Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 36
36 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
L itlu mátti muna að drag-nótarbáturinn GuðrúnHF hafi strandað í fjör-
unni við Sandvík út af Höfnum
á Reykjanesi um hádegisbil á
föstudag en báturinn fékk veið-
arfærin í skrúfuna. Það var
dragnótarbáturinn Benni Sæm
GK 26 sem bjargaði bátnum
frá strandi, en báðir bátarnir
voru að veiðum út af Sandvík.
Halldór Valdimarsson skip-
stjóri á Benna Sæm sagði í
samtali við Víkurfréttir að það
hefði engu mátt muna að illa
færi. „Guðrún var innan við
hálfa mílu frá fjörunni þegar
við komum spotta í hana. Ég
var nýbúinn að kasta, en þegar
þeir kölluðu setti ég belgi á tóg-
in og dreif mig af stað.” Hall-
dór segir að það hafi verið
álandsvindur og töluverð hvika
í sjónum. „Það gekk vel að
koma taug í bátinn og við fór-
um með hann í Sandgerði,”
sagði Halldór í samtali við Vík-
urfréttir.
„Við vorum í engri hættu þannig
séð, en þetta hefði getað farið
verr ef Benni Sæm hefði ekki
verið svona nálægt okkur,” segir
Sigurður Aðalsteinsson útgerðar-
maður dragnótarbátsins Guðrún-
ar HF. Sigurður segir að belgur-
inn hafi farið í skrúfuna þegar
þeir voru að toga. „Við vorum að
toga nálægt landi og Benni Sæm
var um 500 metra frá okkur. Við
kölluðum strax í hann því við
vissum að hann yrði fljótur til
okkar.”
Sigurður segir að þeir hafi ekki
þurft að kasta akkerum til að
varna því að þeir myndu reka
upp í fjöru. „Við hefðum notað
akkerin ef Benni Sæm hefði ekki
verið svona nálægt okkur. Það
hefði ekki tekið nema um 5 -6
mínútur að reka upp í fjöru.”
Vel gekk að draga skipið til hafn-
ar í Sandgerði, en þó slitnaði
taugin á milli skipanna einu
sinni.
Guðrún HF 172 er tæplega 78
brúttórúmlesta skip smíðað árið
1974.
Bandaríski sendiherr-ann, James J. Gadsenheimsótti Reykjanes-
bæ föstudaginn 5. des. Árni
Sigfússon bæjarstjóri tók á
móti sendiherranum og eftir
fundinn var farið í skoðunar-
ferð um bæinn, boðið í Kaffi-
tár, framkvæmdir í Helguvík
skoðaðar, söfnin í Duushús-
um, snætt á Ránni og lista-
mennirnir Sossa og Ásta
Pálsdóttir heimsóttar.
Sendiherrann hafði á orði að
mikill menningarbragur
væri á Reykjanesbæ og auð-
séð að bæjaryfirvöld hefðu
bjarta og metnaðarfulla sýn
til framtíðar.
stuttar
f r é t t i r
Bæjarstjórn Sand-
gerðis ályktar um
fjöldauppsagnir
F jöldauppsagnir Varn-arliðsins á Keflavík-urflugvelli voru til
umræðu á
fundi bæjar-
stjórnar
Sandgerðis-
bæjar í gær-
kvöld þar
sem Ólafur
Þór Ólafsson bæjarfulltrúi
lagði fram tillögu sem sam-
þykkt var samhljóða af
bæjarstjórn.
Í tillögunni skorar bæjarstjórn
Sandgerðisbæjar á ríkisstjórn
Íslands að bregðast við
fjöldauppsögnum hjá Varnar-
liðinu.
„Bæjarstjórn Sandgerðisbæj-
ar tekur undir skoðun SSS og
ítrekar áskorun og bókun sína
frá 12.11.2003 til ríkisstjórnar
Íslands um viðbrögð við upp-
sögnum á Keflavíkurflug-
velli.
Jafnframt telur bæjarstjórnin
nauðsynlegt að viðræður
stjórnvalda og heimamanna
um stöðuna í atvinnumálum á
Suðurnesjum fari fram hið
fyrsta.
Bæjarstjórn telur rétt að
stjórn SSS standi að umrædd-
um viðræðum.”
Dagana 26. - 30. nóvember fór fram píanókeppni Íslands-deildar European Pianoteachers Association, EPTA.Keppnin fór fram í Salnum í Kópavogi. Tónlistarskóli
Reykjanesbæjar sendi 4 nemendur í keppnina. Nemendurnir
stóðu sig mjög vel þrátt fyrir að komast ekki á verðlaunapall og
veitti Tónlistarskóli Reykjanesbæjar þeim viðurkenningar fyrir
þátttöku í keppninni. Haraldur Árni sagði hópinn hafa staðið sig
mjög vel og að þau hafi verið skólanum til mikils sóma.
TÓKU ÞÁTT Í PÍANÓKEPPNI
F.v. Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri, Brynhildur Ágústsdóttir kennari, Halldór Gylfason, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Sigtryggur Kjartansson,
Stefanía Hildur Stefánsdóttir, Ragnheiður Skúladóttir kennari, Steinar Guðmundsson kennari, Karen Sturlaugsson aðstoðarskólastjóri.
Guðrún HF í togi Benna Sæm GK.
BÁTI BJARGAÐ FRÁ
STRANDI Á REYKJANESI
VF
-lj
ós
m
yn
d/
Be
rg
ur
Þ
ór
Eg
ge
rt
ss
on
Að
se
nd
ljó
sm
yn
d
Bandaríski sendiherrann
í Reykjanesbæ
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Jólafagnaður
starfsfólks Langbest
Lokum laugardaginn 13. desem-
ber kl. 20 vegna jólafagnaðar
starfsfólks, opnum aftur sun-
nudaginn 14. desember kl. 14.
Starfsfólk Langbest
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 14:02 Page 36