Víkurfréttir - 11.12.2003, Qupperneq 42
42 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
NJARÐVÍK-SNÆFELL
Njarðvík vann stórsigur á Snæ-
felli á fimmtudaginn 105-68.
Njarðvíkingar höfðu forystu í
hálfleik en gerðu endanlega út
um leikinn á fyrstu fimm mínút-
um þriðja leikhluta.
Brenton Birmingham virðist vera
búinn að finna sig eftir að hafa
strítt við meiðsli í byrjun vetrar
og átti stórleik. „Brenton var al-
veg ótrúlegur í kvöld og var lang-
besti maðurinn á vellinum“,
sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Njarðvíkur, í leikslok. „Annars
var þetta bara framhald af því
sem við höfum verið að gera að
undanförnu og við spiluðum
leikinn mjög vel.“ Hann lýsti ein-
nig yfir ánægju sinni með ungu
strákana sem fengu tækifæri til
að sanna sig þegar sigurinn var í
höfn.
Brenton var stigahæstur Njarð-
víkinga með 29 stig og þar af
hitti hann úr 7 af 8 þriggja stiga
skotum sínum. Þar á eftir kom
Brandon Woudstra með 21 stig
og hann tók líka 12 fráköst, Frið-
rik Stefánsson skoraði 14 stig og
tók 10 fráköst og Páll Kristinsson
skoraði 14 einnig stig.
Stigahæstur Snæfellinga var
Dondrell Whitmore sem skoraði
16 stig, Corey Dickerson skoraði
14 og Sigurður Þorvaldsson 13.
HAMAR-GRINDAVÍK
Grindavík vann góðan útisigur á
Hamri á fimmtudaginn sem tap-
aði með því sínum fyrsta heima-
leik í vetur. Lokastaðan var 79-
87. Grindvíkingar leiddu framan
af en Hamarsmenn komust aftur
inn í leikinn í síðari hálfleik og
komust yfir á tímabili. Grindvík-
ingar náðu þó aftur undirtökun-
um og héldu órofinni sigurgöngu
sinni í deildinni áfram.
Friðrik Ingi, þjálfari Grindavíkur,
var ekki alveg sáttur við leik
sinna manna en var þó ánægður
með stigin tvö. „Við unnum, en
þetta var ekki fallegur sigur hjá
okkur. Við vorum ekki að spila
mjög vel heilt yf ir en áttum
nokkra góða kafla sem tryggðu
sigurinn. Gamli maðurinn [Guð-
mundur Bragason] var okkur
dýrmætur í kvöld og hélt okkur á
floti á tímabili.“
Darrel Lewis var stigahæstur
Grindvíkinga með 21 stig, Guð-
mundur Bragason skoraði 18 og
Helgi Jónas skoraði 15 stig og
gaf 8 stoðsendingar. Chris Dade
var stigahæstur Hamarsmanna
með 19 stig.
Grindvíkingar eru enn efstir í
deildinni og ósigraðir eftir 9 um-
ferðir en Njarðvík fylgir í
humátt á eftir og er í öðru sæti en
Snæfell er í því þriðja. Keflavík
getur komist upp fyrir Snæfell ef
þeir sigra KR á morgun.
KEFLAVÍK-KR
Keflavík vann öruggan heimasig-
ur á KR eftir tilþrifalítinn leik á
föstudaginn. Lokastaðan var
103-80 eftir að heimamenn
höfðu leitt allan leikinn. Leikur-
inn var lítið fyrir augað en engu
að síður var sorglegt að sjá hver-
su fáir mættu til að styðja sína
menn. Liggur nærri að fleiri hafi
verið niðri á parketinu en uppi í
stúku.
Falur Harðarson var sáttur við
stigin tvö en játaði að hans menn
hefðu ekki verið að spila sinn
besta leik. „Þetta var nokkuð ör-
uggt. Svo gátum við spilað á öll-
um í kvöld og hvílt menn fyrir
komandi átök.“
Stigahæstur Keflvíkinga var
Derrick Allen með 26 stig, 11
fráköst og 4 varin skot. Þar á eftir
kom Bradford með 19 stig og
Falur með 14.
Chris Woods var stigahæstur
KR-inga með 19 stig og Skarp-
héðinn Ingason og Jesper Sören-
sen skoruðu 13 stig hvor.
