Fréttablaðið - 06.01.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 06.01.2018, Blaðsíða 26
Straumur ferðamanna er stöðugur niður Skóla-vörðustíg þennan morg-uninn. Ofarlega á holtinu í gulleitu timburhúsi býr Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og fjölskylda. Þegar blaðamann ber að garði sitja mæðgurnar Áslaug og Þórkatla við borðstofuborðið, lesa blöðin og drekka kaffi. Þórkatla er tuttugu og fimm ára gömul. Elst þriggja barna Áslaugar. Tveir synir hennar á fimmtánda og sautjánda ári halda sér til hlés. Áslaug var tuttugu og þriggja ára þegar hún átti Þórkötlu. Fljótlega kom í ljós að hún var fötluð. Hún fékk tíð flog og var með hjartagalla. Hún var send í aðgerð og var undir eftirliti lækna. „Hún er greind með mikla þroskaskerðingu og er á einhverfurófi. Er líka með lágan vöðvatón. Ég var svo ung þegar ég átti hana. Ég var að hugsa um það um daginn að við höfum verið leng- ur saman en ég ein,“ segir Áslaug frá. Þórkatla er ánægð með jólagjaf- irnar sem hún fékk. Og sérstaklega forláta loðna ljónainniskó. „Ég er í ljónsmerkinu og öskra stundum á fólk eins og ljón. Ég fæ stundum svona ljónatilfinningu sem ég þarf að passa mig á,“ segir Þórkatla frá. „Hún verður stundum pirruð og skammar túristana hér fyrir utan. Er það ekki Þórkatla? En það hefur ekki virkað?“ segir Áslaug. „Það er ekkert hægt, það koma alltaf nýir og nýir,“ segir Þórkatla. Vill byltingu í flokknum Þórkatla vinnur á Ási vinnustofu. Þegar vinnudegi er lokið fer hún heim til sín og finnst þá gott að horfa á Eurovision-keppnir og syngja. „Ég veit allt um Eurovison,“ segir hún og Áslaug tekur undir. „Hún er með þetta allt á hreinu, getur romsað þessu upp úr sér. Einu sinni bauð afi hennar henni með sér til Óslóar á Eurovision.“ „Ég saknaði þín, mamma, ég þurfti að sitja geðveikt lengi í flugvél.“ „Já, núna bendi ég henni á hversu þægilegt það er nú að horfa á þessar keppnir í sjónvarpinu. Það er nefni- lega mikið vesen að fara á þessar keppnir, langar raðir og mikið af fólki. En hún skemmti sér vel.“ Þórkatla mætir oft með mömmu sinni á fundi og hefur því fengið ákveðna innsýn í pólitíkina. „Mig langar að verða lögmaður Sjálfstæðisflokksins,“ segir hún ákveðin. „Nú, það er eitthvað alveg nýtt,“ segir Áslaug. „Ég vil stjórnarbyltingu í Sjálf- stæðisflokknum,“ segir Þórkatla og útskýrir að góðir vinir hennar hafi stungið upp á þessu embætti fyrir hana á dögunum enda hafi hún sterka dómgreind og viti margt um hvað er rétt og hvað er rangt. „Þórkatla er auðvitað oft með mér í minni vinnu. Hún hefur viljað bjóða sig fram og því er alltaf vel tekið. Hún bjó til nýtt embætti og var kosin skemmtistjóri í hverfafélaginu í Miðbæ og Norðurmýri. Hún er ekkert alltaf hrifin af Sjálf- stæðisflokkum. Sér í lagi ef henni finnst ég vera of stjórnsöm, þá segist hún ekki munu kjósa flokkinn og sérstaklega ekki mig,“ segir Áslaug og brosir. Mía er krefjandi Þórkatla hefur sjálf komið sér upp merkilegu kerfi sem aðstoðar hana við daglegt líf, hugsanir og ákvarð- anatöku. Hún styðst við dúkkur og ofurhetjukarla og ýmsa aðra hluti, bækur og geisladiska. Hver og einn hlutur hefur eiginleika sem aðstoðar hana. Hún kallar hlutina aðstoðar- liða. Einn þessara aðstoðarliða er dúkkan Mía sem margir kannast við úr Múmínálfunum. „Mía er með mikið skap, er ákveð- in og gerir alltaf það sem hún ætlar sér. Þórkatla grípur þessa eiginleika og þegar Mía er nærri getur hún ýmislegt sem annars væri ekki mögu- legt,“ segir Áslaug. „Mía hjálpar mér. Hún styður mig og rekur mig áfram. Hún er oft að skamma mig og ég rökræði við hana. Stundum verður hún svo þreytandi að hún þarf að fara,“ segir Þórkatla frá. „Mía er svo krefjandi og kraftmikil að hún á eiginlega heima hjá Gabrí- elu systur en hún er hér núna,“ segir Áslaug og spyr Þórkötlu hvort hún vilji ekki ná í Míu og kannski annan aðstoðarliða, Pétur, og kynna þá fyrir blaðamanni. Þórkatla fer upp í herbergið sitt í þeim erindagjörðum. „Hún hefur haft fjölbreytt kerfi í gegnum tíðina. Hver fígúra á sér eigin rödd og Þórkatla á í samskiptum við þær. Maður heyrir á morgnana þegar samskiptin eru byrjuð,“ segir Áslaug. Nú er Þórkatla komin niður með dúkkuna Míu og Pétur. Pétur er geisladiskur, tónverkið Pétur og úlfurinn. „Eigum við að segja aðeins frá Míu?“ spyr Áslaug og Þórkatla kinkar kolli. Með skrúfur í fætinum „Þórkatla fótbrotnaði mjög illa fyrir tveimur árum. Hún fór í aðgerð og það þurfti að setja skrúfur í hana. Þetta var slæmt brot,“ segir Áslaug. „Ég var að hoppa á trampólíni, það endaði illa. Ég lenti á stiga og allt,“ segir Þórkatla. Komst á fætur með aðstoð Míu úr Múmín- álfunum Mæðgurnar Áslaug Friðriksdóttir og Þór- katla Eiríksdóttir settust niður með blaða- manni og sögðu frá lífi sínu. Þórkatla er fötl- uð og reiðir sig á dúkkur og ýmsa aðra hluti í daglegu lífi. Hver dúkka og hlutur á sér eigin rödd og eiginleika sem Þórkatla nýtir sér. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Hún finnur Hreinlega innra líf í Hlutum sem við gerum ekki. Ég kalla þetta stundum bókmenntalega leið- sögn, sÉrstaklega þegar um er að ræða karaktera eins og míu. Áslaug ↣ Þórkatla fer frjáls ferða sinna og lendir í alls konar ævintýrum. Á dögunum var hún handtekin. Áslaug segist taka ábyrgð á því sem hún leyfir. Frelsið sé dóttur hennar dýrmætt. Fréttablaðið/Ernir 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 0 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :1 7 F B 1 2 0 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A C -D B 8 4 1 E A C -D A 4 8 1 E A C -D 9 0 C 1 E A C -D 7 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.