Víkurfréttir - 11.09.2003, Side 4
Www.ljosmyndari.isstendur fyrir ljós-myndanámskeiði fyr-
ir byrjendur og lengra komna í
Flughótel Keflavík helgina 20. -
21. september frá kl. 13 til 18,
eða alls 10 klst.
Kennt verður m.a. að velja réttu
tækin, meðferð tækjanna, mis-
munur á linsum, notkun ljós-
mæla, mismunur á filmutegund-
um, notkun filtera, flass, mynda-
taka í stúdíói, stúdíóflöss, nær-
myndataka, geymsla og skráning
ljósmynda ásamt stafrænni
myndatöku.
Farið verður í grunnatriði ljós-
myndatækninnar og hugtök eins
og ljósop, hraði, dýptarskerpa,
lýsing og ljósmæling verða út-
skýrð. Farið verður í grunnatriði í
myndatöku og mynduppbygg-
ingu og kennt að nota myndavél-
ina og alla fylgihlutina. Sýndar
verða ýmsar ljósmyndir til út-
skýringar. Viðurkenningarskjal
verður afhent í lok námskeiðs.
Verð á námskeiðinu er kr.
11.900.- Leiðbeinandi á nám-
skeiðinu er Pálmi Guðmundsson.
Skráning og nánari upplýsingar
er á vefsíðunni www.ljosmynd-
ari.is eða í síma 898-3911
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
F R É T T I R
MUNDI
. . .
Reykjanesbær og líkamsrækt-
arstöðin Perlan hafa gert með
sér samning um leigu á hús-
næði í Sundmiðstöðinni við
Sunnubraut fyrir líkamsrækt-
arstöð. Perlan mun leigja að-
stöðu í kjallara og á fyrstu hæð
sundmiðstöðvarinnar auk
samnýtingar á afgreiðslu og
sturtuaðstöðu.Allur tækjabún-
aður til líkamsræktar verður í
eigu Perlunnar og mun líkams-
ræktarstöðinni standa til boða
aðgangskort að Sundmiðstöð-
inni á afsláttarverði sem bjóð-
ast mun líkamsræktarstöðvum
ef keypt eru kort í einhverju
magni. Gert verður sérstakt
samkomulag um fyrirkomulag
í afgreiðslu, opnunartíma og
aðgangsstýringar áður en lík-
amsræktarstöðin hefur starf-
semi sína. Samningurinn gildir
til fimm ára.
Perlan í sundmiðstöðina
Næsta laugardagskvöld,13. september, munBrimkló enda tónleika-
ferð sína með stíl og halda í
Njarðvík og leika í Stapanum.
Þar hefur Brimkló ekki leikið
um árabil. Stapinn var alltaf
heimsóttur þegar Brimkló var
á ferðinni á tónleikaferðum
sínum. Von er á fjölda gesta
næsta laugardagskvöld og
heyrst hefur að töluverður fjöl-
di fólks hefur tekið sig saman
frá Hafnarfirði og nærliggj-
andi bæjarfélögum og hefur
leigt sér rútur til að halda í
Stapann eins og tíðkaðist hér á
árum áður.
Boðið verður upp á glæsilegt
hlaðborð og skemmtun með
Halla og Ladda á undan Brim-
klóardansleiknum, en um
klukkustundarskemmtun er að
ræða. Verðið er hreint út sagt
frábært eða 3800 kr fyrir kvöld-
verð, skemmtun og dansleik.
Enn er verið að taka niður pant-
anir og við hvetjum fólk til að
missa ekki af þessari frábæru
skemmtun. Allar nánari upplýs-
ingar eru í Stapanum í síma 421-
2526 og 891-9072 eða 898-5833.
Forsala verður í Stapanum á
laugardag milli kl 15:00 og 17:00
Ljósmyndanámskeið í Flughótel Keflavík
Skutu endur og
gæsir við vinsælt
útivistarsvæði
Á mánudagskvöldið kl. 21:03
í síðustu viku hringdi landar-
eigandinn á Þóroddsstöðum í
Sandgerði og tilkynnti að ein-
hverjir menn væru að skjóta á
og við landareign hans án
leyfis. Lögreglumenn fóru á
staðinn og fundu bifreið þá
sem veiðimennirnir voru á.
Um var að ræða þrjá menn og
voru þeir með þrjár hagla-
byssur á sér. Í bifreið þeirra
voru fjórar gæsir og 6 endur
sem þeir sögðust hafa skotið
skömmu áður. Þeir sögðust
hafa fengið leyfi hjá aðila
sem býr á Þóroddsstöðum.
Greinilegt var að um mis-
skilning var að ræða varðandi
heimildina til að skjóta á
landareigninni og var sá mis-
skilningur leiðréttur með sím-
tali við landeigandann. Er at-
hugað var með skotvopna-
leyfi og veiðikort mannanna
kom í ljós að tveir þeirra voru
ekki með skotvopnaleyfið á
sér og tveir þeirra voru ekki
með veiðikortið á sér. Við at-
hugun á vopnunum kom í ljós
að þeir voru skráðir fyrir
þeim.
Staðurinn sem veiðimennirnir
voru á telst vera almannafæri
þar sem þarna er of stutt í
þjóðveg og mannabústaði.
Einnig er þarna vinsælt úti-
vistarsvæði (m.a. golfvöllur).
Þar sem aðstæður eru með
þessum hætti hefur leyfi frá
landeiganda ekkert gildi, en í
þessu tilviki var ekki heldur
um það að ræða.
Brimkló í Stapanum
á laugardaginn
VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 12:28 Page 4