Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.03.2004, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 25.03.2004, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 25. MARS 2004 I 15 Hjörtur hættur! H jörtur Harðarson sagði upp störfumsem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur íkörfuknattleik á föstudaginn. Ákvörðunin kom þó nokkuð á óvart þar sem Hjörtur hefur náð góðum árangri með liðið á sín- um fyrsta vetri. Liðið hefur unnið alla þá fjóra titla sem í boði eru og hafði unnið alla leiki sína eftir áramót fram að útileiknum gegn Grindavík í síðustu viku. Ástæða uppsagnarinnar var ágreiningur milli þjálfara og leikmanna um starfsaðferðir en Hjörtur bauðst til að víkja til að leysa þann ágreining. Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari karla og fyrrum þjálfari kvenna- og karlaliðs Keflavík- ur, mun stýra liðinu í úrslitarimmunni gegn ÍS sem hófst í gær. Daglegar fréttir á Netinu • www.vf.is 13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 15:30 Page 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.