Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MUNDI
Þau á Heilbrigðisstofnuninni
voru víst búnir að reyna að
rækta vefinn á rannsókna-
stofunni án árangurs!
H vert samfélag er byggt upp af þvífólki sem í því býr og gerð þess oggæði velta á fólkinu. Sumir hafa
bundist samtökum sem stuðla að því að
gera samfélagið betra og manneskjulegra
og leggja mikið á sig til að svo megi verða.
Ein slík samtök, sem hér starfa, eru
Kiwanisklúbburinn Keilir. Aðal fjáröfl-
unarleið félagsmanna er sala á jólatrjám.
Öll vinna í kringum söluna er unnin í
sjálfboðavinnu og þeir fjármunir sem afl-
ast hafa í gegnum árin runnið til einstak-
linga, félagasamtaka og sjúkrahússins.
Um er að ræða verulega fjárhæðir sem
virkilega hefur munað um fyrir þá sem
notið hafa.
Ég vil leyfa mér að skora á Suðurnesjamenn
að leggja Kiwanismönnum lið með því að
kaupa jólatrén hjá þeim og eiga þannig þátt í
að leggja góðum málefnum í samfélaginu
okkar lið. Suðurnesja menn! Verslum
heima! Verslum hjá þeim sem sinna samfé-
laginu!
VERSLUM VIÐ KIWANIS!
Þórdís Þormóðsdóttir
Jólatrésala Kiwanis hefst n.k. föstudag 12.
desember kl. 17:00 og verður opin öll kvöld
og frá kl. 14:00 - 22:00 um helgar til jóla.
Kaupum jólatrén heima
➤ A M S T U R J Ó L A N N A
- verslum við Kiwanis
Fyrir helgi opnaði Heil-brigðisstofnun Suður-nesja nýjan vef www
.hss.is. Á vefnum er að finna
upplýsingar um stofnunina og
starfsfólk hennar. Stefnt er að
því að halda úti lifandi vef sem
geti nýst sem upplýsinga-
brunnur fyrir skjólstæðinga og
starfsfólk HSS.
Í byrjun nóvember var einnig
opnaður innrivefur HSS sem er
sameiginlegur gagnagrunnur
starfsmanna. Í ávarpi fram-
kvæmdastjóra kemur m.a. fram
að miklir breytingatímar séu
framundan og því muni vefurinn
nýtast vel til upplýsingagjafar
fyrir stofnunina. Vefumsjónar-
kerfi vefsíðunnar er keyrt á Con-
man 2.0 frá fyrirtækinu Dacoda í
Reykjanesbæ. Vefslóð heimasíðu
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
er www.hss.is
Nýr vefur Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja
Jólablaðið
2003
kemur út í næstu viku.
Auglýsingadeildin
opin á laugar-
dag kl. 11-15.
Síminn er
421 0000
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
H
ilm
ar
B
ra
gi
B
ár
ða
rs
on
Að
se
nd
ljó
sm
yn
d
Bárður Sindri Hilmarsson, fréttastjórasonur, skoðar jólaskraut á trénu í Stapa um síðustu helgi.
Frá opnun á nýjum vef Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 12:44 Page 10