Víkurfréttir - 09.01.2003, Síða 17
Hvernig skilgreinum
við fátækt?
Við tölum almennt um efnalega
fátækt, þegar fólk skortir fæði,
klæði eða húsaskjól, það sem
Lúter nefndi hið “daglega brauð”
sem við biðjum um í faðirvorinu.
Þetta er hin altæka og almenna
skilgreining á fátækt. Síðan er til
afstæð skilgreining á fátækt. Þá
tengist hún ólíkum aðstæðum.
Það deilir t.d. enginn um að lífs-
kjör hafa batnað í seinni tíð hér á
landi, en um leið hafa ýmsir setið
eftir samanborið við þá sem bet-
ur mega sín. Próf. Símon Jóhann
Ágústsson talaði um samanburð-
arfátækt í þessu sambandi á sín-
um tíma.
Er mikið um að fólk leiti til
kirkjunnar vegna fátæktar eða
fjárhagsvandræða?
Það et talsvert um að fólk leiti
aðstoðar einkum fyrir hátíðar.
Forsetinn okkar, sem var prófess-
or í félagsfræði, vakti athygli á
þessum vanda í áramótaávarpi
sínu og benti á þversagnirnar í ís-
lensku þjóðfélagi. Ein ríkasta
þjóð heims ætti að geta gert betur
í þessum efnum.
Forsetinn fjallaði um málið á
þverpólitískan hátt og gat þess að
von væri á niðurstöðum rann-
sóknar um fátækt nú á vormiss-
eri. Það er gott að fá félagsfræði-
lega úttekt á málinu og í fram-
haldi af því þarf að skapa póli-
tískan vilja til að takast á við
vandann.
Er um aukningu að ræða síð-
ustu ár?
Þetta er nokkuð jafnt milli ára og
fátæktin er oft fylgikona sama
fólksins. Mér sýnist einnig neyð-
in orðin sárari. Það er t.d. ótækt
fyrir íslenska þjóð ef móðir verð-
ur að gefa barnið sitt vegna þess
að hún getur ekki séð því far-
borða. Það er ljóst að við þurfum
að sinna þeim best sem verst eru
settir.
Um hvers konar vandamál er
að ræða þegar fólk leitar til þín
vegna fátæktar?
Ég tel að atvinnuleysi sé alvar-
legasta rót vandans. Atvinnuleysi
skapast við óhagstæðar efna-
hagsaðstæður en ekki vegna per-
sónulegrar ógæfu. Við erum með
yfir 400 atvinnulausa á skrá á
Suðurnesjum og atvinnuleysið er
komið yfir 3 % á landsvísu.
Þjóðfélagið hefur ríkar lagalegar
skyldur í þessum efnum sam-
kvæmt samfélagssáttmálanum.
Aðstoð sem er veitt er því ekki
ölmusa. Samfélagið er miklu
fremur að taka áskorun Páls
postula um að bera hver annars
byrðar.
Hvaða lausnir sérð þú fyrir þér
sem myndu útrýma eða alla-
vega minnka fátækt á Íslandi?
Með því að auka atvinnuþáttöku
sem best við getum. Ég treysti
stjórnmálamönnum til að vinna
að því hvar í flokki sem þeir
standa. Þá greinir hugsanlega
ekki á um markmið heldur leiðir
í þessum efnum. Fátæktin er
fyrst og fremst fylgifiskur at-
vinnuleysisins. Hún hefur ekki
aðeins áhrif á afkomuna heldur
einnig stöðu fólks í samfélaginu
og sjálfsímyndina. Í kjölfar fá-
tækar fylgir leiði, tilgansleysi og
almennt heilsuleysi. Efnaleg fá-
tækt getur þannig leitt fólk út í
andlega fátækt uppgjafar og von-
leysis. Það er lykilatriði að eng-
inn láti erfiðar ytri aðstæður
ræna sig voninni.
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ I FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 I 17
®
A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R
421 0000
Fyrir síðustu jól leituðu 54fjölskyldur á Suðurnesj-um til Suðurnesjadeildar
Rauða Krossins og óskuðu eft-
ir aðstoð.
Stefanía Hákonardóttir fram-
kvæmdastjóri deildarinnar sagði í
samtali við Víkurfréttir að Rauði
Krossinn væri líknarfélag sem
fólk gæti leitað til í erfiðleikum
sínum: „Fólk sem minna má sín
getur leitað til okkar fyrir jólin og
við reynum að aðstoða það eftir
fremsta megni. Við gáfum þeim
fjölskyldum sem leituðu til okkar
15 þúsund króna matarmiða í
Samkaup svo þau gætu keypt
jólamatinn og haldið gleðileg jól.
Verslunarmannafélag Suðurnesja
styrkti okkur og gerði okkur það
kleift að geta útdeilt þessum mið-
um.“
Stefanía segir að þau finni fyrir
lítilli aukningu á því að fólk leiti
til þeirra fyrir jólin milli ára:
„Það hefur einhver aukning orðið
en ekki mikil. Hins vegar höfum
við fundið fyrir aukningu á því
að atvinnulausir leiti sér aðstoðar.
Þeir hópar sem mest leita til okk-
ar eru öryrkjar, einstæðar mæður
með börn á framfæri og fólk sem
er atvinnulaust,“ segir Stefanía
að lokum.
FYRRI HLUTI
Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður tók saman.
Sendu þína skoðun á johannes@vf.is
Sr. Ólafur Oddur Jónsson prestur í Keflavíkurkirkju:
Tel að atvinnuleysi sé
alvarlegasta rót vandans
54 fjölskyldur leituðu til Suðurnesja-
deildar Rauða Krossins fyrir jólin
Innilegar þakkir til allra þeirra
fjölmörgu sem vottuðu okkur samúð
og sýndu okkur hlýhug vegna andláts
og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa
Innilegar þakkir til Friðbjörns Sigurðssonar læknis
og starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans
Háskólasjúkrahúss. Hjartans þakkir til lækna og
hjúkrunarfólks Heilsgæslu Suðurnesja fyrir
frábæra umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir og fjölskylda.
Haraldar Sveinssonar,
Hlíðargötu 39,
Sandgerði
2. tbl. 2003 - bls. 16 og 17 8.1.2003 18:19 Page 17