslandi hefur starfað kvenprestur
og í Afríku þó nokkrir,“ segir Gavin.
„Við erum að færast í átt að jafn-
rétti.“
En samkynhneigð? Er samkyn-
hneigðum útskúfað úr söfnuðinum?
„Samkynhneigðir geta verið í söfn-
uðinum en það er ætlast til þess að
þeir stundi skírlífi. Þetta er grund-
vallarreglan,“ segir Gavin. „Auð-
vitað breytast samfélög og menn-
ing þeirra. Margt er breytt, en þetta
breytist ekki og er grundvallarregla,
hjónaband karls og konu sem við
höldum í heiðri.“
Eitt af því sem einkennir aðvent-
ista er áhersla þeirra á sjálfsrækt.
Þeir leggja mikla áherslu á að safn-
aðarmeðlimir hlúi jafnhliða að sál,
huga og líkama. „Við borðum hina
upprunalegu fæðu sem Guð gaf
manninum samanber sköpunar-
söguna. Borðum helst hreina fæðu.
Í dæmisögunni um Örkina hans Nóa
sem við segjum gjarnan börnum er
talað um dýrin á leið til arkarinnar.
Sum dýr komu í pörum, tvö og tvö.
Þau teljast til óhreinnar fæðu. Önnur
komu sjö og sjö saman og teljast til
hreinnar fæðu. Við borðum ekki
svínakjöt, ekki krabbakjöt,“ segir
Gavin og staðfestir einnig að helst
eigi aðventistar ekki að borða annan
fisk en með hreistur. Sum sé ekki
skötusel. Það má heldur ekki borða
sel eða hval. „Okkur finnst mikilvægt
að aðhyllast grænmetisfæði.“
Aðventistar eru á móti reyking-
um, áfengis- og eiturlyfjaneyslu.
Leggja ríka áherslu á hvíld. Ekki bara
á laugardögum heldur líka í lífinu
sjálfu til að gæta að andlegri heilsu.
Gavin útskýrir þessa sterku áherslu
aðventista. „Í sköpunarsögunni er
talað um að maðurinn sé skapaður
í mynd Guðs. Við erum hugur, sál og
líkami og aðventistar hafa alltaf haft
mjög skýran skilning á tengslum
hugar, sálar og líkama. Kristnir leið-
togar vilja sumir einblína á andlegu
hliðina, við viljum líta á alla þessa
þætti sem samverkandi heild. Ef við
erum líkamlega veik þá hefur það
áhrif á hugann. Mannleg tilvera í
mynd Guðs snýst um að leggja rækt
við alla þessa þætti til þess að vera
sú manneskja sem Guð vill að við
séum.“
Ekki besta útgáfan að sjálfum þér,
heldur besta útgáfan sem Guð vill
að þú sért? „Já, þetta er í tísku núna.
Sjálfsrækt sem aðventistar hafa lagt
áherslu á í meira en öld,“ segir Gavin
og brosir.
„Við rekum fjölmörg sjúkrahús
víða um heim þar sem eru stund-
aðar rannsóknir um þessa samverk-
andi þætti,“ segir Gavin og greinir til
að mynda frá verkefni í kirkjunni
sem hann var prestur í á Írlandi.
„Við vorum með prógramm fyrir
þunglynda sem læknar komu að í
kirkjunni. Við viljum aðstoða fólk
við að lifa í Guðs mynd og heilsu-
samlegum lífsstíl. Viljum hjálpa
fólki að takast á við sjúkleika. Sam-
band okkar við Guð verður betra
þegar við búum við góða heilsu.“
Aðventistar hafa ekki viljað reka
spítala hér á landi? „Nei, það er
dýrt og krefst meiri mannafla en við
höfum yfir að ráða hér á landi,“ segir
Gavin. „En okkur hefur auðnast að
reka hér skóla,“ segir hann og lítur
út um gluggann að Suðurhlíðarskóla
þar sem eiginkona hans starfar sem
kennari.
Sjúkrahúsið í Celebration
„Þú veist um bæinn Celebration
sem Disney byggði í Flórída?“ spyr
Gavin. Það rifjast upp fyrir blaða-
manni fréttir frá tíunda áratugnum
af þorpi sem átti að verða eins konar
fyrirmyndarþorp í heimi sem hafði
farið villur vegar. Útópía. Í Celebrat-
ion átti að leggja áherslu á ferska
fæðu og hreyfingu. Áfangastaður
sálarinnar var slagorðið eitt sinn.
Trúarlíf Íslendinga 2 af 10
Kynna skaparann í Raufarhólshelli
Opnað var fyrir gestí í Raufarhólshelli í Leitarhrauni austan Bláfjalla
í Þrengslunum í sumar og kostar 6.400 krónur að skoða hellinn.
