Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 18

Víkurfréttir - 11.09.2003, Qupperneq 18
VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 5. SEPTEMBER 2003 I 19 Skipulagning Ljósanætur var til fyrirmyndar í alla staði og eiga forráðamenn hjá Reykjanesbæ þakkir skyldar fyrir frábæran menningar og listviðburð. Það var almannarómur að sérstaklega vel hafi tekist til með dagskrárat- riði og bærinn skartaði sínu feg- ursta á góðri fjölskylduhátíð. Getur verið að foreldrar hafi sofnað á verðinum? Einn var þó ljóður á sem vert er að nefna til að upplýsa þá for- eldra sem ekki vita að ungling- arnir okkar margir hverjir voru eftirlitslausir niðri í bæ, bæði föstudags og laugardagskvöld, langt fram á nótt. Þeir sem áttu leið um Hafnargötuna og miðbæ- inn um og eftir miðnætti þessi kvöld geta borið vitni um það. Það sem við blasti er vart með orðum lýst. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af fjölda ungmenna í miðbænum vegna brota á úti- vistarákvæðum og áfengisneyslu eins og segir í dagbók lögreglu. Einnig segir þar að talsvert hafi verið tekið af áfengi og landa. Unglingar voru í hópum eða ráf- andi um ofurölvi. Samkvæmt heimildum frá útideild var við- búnaður lögreglu og annarra að- ila s.s. björgunarsveitarinnar að öllu leiti góður en þeir telja að skort hafi á að foreldrar sýndu ábyrgð þetta kvöld. Auðvitað er meirihluti unglinga yfirleitt til fyrirmyndar og varast ber að gera úlfalda úr mýflugu eða dæma allan hópinn en í þessu tilfelli var um fjölda ung- menna að ræða eins og segir í dagbók lögreglu. GAMAN SAMAN Á LJÓSA- NÓTT eða var þínu barni ekið heim af lögreglu? Þeim áróðri hefur verið haldið á lofti að ekki skuli kenna foreldr- um um heldur kenna þeim og leiðbeina í vandasömu upp- eldishlutverki þeirra og við bein- um því þeim tilmælum til for- eldra að vera vel á verði og halda útivistartíma ekki síst á Ljósa- nótt. Við tölum oft um forvarnir en við þurfum að sýna viljann í verki. Útideildin, lögreglan og Fjöl- skyldu og félagsþjónusta Reykja- nesbæjar voru með ábendingu til foreldra,hálfsíðu auglýsingu í Suðurfréttum, undir yfirskriftinni “Gaman saman á Ljósanótt”. Þannig gerðu þessir aðilar sínar ráðstafanir til að koma skilaboð- um til foreldra en það virðist ekki hafa vakið nægilega athygli. Einhverra hluta vegna er eins og við höfum sofnað á verðinum. Hingað til höfum við verið í við- bragðsstöðu um verslunar- mannahelgina, gamlárskvöld og dagana þegar samræmdum próf- um lýkur en þarna vorum við grandalaus. Ekki bætti úr skák að símakerfið brást og margir ( sem höfðu orðið viðskila við sína unglinga) gátu ekki náð í börn sín í gegnum nýjasta uppeldis- miðilinn eða farsímann. TÖKUM SIÐFERÐI OKKAR TIL ENDURSKOÐUNAR Við þurfum að vera í stakk búin að rýna til gagns í mannlífið og lagfæra það sem betur má fara í siðferði okkar ekki síst þegar reynir á okkur. Á Ljósanótt bjóð- um við gestum í bæinn og lýsum hann upp en það er álit sumra að frjálsræði fullorðinna með áfengi hafi verið töluvert á almannafæri á laugardagskvöldinu. Við þurf- um að halda lög og virða úti- vistarreglur líka þegar það er fjör og gaman. Foreldrar gleymum því ekki að við erum fyrirmyndir barna okk- ar og allir fullorðnir eru fyrir- myndir unga fólksins sem er á viðkvæmu mótunarskeiði og ger- ir það sem fyrir þeim er haft. Sá jákvæði andi sem ríkir á Ljósa- nóttinni okkar þarf að ná inn í alla króka og kima þannig að við getum átt góðar minningar um þennan einstaka atburð og getum tekið undir með Hljómum þegar þeir syngja um gamla bæinn sinn. Vel upplýstir foreldrar eru góð forvörn og við þurfum að skoða málið vel þeg- ar okkur er bent á það sem betur má fara. Eflum foreldrasamstarf. FFGÍR/hmg. Eflum foreldra- samstarf VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 13:18 Page 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.