ÞÓR-KEFLAVÍK
Keflavík sótti Þór Þorlákshöfn
heim á sunnudaginn og sigraði
72-98. Keflavík stendur í strön-
gu um þessar mundir þar sem
þeir þurfa að spila fjölmarga leiki
í öllum keppnum, en þeir virðast
halda dampi þar sem þeir lögðu
KR á föstudaginn. En á miðviku-
daginn mun reyna verulega á þá
þar sem Toulon kemur í heim-
sókn í Evrópukeppni bikarhafa.
Keflvíkingar mættu ákveðnir til
leiks og má segja að þeir hafi
klárað dæmið í fyrsta leikhluta
þegar þeir náðu 14 stiga forystu
17-31. Þórsarar héldu í við gest-
ina í næsta leikhluta en í seinni
hálfleik gerðu Keflvíkingar end-
anlega út um leikinn og unnu ör-
uggan sigur.
Greinilegt var að Keflvíkingar
voru með Evrópuleikinn á mið-
vikudag í huga í kvöld vegna
þess að allir leikmenn fengu að
spila nóg og komu ungu strák-
arnir vel út. Enginn lék þó betur
en fyrirliðinn Gunnar Einarsson í
kvöld þar sem hann skoraði 19
stig þrátt fyrir að hafa einungis
leikið hálfan leikinn. Hann hitti
m.a. úr 5 af 7 þriggja stiga skot-
um sínum. Nick Bradford kom
honum næstur í stigaskori með
17 stig og þar á eftir komu Arnar
Freyr og Davíð Þór sem stimpl-
uðu sig rækilega inn í leikinn
með 14 stig og 12 stig og nýttu
sér aldeilis tækifærið sem þeim
gafst í kvöld.
Leon Brisport átti góðan leik í
liði heimamanna og skoraði 20
stig og tók 16 fráköst. Raymond
Robins kom næstur með 17 stig.
Að leik loknum eru Keflvíkingar
jafnir Njarðvíkingum í öðru sæti
með 14 stig, en Njarðvík á leik til
góða. Grindavík leiðir sem fyrr
með fullt hús, 18 stig eftir 9 leiki.
Jóhann B. Guðmunds-son, atvinnumaður íknattspyrnu, æfir þessa
dagana með sínu gamla liði
Keflavík. Jóhann er laus
allra mála hjá Lyn í Noregi
þar sem hann hefur spilað
síðustu þrjú ár og er að leita
fyrir sér erlendis að nýju liði.
Hann fer m.a. til reynslu hjá
sænska úrvalsdeildarliðinu
Örgryte í næsta mánuði.
Hann hefur lýst því yfir að
hann sé ekki á leiðinni heim til
að spila, en segir við Morgun-
blaðið: „Ég hef ekki hugleitt
það að ráði að snúa aftur til Ís-
lands, en ef það gerist yrði mitt
fyrsta félag, Keflavík, að sjálf-
sögðu ofarlega á blaði.“
Að auki má minnast á það að
Morten Olesen, danski mark-
vörðurinn sem var til reynslu
hjá Keflvíkingum í síðustu
viku, stóð sig vel á þeim stutta
tíma sem hann hafði, en for-
ráðamenn Keflavíkur fara sér
þó í engu óðslega og hyggjast
gefa sér góðan tíma til að taka
ákvörðun um framhaldið og
líta aðeins betur í kringum sig.
ÍS-KEFLAVÍK
ÍS lagði Keflavík á mánudaginn í
1. deild kvenna í körfuknattleik,
68:56. Keflvíkingar mættu til
Reykjavíkur með vængbrotið lið
þar sem vantaði Erlu Þorsteins,
Birnu Valgarðs og Kristínu Blön-
dal, og munar aldeilis um minna.
Staðan í leikhléi var 35:25 eftir
jafnan leik lengst af, en Alda Leif
Jónsdóttir skoraði síðustu 10 stig
hálfleiksins og kom ÍS í góða
stöðu fyrir þann seinni. Þar náðu
ÍS allt upp í 22 stiga forystu, en
að Keflavík náði að klóra í bakk-
ann fyrir leikslok.
Alda Leif Jónsdóttir var stiga-
hæst í liði Stúdína og skoraði 27
stig og Stella Rún Kristjánsdóttir
kom næst með 21 stig. Alls skor-
aði ÍS 13 þriggja stiga körfur í
leiknum.
Í liði Keflavíkur var Anna María
Sveinsdóttir stigahæst með 18
stig, þar af 16 í þeim síðari.
Bryndís Guðmundsdóttir var
næst henni með 13 stig.
