Fréttablaðið - 06.01.2018, Page 34

Fréttablaðið - 06.01.2018, Page 34
að vernda börn gegn ofbeldi í allri dagskrá kirkjunnar. Komi svona mál upp þá er fyrsta skylda prestsins að sinna þörfum barnsins og styðja það og fjölskyldu þess,“ segir Gavin. Í starfsreglunum lýsir kirkjan yfir vanþóknun á hvers kyns líkamlegri, kynferðislegri eða andlegri misnotk- un eða ofbeldi innan kirkjunnar og utan. Í reglunum heitir kirkjan því einnig að hún tilkynni allar stað- hæfingar barna yngri en átján ára um hvers kyns ofbeldi og muni starfa með yfirvöldum og öðrum sérfræðingum til að bera kennsl á gerandann og til að vernda börnin. Þá vilji kirkjan hálpa þolendum kynferðisofbeldis. Sá sem brýtur á barni á ekki heima í söfnuðinum lengur,“ segir Gavin. „Hann á skilið refsingu lögum samkvæmt. Guð getur fyrir- gefið öll brot, en það er mitt hlut- verk og fyrsta skylda að vernda barnið og því fær sá sem brýtur á barni ekki að taka þátt í safnaðar- starfi,“ segir Gavin og segir mikil- vægt að huga að því að það sé ekki hægt að koma í veg fyrir kynferðis- brot í samfélaginu. En það sé skylda að reyna það. „Við getum ekki komið í veg fyrir það vegna þess að maðurinn hefur frjálsan vilja en við getum sinnt skyldu okkar að vernda börn, þegja ekki, bregðast við.“ Í reglum kirkjunnar eru skýr til- mæli um viðbrögð þegar barn til- kynnir um misnotkun. Barninu skuli trúað undanbragðalaust, ekki megi slá málinu á frest, hringja eigi í Neyðarlínuna eins fljótt og kostur er og þá megi ekki hafa nein samskipti við grunaðan geranda varðandi samtalið við barnið. Þá eru safnaðarmeðlimir minntir á refsiákvæði um að sá sem láti hjá líða að tilkynna um illa meðferð barns og að það varði sektum, varð- haldi eða fangelsi allt að tveimur árum. „Við bjuggum áður á Írlandi þar sem ég þjónaði með fjölskyldunni, þar bjuggum við í átta ár. Umræðan um kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar voru áberandi þar. Brot sem hafði verið haldið leyndum og þögguð. Samfélagið þar, eins og víðar þar sem slík leynd hefur verið viðhöfð, er í sárum, sárin eru lengi að gróa. Sem kristið fólk höfum við ríka skyldu til að takast á við þetta. Megum ekki láta þetta viðgangast,“ segir Gavin. Hvenær er beitt safnaðaraga? Til dæmis með brottvísun úr söfnuð- inum? „Þegar um alvarlegar syndir er að ræða þar sem einstaklingur afneitar trú og brýtur lög Guðs,“ segir Gavin. Þú ert þá að tala um morð, nauðg- un, þjófnað og slíka glæpi? „Já.“ En hvað með til dæmis framhjá- hald, heimilisofbeldi og slíkt? „Það er alveg ljóst að þegar manneskja lifir þvert á orð Guðs getur hún ekki verið hluti af söfnuðinum, aðvent- istar lifa eftir orði Guðs.“ Hvað með hjónaskilnað? Fram- hjáhald? „Við höldum hjónabandið í heiðri, manns og konu. Teljum það mikilvægt. Og safnaðarmeðlimir þurfa að borga tíund? „Ekki að borga, heldur gefa aftur til Guðs,“ segir Gavin. „Við störfum eftir heimsskipulagi. Tíundin fer í laun presta. Hér í okkar söfnuði eru öll laun presta jöfn. Það eru engar aukagreiðslur til okkar fyrir störf okkar. Svo sem skírn. Ef kirkja verður vettvangur viðskipta er hún ekki traust. Það er mitt álit,“ segir Gavin „Við rekum líka hjálpar- starf víða um heim þar sem áhersla er lögð á samhjálp og menntun.“ Hvað með kynin? Hafa þau mis- munandi hlutverkum að gegna í söfn- uðinum eða kirkjunni? „Kynin eru jöfn fyrir Guði, bæði kona og karl eru sköpuð í mynd Guðs. Mér finnst það alveg skýrt en aðrir gætu túlkað sköpunarsöguna öðruvísi. Textar í Biblíunni endurspegla annan menn- ingarheim en er í dag. Endurspegla það valdamisræmi sem var þá og er enn víða um heim. Kirkja sjöunda dags aðventista er heimssamtök og því svolítið tekist á um ýmsa hluti í kosningum því menning landanna sem við störfum í er mismunandi. Á Íslandi hefur starfað kvenprestur og í Afríku þó nokkrir,“ segir Gavin. „Við erum að færast í átt að jafn- rétti.