Víkurfréttir - 11.12.2003, Page 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ámorgun, föstudaginn12. desember stendurTónlistarskóli Reykja-
nesbæjar fyrir jólatónleikum
í Ytri-Njarðvíkurkirkju og
hefjast þeir kl.19.30. Á tón-
leikunum koma fram
Strengjasveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar- yngri og
eldri sveit, sönghópur úr
söngdeildinni og samspils-
hópar, m.a. gítarsamspil.
Einnig munu nemendur í
tónheyrn flytja takt-tónverk.
Mikil gróska er í hljómsveita-
og öðru samspils- og sam-
söngsstarfi í skólanum og er
töluverð áhersla lögð á þann
þátt tónlistarnámsins.
Nokkur fjölgun hefur orðið í
strengjadeild skólans í vetur,
t.a.m. hefur sellónemendum
fjölgað nokkuð auk þess sem
nokkrir nemendur hófu nám á
kontrabassa í haust. Þessi fjölg-
un nemenda á stærri strengja-
hljóðfærin er liður í markmið-
um skólans varðandi uppbygg-
ingu strengjadeildarinnar og er
það von skólans að nemendum
á þessi hljóðfæri fjölgi jafnt og
þétt.
Efnisskrá tónleikanna í Ytri-
Njarðvíkurkirkju á morgun
verður mjög fjölbreytt og að
sjálfsögðu eru tónleikarnir öll-
um opnir og aðgangur ókeypis.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Jólatónleikar strengjasveitar,
söng- og samspilshópa
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
Dorrit Moussaief forseta-frú keypti listaverk eftirFríðu Rögnvaldsdóttur
myndlistarkonu á jólasýningu
Norræna hússins sem nú
stendur yfir. Verkið sem for-
setafrúin keypti er skúlptúr
sem heitir Vasi á vegg. Fríða
sagði í samtali við Víkurfréttir
að hún væri í sjöunda himni.
„Auðvitað er það mikill heiður
að forsetafrúin kaupi verk af
mér. Ég er stolt af því.“
Fríða og Magdalena S. Þórisdótt-
ir sýna á jólasýningu Norræna
hússins sem opnaði 21. nóvem-
ber. Fríða sýnir lágmyndir í stey-
pu og striga og Magdalena sýnir
te og espresso hettur úr lopa, út-
saumað úr silki og perlum.
Í norræna húsinu mun ríkja sann-
kölluð jólastemning og verður
boðið upp á glögg og nýbakaðar
smákökur. Jólasýningin er sölu-
sýning og eru fjölmargir lista-
menn sem bjóða handverk sitt til
sölu. Sýningin er opin þriðjudaga
til sunnudaga frá kl. 12-17 og
stendur til 21. desember.
Forsetafrúin keypti
listaverk eftir Fríðu
Listaverkið Vasi á vegg sem forsetafrúin keypti á jólasýningu Norræna hússins,
en listaverkið er eftir Fríðu Rögnvaldsdóttur listakonu í Reykjanesbæ.
Listaverk Magdalenu S. Þórisdóttur á
sýningunni í Norræna húsinu.
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 15:22 Page 18