Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 13
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Ínæstu viku hefst myndlista-námskeið sem Eyþór Stef-ánsson myndlistarmaður heldur næstu vikurnar. Eyþór flutti seint á síðasta ári í Vog- ana, en hann hefur starfað sem myndlistakennari við listadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti frá árinu 1989. Eyþór starfar einnig sem sjálfstætt starfandi teiknari og tekur að sér teikn- ingar í hvaða formi sem er. Í desember á síðasta ári vann Eyþór til Aydin Dogan verð- launanna, en teiknisamkeppn- in sem haldin er í Tyrklandi er oft jafnað við Óskarsverð- launahátíðina. Athöfnin fór fram í óperuhöllinni í Ankara. Eyþór varð í öðru sæti í keppn- inni sem er mjög góður árang- ur, en árið 2001 vann Eyþór einnig til svokallaðra velgengn- isverðlauna á hátíðinni í Tyrk- landi. Þekktastur er Eyþór fyr- ir að hafa teiknað myndagátu DV í yfir 11 ár. Eyþór hefur innréttað glæsilega vinnuað- stöðu og kennslustofu við heimili sitt þar sem aðstaða til myndlistarkennslu er góð. Fyrsta námskeiðið hefst nk. mánudag. Námskeiðið verður bæði fyrir byrjendur og lengra komna og segist Eyþór vilja mæta þörfum hvers og eins því fólk sé misjafn- lega statt á myndlistarbrautinni. Eyþór segist finna fyrir ákveð- inni hræðslu hjá sumum við að koma á námskeið. „Fólk hefur verið hrætt við að stíga skrefið til fulls, en þetta verður allt mjög heimilislegt og alltaf heitt kaffi á könnunni.” Um tvö námskeið er að ræða, 6 vikna námskeið og 12 vikna.. Námskeiðin verða fjöl- breytt og segir Eyþór að í fyrstu tímunum verði farið á staði á Reykjanesi þar sem búnar verði til skissur af landslagi. Í fram- haldinu verður síðan unnið úr skissunum og eftir það verður farið í önnur verkefni. Þeir sem hafa áhuga á að fá frekari upplýs- ingar um námskeiðin er bent á að hringja í síma 553-1481 eða 849- 6214. M enningarmálanefnd alþingis heimsóttiReykjanesbæ í síðustu viku og hélt nefndin m.a.fjölmennan fund á veitingastaðnum Ránni. Síðar um daginn héldu þingmennirnir í sjóstangarveiði með DUUS KE og var mikill baráttuhugur í þingmönnunum, enda var það markmið landsbyggðarþingmannanna að afla meira en Reykjavíkurþingmennirnir. Víkurfréttir hafa ekki heyrt af aflabrögðum úr ferðinni. Menningarmála- nefnd alþingis fundar í Reykjanesbæ Fótbrotinn en frjáls! Hjálmar Árnason brá á leik og líkti eftir hinu fræga stefnisatriði úr kvikmyndinni Titanic. Hressir þingmenn á leið í sjóstangarveiði með Bóa á DUUS. F.v. Pétur Blöndal, Guðlaugur Þór Þórðarson, Magnús Þór Hafsteinsson, Jón Gunnarsson, Guðjón Hjörleifsson, Þuríður Jóhannsdóttir og Hjálmar Árnason sem mætti ferskur með gifsið. Myndlistanámskeið í Vogum Stærra blað - 64 síð ur! 2. tölublað 5. árg angur • septembe r 2003 Blað nr. 20 • Verð kr. 499,- m/vsk. Sumarbrúðkaupin á Suðurnesjum: Brúðkaupsferð m eð bakpoka Vélhjóladellan he ltekur Suðurnesja menn: Til Daytona og Ba rcelona L Í F S R E Y N S L A S T E F Á N S B J Ö R N S S O N A R Í K O S O V O Ve rð k r. 49 9, - m /v sk . 5 690310 02 3216 TVÖ BLÖÐ Í EINU ! 24 SÍÐNA AUK ABLAÐ TROÐFUL LT AF EFNI Burkni Birgisson og Hollywoodstjör nurnar • Steini Er lings sextugur Sá la rb al lið í St ap a! Rómantík á Garð skaga • Stelpubo x • Bergásballið • Ljósmyndafyrirsæ ta Suðurnesja 1993 • Steinunn í kar abíska hafinu • Hafnamenn með hálft tonn af laxi! • Iðandi m annlíf í Sandgerð i • Njarðvíkurstrá kar á USA Cup • Eysteinn aðstoðar Guðna Á gústsson • Keyrð i Clapton í laxvei ði • Ráðherra-Sk ódi í Reykjanesbæ • Þ órarinn og þyrlufl ugið og fl. í troðfu llu tímariti! FERTUGIR HLJÓMAR á götu frægðarinnar! Glæsileg einstakl ingsíbúð í einu e lsta húsi Keflavík ur 13 sumarstúlkur Qmen í blaðinu! Við dauðans dyr TVF SEPT 20 03 2.9.200 3 14:49 Pa ge 1 VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 12:57 Page 14

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.