“ En samkynhneigð? Er samkyn- hneigðum útskúfað úr söfnuðinum? „Samkynhneigðir geta verið í söfn- uðinum en það er ætlast til þess að þeir stundi skírlífi. Þetta er grund- vallarreglan,“ segir Gavin. „Auð- vitað breytast samfélög og menn- ing þeirra. Margt er breytt, en þetta breytist ekki og er grundvallarregla, hjónaband karls og konu sem við höldum í heiðri.“ Eitt af því sem einkennir aðvent- ista er áhersla þeirra á sjálfsrækt. Þeir leggja mikla áherslu á að safn- aðarmeðlimir hlúi jafnhliða að sál, huga og líkama. „Við borðum hina upprunalegu fæðu sem Guð gaf manninum samanber sköpunar- söguna. Borðum helst hreina fæðu. Í dæmisögunni um Örkina hans Nóa sem við segjum gjarnan börnum er talað um dýrin á leið til arkarinnar. Sum dýr komu í pörum, tvö og tvö. Þau teljast til óhreinnar fæðu. Önnur komu sjö og sjö saman og teljast til hreinnar fæðu. Við borðum ekki svínakjöt, ekki krabbakjöt,“ segir Gavin og staðfestir einnig að helst eigi aðventistar ekki að borða annan fisk en með hreistur. Sum sé ekki skötusel. Það má heldur ekki borða sel eða hval. „Okkur finnst mikilvægt að aðhyllast grænmetisfæði.“ Aðventistar eru á móti reyking- um, áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Leggja ríka áherslu á hvíld. Ekki bara á laugardögum heldur líka í lífinu sjálfu til að gæta að andlegri heilsu. Gavin útskýrir þessa sterku áherslu aðventista. „Í sköpunarsögunni er talað um að maðurinn sé skapaður í mynd Guðs. Við erum hugur, sál og líkami og aðventistar hafa alltaf haft mjög skýran skilning á tengslum hugar, sálar og líkama. Kristnir leið- togar vilja sumir einblína á andlegu hliðina, við viljum líta á alla þessa þætti sem samverkandi heild. Ef við erum líkamlega veik þá hefur það áhrif á hugann. Mannleg tilvera í mynd Guðs snýst um að leggja rækt við alla þessa þætti til þess að vera sú manneskja sem Guð vill að við séum.“ Ekki besta útgáfan að sjálfum þér, heldur besta útgáfan sem Guð vill að þú sért? „Já, þetta er í tísku núna. Sjálfsrækt sem aðventistar hafa lagt áherslu á í meira en öld,“ segir Gavin og brosir. „Við rekum fjölmörg sjúkrahús víða um heim þar sem eru stund- aðar rannsóknir um þessa samverk- andi þætti,“ segir Gavin og greinir til að mynda frá verkefni í kirkjunni sem hann var prestur í á Írlandi. „Við vorum með prógramm fyrir þunglynda sem læknar komu að í kirkjunni. Við viljum aðstoða fólk við að lifa í Guðs mynd og heilsu- samlegum lífsstíl. Viljum hjálpa fólki að takast á við sjúkleika. Sam- band okkar við Guð verður betra þegar við búum við góða heilsu.“ Aðventistar hafa ekki viljað reka spítala hér á landi? „Nei, það er dýrt og krefst meiri mannafla en við höfum yfir að ráða hér á landi,“ segir Gavin. „En okkur hefur auðnast að reka hér skóla,“ segir hann og lítur út um gluggann að Suðurhlíðarskóla þar sem eiginkona hans starfar sem kennari. Sjúkrahúsið í Celebration „Þú veist um bæinn Celebration sem Disney byggði í Flórída?