Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Side 11

Víkurfréttir - 11.09.2003, Side 11
Sú var tíðin í ,,gamladaga” að háir kantar,brattar tröppur og þröngar dyragættir gerðu fötl- uðum einstaklingum erfitt fyr- ir að nýta sér þá þjónustu sem bauðst í þeirra heimabæ. Með upplýstu samfélagi og réttinda- baráttu hefur þessu verið kippt í liðinn á flestum stöðum og það er lágmarkskrafa að þegar hafist er í framkvæmdir að hugsað sé fyrir aðgengi fyrir alla. Eða hvað...? Eins og svo margir um helgina fór ég um götur bæjarins, þræddi sýningar og mannfagnaði. Nýaf- staðin Ljósanótt var alveg meiri- háttar og frábært að sjá hvernig bærinn iðaði af lífi, margt áhuga- vert að skoða en eitt vakti þó sér- staklega athygli mína - aðgengi fatlaðra á Hafnargötunni! Ég hef verið fjarri góðu gamni og unnið úti á landi og þannig misst af lokaframkvæmdunum á Hafnar- götunni. Hún lítur virkilega vel út og það er gaman að fara hana... ef þú ert frískur og með fæturna í lagi. Það hefur gleymst að gera ráð fyrir fólki í hjólastólum sem viðskiptavinum. Margar verslan- irnar eru með þrönga aðkomu og ekki hægt fyrir marga af stærri hjólastólum að komast þar í gegn en það er ekki einu sinni mögu- leiki fyrir einstakling í minni hjólastól að láta á það reyna. Við glænýtt hús númer 20 sem var byggt á Evrópuári fatlaðra, 2003, er ekki möguleiki fyrir einstak- ling í hjólastól að komast þar upp, brött trappa hindrar það! Ég veit ekki við hvern er að sakast, kannski er þetta einhver smá yf- irsjón, í það minnsta er það ekki fullkomin yfirsýn sem beitt var við verkið. Ég hefði talið það lágmarkskröfur í dag að huga að aðgengi fyrir alla í svona fram- kvæmdum, sérstaklega á ári fatl- aðra. Ég legg til að við fjarlægj- um hindranir og gerum fólki í hjólastól kleift að fara sinna ferða án þess að þurfa í sífellu að biðja um aðstoð. Vonandi verður ljúft veður í haust svo hægt sé að rífa upp allar þær hellur sem eru far- artálmar. Vonandi verður Ljósa- nótt 2004 þannig að ALLIR sem vilja geta heimsótt sýningar og verslanir án mikilla tilfæringa, því þessi menningarhátíð er eitt- hvað sem ENGINN má missa af. Brynja Magnúsdóttir formaður Ungra jafnaðar- manna á Suðurnesjum. 12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Falun Gong-liði flaggaðigulum fánum með boð-skap samtaka sinna nærri Leifsstöð síðdegis á þriðjudag til að reyna að ná augum Luo Gan, eins æðsta yf- irmanns öryggis- og dómsmála í Kína. Hann var að yfirgefa landið eftir dvöl hér á landi í tvo daga. Falun Gong-liðinn var að mótmæla stefnu Kín- verja í garð hreyfingarinnar. Að minnsta kosti fjórir lögreglu- menn gættu þess að Falun Gong- liðinn færi ekki í veg fyrir bifreið Luo Gan. Kínverskir aðilar á hvítum sendibíl lögðu bifreið fyr- ir fána frá Falun Gong sem var fjær mótmælandanum. Þeir höfðu áður komið á bíl sínum upp að Falun Gong-liðanum en virtu hann vart viðlits. Á gamli bærinn að samsvara gömlum tímum? Falun Gong mótmæltu við Leifsstöð Auglýsingasíminn 421 0000 VF 37. tbl. 32 sidur rest 10.9.2003 14:30 Page 12

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.