Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! S tefnt er að því að menn-ingarmiðstöð ungs fólks íReykjanesbæ að Hafnar- götu 88 verði opnuð fyrir jól að sögn Hafþórs Barða Birgis- sonar forstöðumanns. Húsið hefur hlotið nafnið 88 húsið og þar verður ýmiskonar tóm- stundaaðstaða fyrir ungt fólk 16 ára og eldra. Við skipulagn- ingu hússins er stuðst við hug- myndafræði Apóteksins, menningarmiðstöðvar ungs fólks á Ísafirði. Opnuð hefur verið heimasíða 88 hússins á slóðinni www.88.is Endurbættur vefur Reykjanesbæjar er núkominn í loftið. Leiðarkerfi var tekið tilgagngerrar endurskoðunar með það að markmiði að einfalda leið notenda að upplýsing- um en að auki eru dregnar fram mest sóttu upp- lýsingar um rekstur sveitarfélagsins s.s. fjár- málaupplýsingar, ný verkefni, netföng starfs- manna, nýjar fundargerðir og kort og myndir. Meðal nýjunga eru gagnasafn, fyrirspurnir, betri leit í fundargerðum, flýtileiðir, póstlisti og markaðs- svæði á ensku. Hægt er að prenta út síður og stækka og minnka letur. Vefurinn er unninn í nýjustu útgáfu af GoProWeb sem nefndur er Vefþór frá Hugviti sem mörg af stærri sveitarfélögunum nota. Hönnun útlits var í höndum Atómstöðvarinnar en um þarfa- greiningu sáu Sjá ehf. Endurbættur vefur Reykjanesbæjar Fjölskyldan - Líknarfélag stendur fyrir fjöl- skyldudegi á Ránni í samvinnu við Björn Vífil. Fjölskyldan - Líknarfélag er kristilegt félag sjálfboðaliða sem vinna að mannúðarmálum í víðum skilningi hér á landi og víðar. Þeir hafa látið til sín taka við trúboð og ýmiss hjálpar- störf víðs vegar í heiminum bæði meðal ríkra þjóða sem fá- tækra. Börnin koma. Dagskráin nefnist börnin koma. Fjölskyldudagur á Ránni, sunnudag- inn 14. desember kl. 14-16. Dagskráin hefst með hugvekju sem Ástríður Sigurðardóttir guðfræðingur flytur. Svo fáum við trúð sem býr til falleg og skemmtileg blöðrudýr. Leiklestur úr bókaflokknum „Þroskandi sögum“ sem Fjöl- skyldan-Líknarfélag gefur út í íslenskri útgáfu. Svo verða sungin ýmis jólalög og söngvar sem tengjast jólunum. Guðbjörg Sigurðardóttir þýð- andi bókanna segir frá og les kafla úr bókinni Jólaleyndar- mál, sem er heillandi saga sem öll börn vilja hlusta á. Að lok- um kemur jólasveinninn Giljagaur og vitið hvað hann verður með í pokanum. Öllum heimill aðgangur á meðan hús- rúm leyfir og gleymið ekki jólaskapinu. Börnum verður gefið gos og kaka og fullorðnir fá kaffi og piparkökur. Fréttatilkynning. Fjölskyldudagur á Ránni Stefnt að opnun 88 hússins fyrir jól Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Úr einum af sal menningarmiðstöðvar ungs fólks við Hafnargötu 88 í Keflavík. ® Síminn er 421 0000 VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 14:00 Page 28

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.