Fréttablaðið - 06.01.2018, Blaðsíða 40
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
Enginn veit nákvæmlega hvenær Jesús Kristur fæddist. Það stendur hvergi í Biblíunni enda
fæðingardagar ekkert endilega
taldir mikilvægir en vígsludagar
eins og skírnin þeim mun mikil
vægari. Af þeim sökum var skírn
Krists fagnað í upphafi kristni og
fundinn til þess hátíðisdagur sem
þegar var fyrir hendi og hitti á 6.
janúar ár hvert. Það var almennt
viðtekið í upphafi kristni að nýta
hátíðisdaga sem til voru fyrir, til
dæmis voru þær hátíðir sem fagna
árstíðum eins endurkomu sólar eða
jafndægrum á vori í eldri trúar
brögðum en í kristni gjarna
endurnýttir til að fagna viðburðum í
lífi Jesú.
Fæðing Krists þótti smám saman
vera meira tilefni til fagnaðar og
var fundinn staður á hinni fornu
sólhátíð 25. desember þar sem sú
dagsetning passaði vel við skírnar
hátíðina sem þegar var fagnað en
þá var heimsóknar Austurlanda
vitringanna líka minnst enda eru
það vitringarnir sem koma með
jólagjafirnar á þrettándanum í
sumum útgáfum af kristni. Nokkur
átök voru milli kirkjudeilda þegar
sú ákvörðun var tekin að færa
fæðingardag Krists og málamiðl
unin að hafa alla daga milli þessara
tveggja dagsetninga hátíðisdaga.
Þess vegna höldum við jól í þrettán
daga, auk þess sem talan þrettán
hefur löngum haft ýmsa merkingu
og til dæmis eru þrettán tungl á
hverju ári.
Á Íslandi var þrettándinn
almennur frídagur fram til ársins
1770 og einnig þriðji í jólum, þriðji
í páskum og þriðji í hvítasunnu.
Danska kónginum fannst heldur
mikið af helgi hjá verkalýðnum
íslenska og því voru þessir frí
dagar afnumdir. Margir fagna þó
þrettánd anum vel og má segja
að hann sé eins konar endaloka
hátíð, fólk notar tækifærið til að
halda síðasta jólaboðið og klára
síðustu smákökurnar, sest niður og
nýtur jólaskreytinganna og trésins
áður en allt er tekið niður og sett í
geymsluna til næstu jóla og svo er
líka algengt að klára það sem hófst
á gamlárskvöld, sprengja síðustu
flugeldana, halda brennu þar sem
bæði eru brennd burtu jólin og
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
Upphafshátíð hversdagsins
Á þrettándanum síðasti sveinstaulinn fór, segir í jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum en þá fór
Kertasníkir aftur upp á fjöll og jólunum þar með formlega lokið. Nú hefst hið daglega líf að nýju.
Jólasveinar, álfar og tröll heimsækja gjarna þrett ándabrennur til að kveðja áður en hversdagurinn tekur við að nýju.
gamla árið og strengja heit sem er
miklu auðveldara að halda þegar
smákökurnar eru búnar og hátíða
höldum linnir.
Ýmis þjóðtrú sem tengist nýárs
nótt er líka talin eiga við á þrettánd
anum. Þá er talað um að selir fari úr
hömum sínum, álfar flytji búferlum
og kýr tali mannamál. Mönnum er
ekki ráðlagt að vera á ferli þar sem
þessar athafnir eiga sér stað því þá
geti þeir orðið ærir. Sem er ekki
ólíkleg skilgreining á hegðun þess
sem segist hafa verið að spjalla við
kýr.
Það tíðkast á mörgum stöðum
á Íslandi að halda veglega upp á
þrettándann og munu þrettánda
brennur loga víða í kvöld. Búast má
við að álfar og huldufólk láti sjá sig á
kringum þær, jafnvel jólasveinar og
foreldrar þeirra. Og fjöldi Íslendinga
sem vilja kveðja jólin með stæl og
fagna komu hversdagsins.
Krydd fyrir
VEGAN
matreiðsluFiesta de Mexico hentar frábærlega á
allt grænmeti.
Arabískar nætur er sjö
kryddablandan ættuð frá
Líbanon í grænmetisrétti
Reykt paprika bítur
aðeins en er góð í marga
grænmetisrétti.
Eðalsteik og grillblandan
er góð fyrir tofusteikina.
Fiskikrydd er gott í
grænmetis-súpur- og rétti.
Lamb Islandia er frábært
á alla kartöflurétti og á
kjúklingabaunarétti.
Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur
Benda skal á að öll stök krydd henta í VEGAN matreiðslu s.s. origano, basilikum, steinselja og fleiri.
Töfrakryddið og Ítalskt panini henta ekki í VEGAN matreiðslu því þau innihalda ostaduft.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . JA N úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:1
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
D
-2
5
9
4
1
E
A
D
-2
4
5
8
1
E
A
D
-2
3
1
C
1
E
A
D
-2
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K