NJARÐVÍK-KR
KR-stúlkur gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu Njarðvíkinga í Ljóna-
gryfjunni í gærkvöldi 72-80.
Segja má að KR hafi gert út um
leikinn í fyrsta leikhluta þar sem
þær skoruðu 29 stig gegn 18 stig-
um heimastúlkna, en Njarðvík
náði aldrei að vinna þann mun
upp.
Andrea Gaines átti enn einn stór-
leikinn fyrir Njarðvík og skoraði
30 stig og tók 17 fráköst, Auður
Jónsdóttir skoraði 14 og Guðrún
Karlsdóttir skoraði 12.
Katie Wolf virðist vera að smella
æ betur að leik KR og skoraði 23
stig og tók 9 fráköst, en Hildur
Sigurðardóttir var engu að síður
besti leikmaður kvöldsins og
náði þrefaldri tvennu, 19 stig, 18
fráköst og 10 stoðsendingar. Hún
fyllti raunar í ferfalda tvennu því
hún tapaði boltanum 11 sinnum
að auki, en hún telur það varla
með. Tinna Sigmundsdóttir átti
líka góðan leik og gerði 13 stig.
Eftir leikinn eru liðin jöfn að
stigum með 10 stig hvort.
GRINDAVÍK-ÍR
Grindavík vann sinn annan leik í
deildinni í vetur þegar þær unnu
góðan heimasigur á ÍR á laugar-
dag. Lokatölur voru 58-47 eftir
að heimastúlkur höfðu unnið upp
8 stiga forskot sem ÍR hafði í
hálfleik.
Stigahæstar Grindvíkinga voru
Sólveig Gunnlaugsdóttir, sem
skoraði 14 stig og Sandra Guð-
laugsdóttir, sem setti 11. Enn
einn stórleikur Eplunus Brooks
dugði ÍR ekki til sigurs í kvöld
en hún var með 17 stig og 18 frá-
köst.
KEFLAVÍK-NJARÐVÍK
Á laugardaginn fer fram einn af
stórleikjum ársins í kvennakörf-
unni þegar Keflavík og Njarðvík
mætast. Síðast þegar liðin mætt-
ust hafði Keflavík öruggan sigur
í Ljónagryfjunni og það er næsta
víst að leikurinn í Keflavík verð-
ur Njarðvíkurstúlkum síst auð-
veldari. Keflvíkingar eru í öðru
sæti deildarinnar og Njarðvík
fylgir þar á eftir.
Jón Júlíus Árnason hjá Njarðvík
fer ekki í neinar grafgötur með
að sigur verður torsóttur til
Keflavíkur. „Þær kunna körfu í
Keflavík og hafa bæði reyndar
stelpur sem og ungar og efnileg-
ar. Við höfum hingað til ekki rið-
ið feitum hesti frá viðureignum
okkar á þeirra heimavelli, en allt
er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Við munum koma til þessa leiks
til að vinna hann.“
Hjörtur Harðarson segist vera
farinn að hlakka til hörkuleiks.
„Njarðvíkingar eru bara tveimur
stigum á eftir okkur og mæta
dýrvitlausar til leiks. Við vorum
ekki að standa okkur nógu vel í
síðasta leik þar sem vantaði
nokkrar stelpur en þær eiga að
vera komnar í stand á laugardag.
Við verðum bara að koma rétt
stemmdar í leikinn.“
KR-GRINDAVÍK
Grindvíkingar hafa ekki komið
vel út úr viðureignum sínum við
KR í vetur og verða að taka sig á
ef þær ætla að sækja sigur í
DHL-Höllina á laugardag. Pétur
Guðmundsson, þjálfari Grinda-
víkur, leggur mikla áherslu á
þennan leik. „Ef við töpum þess-
um leik er orðið erfitt að ná þeim
að stigum og komast í úrslita-
keppnina. Annars hafa stelpurnar
verið að bæta sig að undanförnu
og vörnin var mjög góð í síðasta
leik. Þær verða bara að mæta til-
búnar og grimmar til leiks.“
■ Intersport-deildin í körfuknattleik / síðustu leikir
SUÐURNESJASIGRAR
GRANNASLAGUR■Kvennakarfa
JÓI B. ÆFIR
MEÐ KEFLAVÍK
sportið
ÍS-inn stóð
í Keflavík
Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
Jó
ha
nn
es
K
r. K
ris
tjá
ns
so
n
VF 50. tbl.03/ 48p heima 10.12.2003 8:46 Page 42