Fréttablaðið - 06.01.2018, Blaðsíða 116
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann
atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
31.12.17-
06.01.18
Bestu myndBönd
ársins 2017
Lífið smalaði saman nokkrum
álitsgjöfum til að velja nokkur af
uppáhaldsmyndböndum sínum
frá árinu 2017. Myndbandið
við B.O.B.A með JóaPé og Króla
komst á lista. Sömuleiðis mynd-
bandið við Fullir
vasar með
Aroni Can og
myndbandið
I’d Love með
Auði.
áramótaskaupsverkið
Rögnvaldur Skúli er maðurinn á
bak við olíumálverkið sem spilaði
stórt hlutverk í Skaupinu. Verkið
málaði hann á nokkrum dögum.
keyptar vinsæLdir
Förðunarfræð-
ingurinn Lilja
Þorvarðardóttir
vakti í vikunni
athygli á að til-
tölulega auðvelt
er að kaupa sér
fylgjendur á sam-
félagsmiðlum. Hún segir algengt
að svokallaðir áhrifavaldar kaupi
sér fylgjendur og fái svo auglýs-
ingatækifæri og tekjur út á fjölda
fylgjenda. „Mig langar bara að fólk
viti af þessu. Þetta er svo ótrúlega
algengt.“
gLænýtt Bardaga-
íþróttaféLag
Annar anginn úr íþróttafélaginu
Mjölni opnar brátt stöð en einn
af stofnendum Mjölnis tilkynnti
í vikunni að hann ætlaði sér að
opna nýja bardaga- og líkams-
ræktarstöð sem hefur
fengið nafnið Týr. Pétur
Marinó Jónsson, einn
helsti sérfræðingur
landsins um blandaðar
bardagalistir, segir að
það verði að koma í ljós
hvort það sé markaður
fyrir mörg bardagaíþrótta-
félög á Íslandi.
Í vikunni voru fréttir um sam-félagsmiðlastjörnur, eða fólk sem dreymir um að verða slíkar
stjörnur, sem kaupa sér vinsældir
á miðlum á borð við Instagram
áberandi. Vinsældirnar eru í formi
fylgjenda, „like-a“ og athugasemda
á samfélagsmiðlum. Keyptir fylgj-
endur á samfélagsmiðlum eru til-
tölulega nýtt fyrirbæri og margir
sem vissu ekki að hægt væri að
kaupa slíkt. En Andri Birgisson,
þróunarstjóri Ghostlamp, segir að æ
fleira fólk sé að verða meðvitað um
að þetta sé hægt. Hann spáir því að
innan skamms muni fólk hætta að
kaupa sér fylgjendur.
„Við hjá Ghostlamp höfum lagt
mikið upp úr því að greina hvort
fylgjendur áhrifavalda séu alvöru
eða ekki,“ segir Andri. Þegar hann
er spurður út í hvort hann haldi að
gervifylgjendur muni á einhverjum
tímapunkti heyra sögunni til segir
hann: „Já, og þetta hefur skánað
mikið eftir að samfélagsmiðlarnir
fóru að taka á þessu og eyða þessum
gervifylgjendum. Þjónustum sem
bjóða upp á gervifylgi hefur fækkað
mikið í kjölfarið,“ útskýrir Andri
sem er viss um að fólk sem notar
samfélagsmiðla að staðaldri sjái í
gegnum þá „áhrifavalda“ sem kaupa
fylgjendur. „Ég held að ungt fólk
sem notar samfélagsmiðla sé frekar
meðvitað um að þetta sé hægt. Sam-
kvæmt okkar gögnum er frekar auð-
velt að greina þetta.“
En af hverju kaupir fólk sér fylgj-
endur á samfélagsmiðlum, fólk sem
er kannski nú þegar með stóran
hóp fylgjenda? Andri segir hærri
fylgjendatölu gjarnan þýða meiri
tekjumöguleika. Þannig að sá sem er
með t.d. 20.000 fylgjendur fær meira
greitt fyrir að birta auglýsingu en sá
sem er með 5.000 fylgjendur svo
dæmi sé tekið. „Í okkar reikniaðferð
hefur fylgjendafjöldi áhrif á virði,
en aðrir þættir hafa meira vægi eins
og viðbrögð (e. „engagement“) við
birtu efni.“
Til viðbótar við fylgjendafjölda og
„engagement“ segir hnattræn stað-
setning fylgjenda mikið. „Innan
eðlilegra marka er ef stór samfélags-
miðlastjarna er með um 20% erlent
fylgi. Í sumum flokkum getur þetta
þó verið meira, þá sérstaklega hjá
íþróttafólki. En ef staðsetning fylgj-
enda er mjög dreifð þá bendir það
til þess að fylgi hafi verið keypt,“
segir Andri en þau hjá Ghostlamp
nota sérstakan hugbúnað til að
greina þessi atriði.
Andri segir líka upplýsandi
að fara inn á síður hjá gervifylgj-
endum, þá kemur yfirleitt strax í
ljós hvað um ræðir. „Týpísk hegðun
hjá gervinotanda er fylgja óeðlilega
mörgum, hafa enga prófílmynd eða
setja ekkert efni á sína síðu.“
gudnyhronn@365.is
keypt fylgi mun
heyra sögunni til
andri Birgisson, frumkvöðull í áhrifavaldamarkaðssetningu, spáir
því að svokallaðir áhrifavaldar muni brátt hætta að kaupa sér vin-
sældir í formi fylgjenda og „like-a“ og á samfélagsmiðlum. „Þjónust-
um sem bjóða upp á gervifylgi hefur fækkað mikið,“ segir hann.
Andri starfar hjá Ghostlamp, sem tengir saman íslensk fyrirtæki og áhrifavalda í markaðsskyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
þjónustum sem
Bjóða upp á gervi-
fyLgi hefur fækkað mikið í
kjöLfarið.
RANDERS
hægindastóll
með skemli
Stillanlegur hægindastóll
með skemli. Svart PVC leður.
Fullt verð: 79.900 kr.
50%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
EKKI
MISSA
AF ÞESSU
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Janúar
útsalan
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
Ný og betri vefverslun
ALLTAF
OPIN
Aðeins 39.950 kr.
6 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r64 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
0
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:1
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
C
-B
D
E
4
1
E
A
C
-B
C
A
8
1
E
A
C
-B
B
6
C
1
E
A
C
-B
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K