Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 • Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 (15 línur) Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is • Blaðamenn: Jóhannes Kr.
Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is, Sævar Sævarsson, sími 421 0003, saevar@vf.is • Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími
421 0001, jonas@vf.is • Auglýsingadeild: Kristín Gyða Njálsdóttir, sími 421 0008, kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0009, jofridur@vf.is • Útlit,
umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
stuttar
F R É T T I R
Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í haust!
B lái herinn hlaut um-hverfisverðlaun Reykja-nesbæjar árið 2003, en
Árni Sigfússon bæjarstjóri
veitti verðlaunin við hátíðlega
athöfn í Listasafni Reykjanes-
bæjar í dag. Það var Tómas
Knútsson forsvarsmaður Bláa
hersins sem veitti viðurkenn-
ingunni móttöku og sagði bæj-
arstjóri við þetta tilefni að
Tómas og Blái herinn hefðu
unnið stórvirki í umhverfis-
málum á Reykjanesi síðustu ár.
Einnig hlaut viðurkenningu
Sigurgeir Þorvaldsson sem
hreinsað hefur flöskur af göt-
um bæjarsins síðustu 20 ár.
Rebekkustúka nr. 11 hjá Oddfell-
ow hlaut einnig viðurkenningu
fyrir sölu á máluðum kústum
sem þær selja. Björn Vífill veit-
ingamaður á Ránni hlaut einnig
viðurkenningu fyrir snyrtilegt
umhverfi Ráarinnar.
Í búar í Vogum á Vatnsleysu-strönd sýndu samhug sinní verki með ekkju og þrem-
ur börnum Páls Guðmunds-
sonar heitins, sem lést af slys-
förum þann 29. ágúst sl. Frið-
arljós voru tendruð við nær
hvert einasta hús í Vogum og á
Ströndinni að kvöldi þess dags
sem Páll heitinn var jarðsettur.
Útför Páls fór fram frá Keflavík-
urkirkju en jarðsett var að Kálfa-
tjörn á Vatnsleysuströnd. Opnað-
ur hefur verið styrktarreikningur
fyrir fjölskyldu Páls heitins við
Sparisjóðinn í Keflavík. Fjöl-
skyldan er búsett í Vogum en
þeim sem vilja styðja við bakið á
eftirlifandi eiginkonu hans og
börn er bent á styrktarreikning í
Sparisjóðnum í Keflavík 1109-
05-443339.
Í dánartilkynningu í Víkurfrétt-
um í síðustu viku var nafn
yngstu dóttur Páls misritað. Hún
heitir Thelma Lind og leiðréttist
það hér með og biðjast Víkur-
fréttir velvirðingar á mistökun-
um.
Blái herinn fékk
umhverfisverðlaunin
Samhugur
í verki!
Bæjarstjóri veitti umhverfisverðlaun Reykjanesbæjar 2003. Hér er hann með fulltrúum verðlaunahafa.
Kerran tók
öll völd
S kömmu fyrir hádegi ámiðvikudag í síðustuviku var tilkynnt um
bílveltu á Garðvegi móts við
kirkjugarðinn. Orsök slyss-
ins var sú að kerra sem bif-
reiðin dró fór að rása á veg-
inum með þeim afleiðngum
að ökumaður, sem var einn
í bílnum, missti stjórn á bif-
reið sinni.
Ökumaður var einn í bílnum
eins og áður segir og slapp án
meiðsla.
Meðvitund-
arlaus við
stýrið
Ámiðvikudaginn ísíðustu viku kl. 14:40var tilkynnt um um-
ferðarslys á Njarðarbraut.
Þarna hafði ökumaður
misst stjórn á bifreið sinni á
leið suður Njarðarbraut og
lent á handriði sem er við
Njarðarbraut. Ökumaður
var meðvitundarlaus þegar
lögreglan kom á staðinn og
voru vegfarendur búnir að
taka hann út úr bifreiðinni.
Maðurinn mun hafa fengið
flogaveikikast og mun hafa
átt við veikindi að stríða. Bif-
reiðin var mjög mikið
skemmd og voru skráningar-
númer bifreiðinnar tekin af
vegna ástands hennar. Drátt-
arbifreið kom á staðinn og
fjarlægði bifreiðina, að því er
fram kemur í dagbók lögregl-
unnar.
Töflum dælt
úr stúlku
S kömmu eftir hádegi ámánudag í síðustuviku var óskað eftir
sjúkrabifreið og lögreglu að
húsi í Njarðvík en þar var
stúlka búin að taka inn
verulegt magn af töflum.
Var stúlkan flutt með
sjúkrabifreið á HSS þar
sem dælt var upp úr henni.
Auglýsingasíminn
421 0000
ÞARFTU AÐ
AUGLÝSA?
VF 37. tbl. 32 sidur rest 10.9.2003 14:28 Page 2