Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 16

Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 16
Í frétt Morgunblaðsins í síð-ustu viku er fjallað um aðvegafé verði lækkað um 1,5 milljarða króna í fjárlögum næsta árs. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir í sam- tali við Morgunblaðið að lækk- un fjárveitinga í Norðaustur,- Norðvestur- og Suðurkjör- dæmi nemi um 300 milljónum króna í hverju kjördæmi. Samgöngu- ráðherra sagði aðspurður um áhrif á einstakar framkvæmdir að ekkert yrði hróflað við tvöföldun Reykjanesbrautar. Steinþór Jóns- son forsvarsmaður áhugahóps um örugga Reykjanesbraut undr- ast ummæli samgönguráðherra og lítur þannig á að um einhvern misskilningi hljóti að vera að ræða. „Það er ekkert fé bundið í Reykjanesbraut á næsta ári og því undrast ég um- mæli ráðherra um að ekki verði hróflað við tvöfölduninni. Hvernig er hægt að segja að ekki verði skorið niður fjármagn sem er ekki til staðar. Hönnun á síð- asta áfanga tvöföldunar er þegar lokið og ekkert því til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir og klára þær. Það hlýtur að vera kominn tími til að þingmenn svæðisins hittist og tali saman og stjórnvöld verði krafin svara um framhald- ið,“ sagði Steinþór í samtali við Víkurfréttir. 16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ➤ T V Ö F Ö L D U N R E Y K J A N E S B R A U TA R Jón Gunnarsson þingmaður Samfylkingarinnar Hvað finnst þér að ætti að gera? Það liggur ekkert fyrir og engir fjármunir til að flýta þessu eitt eða neitt. Það er verið að tala um að breikkun brautarinnar ljúki árið 2014. Nú hefur áhugahópur um örugga Reykjanesbraut komið fram með þá staðreynd að einn einstakling- ur látist með rúmlega þriggja mánaða millibili. Hvað finnst þér um þá staðreynd? Mér finnst engin spurning úr því menn byrjuðu á þessu að það eigi að ljúka breikkun brautarinnar. Það eru allir sammála um að það þurfi að gera og ég sé ekki til- ganginn með því að fresta þessu. Ætlar þú, sem þingmaður Suður- kjördæmis, beita þér eitthvað í þessu máli? Ég mun örugglega gera það. Muntu ræða við samgönguráð- herra eða þingmannahóp Suður- nesja? Ég vona allavega að þingmanna- hópurinn sé allur tilbúinn til að ýta á eftir þessu. Ég mun áfram ýta á eftir málinu. Hjálmar Árnason þingmaður Framsóknarflokksins Hvernig líst þér á stöðuna eins og hún er í dag? Ég er ánægður með það sem gert hefur verið. Það hefur náðst mik- ill áfangasigur sem var ekki átakalaus og trúi því að við mun- um halda áfram að vinna slíka sigra. Er samstaða þingmannahóps Suðurnesja sterk í þessu máli? Ef ekki er samstaða innan þing- mannahópsins þá er málið dautt. Í öllum stærri verkefnum þá verður þingmannahópurinn að snúa bökum saman og ég trúi ekki öðru en að slík samstaða sé fyrir hendi. Á 99 daga fresti lætur einstak- lingur lífið á Reykjanesbraut. Áttaðir þú þig á þessum tölum? Já þetta eru tölur sem við höfum farið vel yfir og í úttektum vega- gerðarinnar kom í ljós að Reykjanesbrautin í þriðja sæti hvað varðar áhættu, á eftir Vest- urlandsvegi og Suðurlandsvegi. Það breytir samt ekki þeirri stað- reynd að eitt dauðaslys er einu dauðaslysi of mikið. Umferð á bara eftir að vaxa á Reykjanes- braut, m.a. vegna aukinnar ferða- þjónustu. Munt þú beita þér í þessu máli á næstunni? Ég held áfram að vinna í þessu máli eins og ég hef verið að gera og engan bilbug að finna á mér í því. Grétar Mar Jónsson varaþing- maður Frjálslynda flokksins Hvernig líst þér á stöðu mála í sambandi við tvöföldun Reykja- nesbrautarinnar? Það er mikið atriði fyrir okkur að fá flýtiframkvæmd á tvöföldun Reykjansbrautar. Margir þingmenn tala um að samstaða þingmannahópsins skipti miklu máli. Telurðu þessa samstöðu vera til staðar í mál- inu? Ég get ekki ímyndað mér annað en auðvitað kemur að því að for- gangsraða peningum. Ég segi fyrir mig og tel að það eigi að setja fjármagn í tvöföldunina strax til að halda áfram. Á 99 daga fresti lætur einstak- lingur lífið á Reykjanesbraut. Áttaðir þú þig á þessum tölum? Já maður áttar sig á þessum töl- um. Þegar ég var í Stýrimanna- skólanum keyrði ég brautina á hverjum degi, í öllum veðrum og ég veit hvaða hættu er um að ræða. Munt þú sem þingmaður Suður- kjördæmis beita þér í málinu? Ég mun gera það sem ég get og vekja athygli á þessu. Við erum í minnihluta sem stendur, en á meðan við erum í minnihluta getum við lítið annað gert en bent á að það sé nauðsynlegt að gera þetta. VIÐBRÖGÐ ÞINGMA NNA Tvöföldun Reykjanesbrautar verður á meðal forgangs-verkefna endurskoðaðrar samgönguáætlunar að sögnSturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Samgönguráðherra segir að í ráðherratíð sinni hafi tvöföldun Reykjanesbrautar hafist og að sá áfangi sem nú er unnið að hafi gengið vel og sé á undan áætlun. „Framvinda verksins mun síðan ráðast af fjárveitingum sem við munum veita til vegamála. Það liggur fyrir hvað verður gert á næsta ári. Nú er unnið að endur- skoðun á samgönguáætlun og þar vil ég minna á að tvöföldun Reykjanesbrautar er á meðal forgangsverkefna. Þetta er það eina sem ég vil segja um málið á þessu stigi,“ sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í samtali við Víkurfréttir. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri sagði í samtali við Víkurfréttir að endurskoðun samgönguáætlunar færi fram á Alþingi næsta vetur, þ.e. eftir ár. Slík endurskoðun fer fram á tveggja ára fresti. Það er því ljóst að miðað við þessi ummæli samgönguráðherra og vegamálastjóra að framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar munu stöðvast. Tvöföldun brautarinnar stöðvast Undrandi á ummælum ráðherra Áhugahópur um örugga Reykjanesbraut: VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 15:23 Page 16

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.