Fréttablaðið - 06.01.2018, Page 116

Fréttablaðið - 06.01.2018, Page 116
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 31.12.17- 06.01.18 Bestu myndBönd ársins 2017 Lífið smalaði saman nokkrum álitsgjöfum til að velja nokkur af uppáhaldsmyndböndum sínum frá árinu 2017. Myndbandið við B.O.B.A með JóaPé og Króla komst á lista. Sömuleiðis mynd- bandið við Fullir vasar með Aroni Can og myndbandið I’d Love með Auði. áramótaskaupsverkið Rögnvaldur Skúli er maðurinn á bak við olíumálverkið sem spilaði stórt hlutverk í Skaupinu. Verkið málaði hann á nokkrum dögum. keyptar vinsæLdir Förðunarfræð- ingurinn Lilja Þorvarðardóttir vakti í vikunni athygli á að til- tölulega auðvelt er að kaupa sér fylgjendur á sam- félagsmiðlum. Hún segir algengt að svokallaðir áhrifavaldar kaupi sér fylgjendur og fái svo auglýs- ingatækifæri og tekjur út á fjölda fylgjenda. „Mig langar bara að fólk viti af þessu. Þetta er svo ótrúlega algengt.“ gLænýtt Bardaga- íþróttaféLag Annar anginn úr íþróttafélaginu Mjölni opnar brátt stöð en einn af stofnendum Mjölnis tilkynnti í vikunni að hann ætlaði sér að opna nýja bardaga- og líkams- ræktarstöð sem hefur fengið nafnið Týr. Pétur Marinó Jónsson, einn helsti sérfræðingur landsins um blandaðar bardagalistir, segir að það verði að koma í ljós hvort það sé markaður fyrir mörg bardagaíþrótta- félög á Íslandi. Í vikunni voru fréttir um sam-félagsmiðlastjörnur, eða fólk sem dreymir um að verða slíkar stjörnur, sem kaupa sér vinsældir á miðlum á borð við Instagram áberandi. Vinsældirnar eru í formi fylgjenda, „like-a“ og athugasemda á samfélagsmiðlum. Keyptir fylgj- endur á samfélagsmiðlum eru til- tölulega nýtt fyrirbæri og margir sem vissu ekki að hægt væri að kaupa slíkt. En Andri Birgisson, þróunarstjóri Ghostlamp, segir að æ fleira fólk sé að verða meðvitað um að þetta sé hægt. Hann spáir því að innan skamms muni fólk hætta að kaupa sér fylgjendur. „Við hjá Ghostlamp höfum lagt mikið upp úr því að greina hvort fylgjendur áhrifavalda séu alvöru eða ekki,“ segir Andri. Þegar hann er spurður út í hvort hann haldi að gervifylgjendur muni á einhverjum tímapunkti heyra sögunni til segir hann: „Já, og þetta hefur skánað mikið eftir að samfélagsmiðlarnir fóru að taka á þessu og eyða þessum gervifylgjendum. Þjónustum sem bjóða upp á gervifylgi hefur fækkað mikið í kjölfarið,“ útskýrir Andri sem er viss um að fólk sem notar samfélagsmiðla að staðaldri sjái í gegnum þá „áhrifavalda“ sem kaupa fylgjendur. „Ég held að ungt fólk sem notar samfélagsmiðla sé frekar meðvitað um að þetta sé hægt. Sam- kvæmt okkar gögnum er frekar auð- velt að greina þetta.“ En af hverju kaupir fólk sér fylgj- endur á samfélagsmiðlum, fólk sem er kannski nú þegar með stóran hóp fylgjenda? Andri segir hærri fylgjendatölu gjarnan þýða meiri tekjumöguleika. Þannig að sá sem er með t.d. 20.000 fylgjendur fær meira greitt fyrir að birta auglýsingu en sá sem er með 5.000 fylgjendur svo dæmi sé tekið. „Í okkar reikniaðferð hefur fylgjendafjöldi áhrif á virði, en aðrir þættir hafa meira vægi eins og viðbrögð (e. „engagement“) við birtu efni.“ Til viðbótar við fylgjendafjölda og „engagement“ segir hnattræn stað- setning fylgjenda mikið. „Innan eðlilegra marka er ef stór samfélags- miðlastjarna er með um 20% erlent fylgi. Í sumum flokkum getur þetta þó verið meira, þá sérstaklega hjá íþróttafólki. En ef staðsetning fylgj- enda er mjög dreifð þá bendir það til þess að fylgi hafi verið keypt,“ segir Andri en þau hjá Ghostlamp nota sérstakan hugbúnað til að greina þessi atriði. Andri segir líka upplýsandi að fara inn á síður hjá gervifylgj- endum, þá kemur yfirleitt strax í ljós hvað um ræðir. „Týpísk hegðun hjá gervinotanda er fylgja óeðlilega mörgum, hafa enga prófílmynd eða setja ekkert efni á sína síðu.“ gudnyhronn@365.is keypt fylgi mun heyra sögunni til andri Birgisson, frumkvöðull í áhrifavaldamarkaðssetningu, spáir því að svokallaðir áhrifavaldar muni brátt hætta að kaupa sér vin- sældir í formi fylgjenda og „like-a“ og á samfélagsmiðlum. „Þjónust- um sem bjóða upp á gervifylgi hefur fækkað mikið,“ segir hann. Andri starfar hjá Ghostlamp, sem tengir saman íslensk fyrirtæki og áhrifavalda í markaðsskyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN þjónustum sem Bjóða upp á gervi- fyLgi hefur fækkað mikið í kjöLfarið. RANDERS hægindastóll með skemli Stillanlegur hægindastóll með skemli. Svart PVC leður. Fullt verð: 79.900 kr. 50% AFSLÁTTUR ÚTSALA EKKI MISSA AF ÞESSU Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Janúar útsalan ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR www.dorma.is Ný og betri vefverslun ALLTAF OPIN Aðeins 39.950 kr. 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r64 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð 0 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :1 7 F B 1 2 0 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A C -B D E 4 1 E A C -B C A 8 1 E A C -B B 6 C 1 E A C -B A 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.