“ spyr Gavin. Það rifjast upp fyrir blaða- manni fréttir frá tíunda áratugnum af þorpi sem átti að verða eins konar fyrirmyndarþorp í heimi sem hafði farið villur vegar. Útópía. Í Celebrat- ion átti að leggja áherslu á ferska fæðu og hreyfingu. Áfangastaður sálarinnar var slagorðið eitt sinn. Trúarlíf Íslendinga 2 af 10 Kynna skaparann í Raufarhólshelli Opnað var fyrir gestí í Raufarhólshelli í Leitarhrauni austan Bláfjalla í Þrengslunum í sumar og kostar 6.400 krónur að skoða hellinn. Í sumar heimsóttu tíu þúsund manns hellinn. Landið er í eigu Kirkju sjöunda dags aðventista sem leigir fyrirtækinu Raufar- hól landið. Stærsti fjárfestirinn er fjárfestingarsjóður á vegum Landsbréfa, Icelandic Tourism Fund. Þá er Skúli Sigfússon, kenndur við Subway, einn fjárfesta. Aðventistar ákváðu að taka hellinn í gegn fyrir nokkru. Pöllum var komið upp, stígar hlaðnir og ljósabúnaði komið fyrir. Eiríkur Ingvarsson, aðventisti og fjárfestir, var í forsvari fyrir verkefninu og leiddi saman fjárfesta. Raufarhólshellir vakti mikla athygli eftir að Russell Crowe og Anthony Hopkins voru þar við tökur vegna kvikmyndarinnar Noah. Aðventistakirkjan hefur átt eignina í marga áratugi. Á tímabili fylgdi henni kostnaður en nú gefur hún af sér að sögn Björgvins Ibsen, fjármála- og eignastjóra aðventista. Nú þegar hellirinn sé í útleigu og gefi af sér geti söfnuðurinn hugað að fleiri tækifærum. Með því að leigja Raufarhóli hellinn segist söfnuðurinn vera að framvísa og leyfa þeim að sýna gestum sköpunina. Gavin vísar í Matteusarguðspjall í kynningarmyndbandi um hellinn: „Gakk inn í fögnuð herra þíns.“ Gavin segir frá því að Disney hafi valið sjöunda dags aðventista til að reka sjúkrahús bæjarins eftir stórt útboð. Og þar kemur litríki kassinn við sögu og útskýrir heilsustefnu aðventista sem þeir hafa stundum kynnt sem Creation Health. C Stendur fyrir Choice eða val. R stendur fyrir Rest eða hvíld. E stend- ur fyrir Environment eða umhverfi. A stendur fyrir Activity eða virkni. T stendur fyrir Trust eða traust. I stendur fyrir Interpersonal relat- ions eða tengslanet. O stendur fyrir Outlook eða viðhorf og N stendur fyrir Nutrition eða næringu. „Hér er hugtakinu heilsa skipt upp í átta þætti til einföldunar og þetta er áhugaverð leið sem nær til margra. Fólk nær virkilega árangri með því að skoða þetta í einföldum skrefum,“ segir Gavin og bendir á próf sem kannar hversu vel mann- eskja stendur að vígi í hverjum þætti. Lesendur geta spreytt sig á slíku prófi í vefútgáfu þessarar greinar. „Það að manneskja þrífist betur þegar hún leggur alúð við þessa þætti í eigin lífi er ekki bara hug- myndir eða frasar, heldur stutt af rannsóknum.“ En hvers vegna er Gavin á Íslandi? Nú, ég á íslenska konu. Ég hef búið og starfað hér áður og líkar vel lífið hér. Ég hef sterka köllun og sannfær- ingu fyrir því að vera hér á Íslandi. Ég fann það strax þegar ég steig út úr flugvélinni. Hér á ég að vera.“ Gavin vinnur að doktorsritgerð sinni sem fjallar um möguleika ein- staklinga til að trúa. Hann vill finna praktískar leiðir fyrir fólk til að lesa Biblíuna. „Það að hjálpa fólki að rækta sambandið við Guð er mitt áhugamál. Upplýsingar einar og sér hjálpa ekki fólki að breytast. Ef ég get hjálpað fólki að lesa Biblíuna þannig að það gagnist, ekki eins og heimspekirit, heldur til að það þroskist í trú sinni þá hef ég gefið fólki von og tækifæri.“ 1 skóli Söfnuðurinn á og rekur Suðurhlíðar- skóla sem þó er opinn börnum úr öðrum trú- félögum. 6 kirkjur Söfnuðurinn rekur kirkjur á  Akureyri, í Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Reykjavík, á Selfossi og í Vestmanna- eyjum. ↣ Kynin eRu jöfn fyRiR Guði, bæði KonA oG KARl eRu SKöpuð í mynd GuðS. méR finnSt þAð AlVeG SKýRt. Raufarhólshellir FRéttablaðið/Vilhelm 6 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 0 6 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :1 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A C -E A 5 4 1 E A C -E 9 1 8 1 E A C -E 7 D C 1 E A C -E 6 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 0 s _ 5 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.