Í sumar heimsóttu tíu þúsund manns hellinn. Landið er í eigu
Kirkju sjöunda dags aðventista sem leigir fyrirtækinu Raufar-
hól landið. Stærsti fjárfestirinn er fjárfestingarsjóður á vegum
Landsbréfa, Icelandic Tourism Fund. Þá er Skúli Sigfússon,
kenndur við Subway, einn fjárfesta.
Aðventistar ákváðu að taka hellinn í gegn fyrir nokkru. Pöllum
var komið upp, stígar hlaðnir og ljósabúnaði komið fyrir. Eiríkur
Ingvarsson, aðventisti og fjárfestir, var í forsvari fyrir verkefninu og
leiddi saman fjárfesta.
Raufarhólshellir vakti mikla athygli eftir að Russell Crowe og Anthony Hopkins voru þar við
tökur vegna kvikmyndarinnar Noah.
Aðventistakirkjan hefur átt eignina í marga áratugi. Á tímabili fylgdi henni kostnaður en
nú gefur hún af sér að sögn Björgvins Ibsen, fjármála- og eignastjóra aðventista. Nú þegar
hellirinn sé í útleigu og gefi af sér geti söfnuðurinn hugað að fleiri tækifærum.
Með því að leigja Raufarhóli hellinn segist söfnuðurinn vera að framvísa og leyfa þeim að
sýna gestum sköpunina. Gavin vísar í Matteusarguðspjall í kynningarmyndbandi um hellinn:
„Gakk inn í fögnuð herra þíns.“
Gavin segir frá því að Disney hafi
valið sjöunda dags aðventista til að
reka sjúkrahús bæjarins eftir stórt
útboð. Og þar kemur litríki kassinn
við sögu og útskýrir heilsustefnu
aðventista sem þeir hafa stundum
kynnt sem Creation Health.
C Stendur fyrir Choice eða val. R
stendur fyrir Rest eða hvíld. E stend-
ur fyrir Environment eða umhverfi.
A stendur fyrir Activity eða virkni.
T stendur fyrir Trust eða traust. I
stendur fyrir Interpersonal relat-
ions eða tengslanet. O stendur fyrir
Outlook eða viðhorf og N stendur
fyrir Nutrition eða næringu.
„Hér er hugtakinu heilsa skipt
upp í átta þætti til einföldunar og
þetta er áhugaverð leið sem nær til
margra. Fólk nær virkilega árangri
með því að skoða þetta í einföldum
skrefum,“ segir Gavin og bendir á
próf sem kannar hversu vel mann-
eskja stendur að vígi í hverjum
þætti. Lesendur geta spreytt sig
á slíku prófi í vefútgáfu þessarar
greinar.
„Það að manneskja þrífist betur
þegar hún leggur alúð við þessa
þætti í eigin lífi er ekki bara hug-
myndir eða frasar, heldur stutt af
rannsóknum.“
En hvers vegna er Gavin á Íslandi?
Nú, ég á íslenska konu. Ég hef búið
og starfað hér áður og líkar vel lífið
hér. Ég hef sterka köllun og sannfær-
ingu fyrir því að vera hér á Íslandi.
Ég fann það strax þegar ég steig út úr
flugvélinni. Hér á ég að vera.“
Gavin vinnur að doktorsritgerð
sinni sem fjallar um möguleika ein-
staklinga til að trúa. Hann vill finna
praktískar leiðir fyrir fólk til að lesa
Biblíuna. „Það að hjálpa fólki að
rækta sambandið við Guð er mitt
áhugamál. Upplýsingar einar og
sér hjálpa ekki fólki að breytast. Ef
ég get hjálpað fólki að lesa Biblíuna
þannig að það gagnist, ekki eins
og heimspekirit, heldur til að það
þroskist í trú sinni þá hef ég gefið
fólki von og tækifæri.“
1
skóli
Söfnuðurinn
á og rekur
Suðurhlíðar-
skóla sem
þó er opinn
börnum úr
öðrum trú-
félögum.
6
kirkjur
Söfnuðurinn
rekur
kirkjur á
Akureyri, í
Hafnarfirði,
Reykjanesbæ,
Reykjavík, á
Selfossi og í
Vestmanna-
eyjum.
↣
Kynin eRu jöfn fyRiR
Guði, bæði KonA oG KARl
eRu SKöpuð í mynd
GuðS. méR finnSt þAð
AlVeG SKýRt.
Raufarhólshellir FRéttablaðið/Vilhelm
6 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
0
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:1
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
C
-E
A
5
4
1
E
A
C
-E
9
1
8
1
E
A
C
-E
7
D
C
1
E
A
C
-E
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K