Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Page 19

Víkurfréttir - 11.09.2003, Page 19
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Ölvun meiri á föstudagskvöld Sigurður Bergmann varðstjóri Lögreglunnar í Keflavík var úti- varðstjóri lögreglunnar um helg- ina og segir hann að hundruðir unglinga hafi safnast saman í miðbænum bæði á föstudags- og laugardagskvöld. Sigurður segir að ölvun hafi verið meira áber- andi á föstudagskvöldið. “Við helltum meira niður af áfengi á föstudagskvöldið en þá var ölvun á meðal unglinganna áberandi meiri en á laugardagskvöldið,” segir Sigðurður en Útideild Reykjanesbæjar vann náið með lögreglunni um helgina. “Starfs- menn Útideildarinnar gengu um á meðal unglinganna með lög- reglunni og að þeirra mati var mikið um utanbæjarunglinga í bænum á laugardagskvöldið. Þeir unglingar sem útideild og lögregla könnuðust við og höfðu ekki aldur til útiveru eða voru sjáanlega undir áhrifum áfengis eða höfðu áfengi undir höndum voru keyrð heim til foreldra eða foreldrar komu og sóttu þau,” segir Sigurður en vill taka það skýrt fram að engin ólæti hafi verið í unglingunum þegar lög- regla hafði afskipti af þeim þrátt fyrir mikla ölvun þeirra á meðal. Það eina sem hægt var að setja út á hegðun unglinganna, fyrir utan áfengisneysluna, var árátta þeirra til að henda frá sér tómum bjór- flöskum og voru því flöskubrot um allan miðbæinn þegar birti á sunnudeginum. 25 lögreglumenn voru á svæðinu Karl Hermannsson yfirlögreglu- þjónn segir að ástandið sem skapaðist um helgina í miðbæn- um hafi minnt á fyrri tíma þegar svokallað Hafnargötuvandamál var til staðar. Þessi mál hafa verið í ágætis standi síðustu ár, sem sé árangur af markvissri forvarna- stefnu bæjarins og samvinnu sveitarfélaga og foreldra. Karl segir að mikil ölvun hafi verið meðal unglinga á föstu- dagskvöldinu þegar þeir sóttu útitónleika í miðbænum. Hann og fleiri hafi varað við því að halda þessa tónleika á föstudags- kvöldi og það sem hann hafi ótt- ast hafi gerst og orðið jafnvel enn verra. Með þessu sé verið að bjóða hættunni heim. Foreldrar séu ekki til staðar og unglingarnir falli inn í næturlífstemminguna í miðbænum. Þegar þetta sé skipu- lagt af bæjaryfirvöldum í tengsl- um við Ljósanótt, sem eigi að vera fjölskylduhátíð, þá sé verið að gefa skilaboð til foreldra um að nú sé Ljósanótt og þá sé allt í lagi að unglingarnir safnist eftir- litslaust saman í miðbænum. Á þessa tónleika hafi einnig komið unglingar frá nærliggjandi sveit- arfélögum og unglingar fjöl- skyldna sem sótt haf i bæinn heim á Ljósanótt. Þetta er fyrst og fremst vandamál foreldra en ekki unglingavandamál og þeir sem skipuleggja þetta séu bæjar- yfirvöld. Karl segir að hringt hafi verið í foreldra og þeir beðnir um að sækja börn sín, en nokkur dæmi hafi komið upp þar sem foreldr- arnir hafi ekið börnum sínum í miðbæinn aftur. Gerðar séu skýrslur um öll afskipti af ung- lingunum og þær sendar til fé- lagsmálayfirvalda. Aðspurður segir Karl að talsvert hafi verið um að lögreglumenn hafi hellt niður áfengi hjá ung- lingum, bæði landa, bjór og sterku áfengi. Karl segir að enn meiri fjöldi unglinga hafi safnast saman í miðbænum á laugardagskvöld- inu, en þótt ölvun meðal þeirra hafi ekki verið eins almenn og á föstudagskvöldinu, þá hafi hún samt verið allt of mikil. “Við gerðum okkar besta. Við vorum með mikið lið lögreglumanna í miðbænum,” segir Karl en alls voru 25 lögreglumenn tiltækir á svæðinu á laugardagskvöldið, þar af voru 14 lögreglumenn í miðbænum, auk björgunarsveit- armanna og starfsmanna Úti- deildar. Karl segist vona að þetta sé ekki það sem koma skal,að foreldrar leyfi börnum sínum að haga sér með þessum hætti og allir leggist á eitt að koma í veg fyrir að svona ástand skapist aftur. Það verði að vanda skipulagn- ingu á skemmtanahaldi fyrir þennan aldurshóp á Ljósanótt, annars megi búast við að Ljósa- nóttin fái á sig svipaðan stimpil og “Halló Akureyri” á sínum tíma. Verið að skoða að beita sektum “Útideildin okkar og lögregla hafa starfað mjög vel saman á undanförnum árum og við erum fljót að skynja ef eitthvað er að fara á annan veg en við viljum. Við sáum því fljótt að of margir foreldrar voru afskiptalausir um börn sín, sérstaklega á aðfar- arnótt sunnudags og við viljum strax ná til þessara barna og for- eldra þeirra,” segir Stefán Bjarka- son framkvæmdastjóri menning- ar-, íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar. Hann segir for- eldra þeirra barna sem voru í miðbæ Keflavíkur fram á nótt um helgina, langt umfram úti- vistartíma, hafa brugðist. Það sem snúi að löggæslu, Útideild og Reykjanesbæ hafi gengið mjög vel. “En það er ótrúlegt að maður þurfi að spyrja sig þeirrar spurningar hvað þurfi að ganga langt til að vekja foreldra þeirra barna sem voru í miðbænum langt umfram útivistartíma? Það er auðvitað gríðarlega svekkjandi að horfa á unglinga koma aftur niður í bæ korteri eftir að þeim var ekið heim, af Útideild eins og virðist hafa gerst í nokkrum til- vikum.” Stefán segir að nú sé verið að íhuga þann möguleika að beita sektargreiðslum ef um ítrekuð af- skipti Útideildar af sama unglingi sé að ræða. “Það er verið að ræða það núna að láta þá foreldra, sem ítrekað virða ekki útivistartíma, greiða fyrir rekstur Útideildar- innar sem þýðir það að við ítrek- Unglingadrykkja Afturhvarf til fortíðar eða agaleysi? M ikið bar á ölvununglinga í miðbæKeflavíkur sl. föstudags- og laugardags- kvöld og höfðu lögreglu- menn afskipti af fjölda unglinga vegna brota á úti- vistartíma og vegna áfeng- isneyslu. Nokkur dæmi voru um að foreldrar ung- linga keyrðu þau aftur í miðbæ Keflavíkur, eftir að lögregla hafði keyrt ung- lingunum heim.Víkurfrétt- ir hafa heimildir fyrir því að töluverður fjöldi ung- menna búsettum í nágrannasveitarfélögum Reykjanesbæjar hafi verið í miðbæ Keflavíkur um helg- ina og að Útideild Hafnar- fjarðar hafi verið að störf- um í Keflavík til að fylgjast með unglingum úr Hafnar- firði. Í dagbók lögreglunn- ar í Keflavík segir að á föstudagskvöldið hafi mik- ill fjöldi unglinga safnast saman í miðbænum eftir útitónleika sem lauk klukk- an 22. “Lögreglan og úti- deild höfðu afskipti af nokkrum unglingum vegna útivistarbrota. Voru ung- mennin ýmist sótt af for- eldrum eða þeim ekið heim. Of mikið bar á ölvun meðal unglinganna og hafði lög- reglan afskipti af nokkrum þeirra sem voru búin að neyta áfengis. Áfengi, bjór og landi var tekinn af nokkrum þeirra og einnig var nokkru hellt niður af áfengi. Einn maður gisti fangageymslu vegna ölvun- ar,” segir í dagbók lögregl- unnar fyrir föstudags- kvöldið. Í dagbókinni fyrir laugardagskvöldið er áfram greint frá fjölda ung- linga sem safnast höfðu saman í miðbænum. Þar segir. “Lögreglumenn höfðu afskipti af fjölda ungmenna í miðbænum sem færð voru í öryggis- miðstöð þar sem útideild og fjölskyldu- og félagsþjón- usta var til húsa.Var það vegna brota á útivistará- kvæðum og áfengisneyslu. Voru ungmennin sótt af foreldrum sínum eða ekið heim af starfsfólki útideild- ar.Talsvert var tekið af áfengi og “landa” og einnig einhverju hellt niður.” FORELDRAR? Hvar voru Auglýsingasíminn 421 0000 ÞARFTU AÐ AUGLÝSA? Úr barnaverndarlögum 92. gr. Útivistartími barna. “Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðn- um. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á al- mannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivist- artími barna um tvær klukkustund- ir. Aldursmörk þessa ákvæðis mið- ast við fæðingarár en ekki fæðing- ardag.” M yn d frá Lj ós an ót t 2 00 3. Fó lk ið á m yn di nn i t en gi st ek ki ef ni fr ét ta rin na r. - hundruðir unglinga söfnuðust saman í miðbæ Keflavíkur um síðustu helgi eftir að formlegri dagskrá ljósanætur á föstudegi og laugardegi lauk. Ýmsir aðilar sem koma að forvarnamálum í Reykjanesbæ hafa áhyggjur af því ástandi sem skapaðist í miðbænum. VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 13:14 Page 20

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.