Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 4
Ákvörðun um byggingu Stál- pípuverksmiðju í Helguvík mun liggja fyrir innan fjögurra vikna að sögn Barry Bernstein aðaleig- anda International Pipe and tube. Forsvarsmenn fyrirtækisins skoð- uðu framkvæmdir í Helguvík á þriðjudag og ræddu einnig við forystumenn íslenskra banka um hugsanlega aðkomu þeirra að fjármögnun vegna byggingar verksmiðju fyrirtækisins í Helgu- vík. Barry Bernstein sagði í samtali við Víkurfréttir að hann væri mjög bjartsýnn á að stálpípu- verksmiðjan yrði reist í Helgu- vík. „Framkvæmdir ganga vel hér og ég verð að segja að Ís- lenskir Aðalverktakar hafa unnið mjög gott starf hérna á svæðinu,” sagði Bernstein. Aðspurður um aðkomu íslenskra banka að fjár- mögnun verkefnisins sagðist hann vilja fá þá að verkefninu. „Við höfum átt árangursríka fundi með íslenskum banka- mönnum og við viljum sjá ís- lenska banka taka þátt í fjár- mögnun verksmiðjunnar. Við erum einnig í samstarf i við banka í Evrópu og þeir vilja ein- nig sjá íslenska banka koma að verkefninu.” Bernstein segir að samstarfið við Reykjanesbæ hafi verið með ein- dæmum gott. „Við höfum átt mjög gott samstarf við bæjaryfir- völd sem hafa unnið vel að þessu verkefni. Til samanburðar yrði mun erfiðara að eiga við stjórn- völd í Bandaríkjunum varðandi byggingu á slíkri verksmiðju,” sagði Barry Bernstein en hann fór af landi brott í gær. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar sagðist ánægður að heyra að íslenskir bankar kæmu til greina sem fjármögn- unaraðilar verkefnisins. „Við- skiptaáætlun fyrirtækisins gefur tilefni til að íslenskum bönkum þyki það fýsilegur kostur að taka þátt í fjármögnun verkefnisins. Það er einnig mjög ánægjulegt að íslenskt bankaumhverfi geti tekið þátt í slíkum verkefnum, en fyrir ári síðan hefði það verið óhugs- andi vegna vaxtakjara.” Árni segist vera hóflega bjart- sýnn á að verksmiðjan rísi í Helguvík. „Ég hef alltaf verið hóflega bjartsýnn og held því áfram. Ég fagna ekki fyrr en búið er að skrifa undir,” sagði Árni í samtali við Víkurfréttir. 4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Jólablaðið 2003 kemur út í næstu viku. Auglýsingadeildin opin á laugardag kl. 11-15. Síminn er 421 0000 ➤ S TÁ L P Í P U V E R K S M I Ð J A Í H E L G U V Í K Ákvörðun tekin á næstu fjórum vikum -aðaleigandi fyrirtækisins mjög bjartsýnn Auglýsingasíminn 421 0000 ÞARFTU AÐ AUGLÝSA? Forsvarsmenn IPT ásamt hafnarstjóra Reykjaneshafnar með ál úr Helguvík. Fulltrúar IPT, bæjarins og Íslenskra aðalverktaka á framkvæmdsvæðinu í Helguvík í fyrradag. Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:33 Page 4

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.