Víkurfréttir - 11.09.2003, Page 22
VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 5. SEPTEMBER 2003 I 23
Starfið felst í Blue Lagoon spa nuddi og líkamsmeðferðum sem fara fram í Bláa lóninu
undir berum himni og eru byggðar á einstökum virkum efnum heilsulindarinnar.
Við leitum að metnaðarfullum starfsmanni sem vill starfa hjá heilsulind á heimsmælikvarða
og taka þátt í þróun á spa nuddi og meðferðum. Skilyrði er að viðkomandi
hafi réttindi sem nuddari og góða tungumálakunnáttu.
Umsóknir sendist Bláa Lóninu hf., Svartsengi, 240 Grindavík
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðunni www.bluelagoon.is
Nánari upplýsingar veittar í síma 420 8800.
Bláa Lónið óskar eftir að
ráða nuddara til starfa
!
" " # $ %
& '( $
%
) ) $
% *** + &
' +( &) $ , -
'
# .'
# / % ,
# / % # / -$ ,
# !0
%) # 1 '
2 % 3 Krakkar á leikskólanum Gimli
hreinsuðu til í Barnalundi fyrir
ofan Gónhól á dögunum.
Krakkarnir hreinsuðu lundinn
ásamt því að laga til í honum.
Skilti sem fest hafði verið á
stein í lundinum var dottið nið-
ur, en skiltið var sett upp í til-
efni þess að Vigdís Finnboga-
dóttir fyrrverandi forseti Ís-
lands gróðursetti tré í lundin-
um árið 1990. Krakkarnir
voru ánægðir með lundinn og
var spennandi að fylgjast með
bæjarstarfsmönnum festa
skiltið á nýjan leik á steininn.
Hreinsað til í Barnalundi
Frá árinu 1990 hefur íbú-um Gerðahrepps fjölgaðum rúm 18% eða úr
tæpum 1100 í um 1300 íbúa. Á
þessu tímabili hefur orðið gjör-
bylting í umhverfismálum
sveitarfélagsins. Grænum
svæðum hefur fjölgað og stórá-
tak gert í að malbika götur og
steypa gangstéttar. Á þessu
tímabili hefur þurft að útbúa
margar nýjar götur vegna
fjölgunar íbúa með þeim
kostnaði sem því fylgir.
Um þessar mundir fagna Garð-
búar 10 ára afmælis Íþróttamið-
stöðvarinnar. Bygging hennar var
gífurlega stórt átak miðað við
íbúafjölda sveitarfélagsins.
Gerðaskóli var stækkaður og öll
vinnuaðstaða bætt mjög og er
skólinn nú einsetinn. Nýr leik-
skóli var byggður. Áfram er unn-
ið að frekari uppbyggingu sveit-
arfélagsins og má þar nefna upp-
byggingu öldrunarmála í ná-
grenni við hjúkrunarheimilið
Garðvang. Í undirbúningi er
stækkun Byggðasafnsins. Þá er
framundan stækkun leikskólans
og frekari stækkun Gerðaskóla,
auk annarra hefðbundinna verk-
efna, sem ávallt eru í gangi.
Þrátt fyrir alla uppbygginguna og
framkvæmdir eru skuldir Gerða-
hrepps ekki nema 306 þús. á íbúa
í árslok 2002 (samburðartala frá
2001 er 270 þús.). Þetta eru
lægstu skuldir á íbúa allra sveit-
arfélaganna á Suðurnesjum í árs-
lok 2002.
Eignaaukning sveitarfélagsins er
mikil á þessu tímabili og einnig
má benda á eign Gerðahrepps í
Hitaveitu Suðurnesja, sem er að
nafnverði 344 milljónir en sölu-
verð væri mun meira. Staða
Gerðahrepps er því mjög sterk,
segir á vef sveitarfélagsins.
ÍBÚAR Í GARÐI
ORÐNIR 1300
Auglýsingasíminn
421 0000
VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 13:27 Page 23