Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 26

Víkurfréttir - 11.12.2003, Side 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Aðalfundur Sjálfstæðis-félagsins í Keflavík varhaldinn 26. nóvember síðastliðinn. Á dagskrá fundar- ins voru hefðbundin aðalfund- arstörf en alþingismennirnir Guðjón Hjörleifsson og Kjart- an Ólafsson voru sérstakir heiðursgestir. Viktor B. Kjartansson tölvunar- fræðingur var kjörinn formaður. Viktor var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Keflavík og varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi. Einnig var Viktor fyrsti formaður Heimis ungra sjálfstæðismanna þegar félögin í Keflavík og Njarðvík sameinuðust í eitt félag 1994. Aðrir í stjórn voru kjörnir Sigurður Garðarsson, Ottó Jörg- ensen, Svanlaug Jónsdóttir, Hall- dór Björnsson, Jón Axelsson og Magnea Guðmundsdóttir. Málefnalegar umræður voru um atvinnu- og menntamálum og sátu þingmenn fyrir svörum fundarmanna. B lómaval og Kiwanis-klúbburinn Keilir hafanáð samkomulagi varðandi jólatrjásölu. Keilir mun kaupa tré af Blómavali. Þess í stað mun Blómaval vísa viðskiptavinum á jólatrjásölu Keilismanna. Eins og kunnugt er hafa Kiwanismenn selt jólatré í Reykjanesbæ mörg undanfarin ár og ágóði sölunnar runnið til líknarmála. Blómaval vill með samkomulaginu koma til móts við Keilismenn og þann tilgang sem salan hefur á þeirra veg- um. Að sögn Keilismanna meta þeir mikils þetta framtak Blómavalsmanna. Lestrarátakið heldur áfram í Reykjanesbæ. Á þriðjudag las Auður Guðvinsdóttir forstöðumaður Dvalarheimilisins Hlé- vangs fyrir vistmenn á Dagdvöl aldraðra við Suðurgötu. Auður las úr bókinni Lífsgleði eftir Þóri S. Guðbergsson, en kafl- inn sem Auður las ber nafnið Eitt hundrað ár á milli vina. Dagdvöl aldraðra skorar næst á Kaffitár og mun Inga Lóa Guðmundsdóttir lesa fyrir starfsmenn Kaffitárs nk. þriðjudag. Viktor Kjartansson kjörinn for- maður Sjálfstæðismanna í Keflavík ➤ S T J Ó R N M Á L ➤ L E S T R A R ÁTA K I Ð Í R E Y K J A N E S B Æ H E L D U R Á F R A M Hlévangur las fyrir Dagdvöl aldraðra J Ó L AT R J Á S A L A Blómaval og Keilir semja Jólamarkaður lista- oghandverksfólks verðurhaldinn í göngugötunni í Kjarna á aðventunni. Jóla- markaðurinn verður opinn föstudaginn 12. desember þar sem boðið verður upp á fjöl- breytt úrval handgerðra muna. Mikil gróska er í starfi lista- og handverksfólks á Reykjanesi og nokkuð víst að hægt verður að versla fjölbreyttar jólagjaf- ir. Kökubasar verður á staðn- um og margt fleira. Jólabasar í Kjarna Jólablaðið er í næstu viku. Ert þú búinn að panta auglýsingapláss eða senda jólakveðju? Opið hjá Víkurfréttum á laugardaginn. Síminn er 421 0000 Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Ví ku rfr ét ta m yn d: Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Auður Guðvinsdóttir við bóklesturinn á þriðjudaginn. Dansað kringum jólatré í Njarðvík. VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:39 Page 26

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.