Víkurfréttir - 11.12.2003, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ AT H A F N A S VÆ Ð I Ð Í H E L G U V Í K stuttar
f r é t t i r
stuttar
f r é t t i r
Forvarnarstefna
Reykjanesbæjar
samþykkt
Fo r v a r n a r s t e f n aReykjanesbæjar varsamþykkt í bæjar-
stjórn 18. nóvember sl. Við
gerð forvarnarstefnunnar
var leitað eftir samstarfi við
stofnanir innan Reykjanes-
bæjar auk félaga og félaga-
samtaka innan bæjarfélags-
ins sem hafa forvarnir á
sinni dagskrá. Með því að
tengja saman þátttakendur
við forvarnarstefnu Reykja-
nesbæjar er það skoðun
vinnuhóps að stefnan verði í
framtíðinni ávallt í endur-
skoðun og gott hjálpartæki
til að efla forvarnir í sveit-
arfélaginu.
Lagt er til í framhaldi að
stofnað verði forvarnarteymi
sem í sitja einn fulltrúi frá
hverju ráði og sviði Reykja-
nesbæjar og verður hlutverk
hans að fylgjast með fram-
kvæmd forvarnarstefnunnar.
Forvarnar- og æskulýðsfull-
trúi mun boða þá sem komu
að forvarnarstefnunni til sam-
ráðsfundar einu sinni á ári til
að meta hvernig til hefur tek-
ist.
Skipað var í vinnuhóp í lok
janúar sl. og var hlutverk hans
að gera drög að forvarnar-
stefnu Reykjanesbæjar. Í
vinnuhópnum áttu sæti Ragn-
ar Örn Pétursson forvarnar-
og æskulýðsfulltrúi hjá
menningar-, íþrótta- og tóm-
stundasviði, Rannveig Einars-
dóttir yfirfélagsráðgjafi frá
fjölskyldu- og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar og Gylfi Jón
Gylfason yfirsálfræðingur frá
fræðsluskrifstofu.
Kvenfélögin í Keflavík,Njarðvík, Sandgerði,Garði og Vogum hafa
ákveðið að taka höndum sam-
an og standa fyrir söfnun nú
fyrir jólin til handa fjölskyld-
um og einstaklingum í sveitar-
félögunum sem hafa úr litlu að
spila. Hugmyndin er sam-
bærileg og hjá Mæðrastyrks-
nefnd í Reykjavík. Æskilegt er
að framlög séu í formi matar,
gjafakorta eða peninga. Ekki
er talin ástæða til að taka við
fatnaði, þar sem Suðurnesja-
deild RKÍ sér um þann þátt.
Þeir sem vilja láta eitthvað af
hendi rakna eru beðnir að hafa
samband við Ragnhildi Ragnars-
dóttur í síma 421 1344, Sjöfn Ol-
geirsdóttur í síma 846 0542,
Helgu Valdimarsdóttur í síma
421 5029, Hönnu Helgadóttur í
síma 424 6550, Valdísi Sigurðar-
dóttur í síma 423 7887 eða
Sylvíu Hallsdóttur í síma 862
7044.
Tekið verður á móti umsóknum
um aðstoð mánudaginn 15. og
þriðjudaginn 16. des. milli kl. 14
og 19 í Svarta pakkhúsinu, Hafn-
argötu 2 í Keflavík, Reykjanes-
bæ. Afgreiðsla umsókna fer
fram á Þorláksmessu á sama stað
milli kl. 14 og 19.
Við hvetjum félagasamtök, versl-
unareigendur, atvinnurekendur
og einstaklinga á Suðurnesjum
til að leggja sitt að mörkum til
þess að sem flestir íbúar svæðis-
ins geti átt möguleika á áhyggju-
litlum jólum þetta árið.
Kvenfélögin í Keflavík, Njarð-
vík, Sandgerði, Garði og Vog-
um.
S lökkviliðsmenn Bruna-varna Suðurnesja vorukallaðir um síðustu helgi
í Helguvík til að úða vatni yfir
álgjall en frá gjallinu lagði
megna ammoníakslykt. Gjallið
hafði verið losað utandyra en
við það að blotna myndast
mengunarský sem leggur af
megna ammoníakslykt. Endur-
vinnsla á áli er nýlega hafin í
Helguvík. Starfsmenn Ís-
lenskra aðalverktaka, sem voru
að störfum í Helguvík fengu að
kenna á ammoníaksskýinu.
Áhrifin leggjast á öndunarveg
og augu. Þannig velur lyktin
því að menn fá flensueinkenni
og verður flökurt. Um tíma
stóð til að hætta vinnu í Helgu-
vík vegna þessa. Mengunarský-
ið var staðbundið í Helguvík.
Þar var nær logn.
Slökkvilið slær á ammoníaksmengun
Stuðningur til
að mæta fátækt
á Suðurnesjum
fyrir jólin
Lífseig hola
veldur tjóni
Ímorgunsárið á föstudagvar eitthvað um að öku-menn tilkynntu til lög-
reglu um holu við eystri hjá-
leiðina á Reykjanesbraut-
inni sem er austan við
Hvassahraun. Nokkuð var
um að hjólbarðar skemmd-
ust þegar ökumenn óku í
umrædda holu en þessi hola
virðist myndast ítrekað í
vatnsveðri þrátt fyrir við-
leitni framkvæmdaraðila á
svæðinu við að fylla holuna
með olíumöl.
Fjórir bílar í árekstri
á bílastæði
Fyrir helgi var tilkynntum umferðaróhapp ábílastæði við Mávabraut
7, Keflavík. Þarna hafði orðið
árekstur tveggja bifreiða og
síðan kom önnur bifreið sem
lenti á annarri þeirra úr fyrri
árekstrinum og síðan á þeirri
fjórðu sem stóð á bílastæðinu.
Minni háttar skemmdir urðu á
bílunum.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Slökkviliðsmenn og starfsmenn
SR-mjöls í Helguvík á þeim slóðum
þar sem úða þurfti yfir álgjallið.
Umferðaróhapp. Mynd úr safni.
Reykjanesbraut í Hvassahrauni.
Myndin tekin sumarið 2003.
!
"
#$%
#&
#'#$%
#&
#()
* +,--
!,
! !
"# ! $ #
##
% &
!&
&
#
%
!!
!
#
Jólablaðið er í næstu viku.
Ert þú búinn að panta auglýsingapláss
eða senda jólakveðju?
Opið hjá Víkurfréttum á laugardaginn.
Síminn er 421 0000
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:34 Page 6