Víkurfréttir - 25.03.2004, Blaðsíða 16
Keflavíkurstúlkur hafaverið skrefi framar öll-um öðrum liðum í
kvennakörfunni í vetur og kom
það því eflaust mörgum á óvart
að þær skildu lenda í vandræð-
um með nágranna sína úr
Grindavík. Oddaleik þurfti til
að skera úr um það hvort liðið
kæmist í úrslit og höfðu Kefla-
víkingar loks betur eftir erfið-
an og spennandi leik.
KEFLAVÍK-ÍS
Úrslitarimman verður því á milli
þeirra og ÍS, en þetta eru þau lið
sem eru búin að vera jafn best í
vetur.
Fyrsti leikurinn fór fram í gær-
kvöldi, eftir að blað þetta fór í
prentun, en það lið sem fyrr
vinnur þrjá leiki er Íslandsmeist-
ari.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
leikmannahóp Keflvíkinga þar
sem valinn maður er í hverju
rúmi. Breidd hópsins er óumdeil-
anlega sú besta í deildinni og
geta þær leyft sér að hvíla leik-
menn eins og Erlu Þorsteins og
Birnu án þess að það komi hart
niður á leik þeirra.
Stúdínur bættu við sig bandarísk-
um leikmanni, Casie Lowman að
nafni, fyrir úrslitakeppnina og
mun hún eflaust styrkja liðið að
einhverju marki, en þeirra lykil-
leikmaður er sem fyrr Alda Leif
Jónsdóttir. Þau lið sem hafa sótt
stig gegn ÍS eru þau sem hafa
náð að klippa Öldu út úr spilinu
og munu Keflvíkingar eflaust
reyna eitthvað álíka.
Þrátt fyrir að Keflavíkurstúlkur
séu augljóslega með sterkari
mannskap er ekki á vísan að róa
með ÍS því þær lögðu KR örugg-
lega í tveimur leikjum í undanúr-
slitum og gætu komið á óvart.
Annar leikur liðanna verður á
laugardag, sá þriðji á mánudag
og ef þess gerist þörf verða fjórði
og fimmti leikurinn 2. og 4. apríl.
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712sport@vf.is
Ú R S L I TA L E I K I R Í S L A N D S M Ó T S K V E N N A
RIMMA GEGN ÍS
Sundfólk ÍRB bætti enneinni skrautfjöðrinni íhattinn um helgina og
má segja að fiðurfénaður
landsins sé orðinn var um sig
eftir yfirreið Suðurnesjamanna
í sundhöllum hérlendis sem er-
lendis síðustu misseri.
ÍRB vann til 19 Íslandsmeist-
aratitla á Innanhússmeistaramóti
Íslands í sundi sem fór fram í
Vestmannaeyjum.
Örn Arnarson lét mikið að sér
kveða eins og við var að búast og
vann til átta gullverðlauna í ein-
staklingsgreinum. Erla Dögg
Haraldsdóttir hlaut fjögur og
Birkir Már Jónsson tvö. Þá sigr-
aði Hilmar Pétur Sigurðsson í
1500m skriðsundi, og boðsunds-
sveitirnar náðu í fjögur gull. Auk
þess hlaut ÍRB fern silfurverð-
laun og fimm bronsverðlaun.
Þannig er uppskeran 19 titlar af
40 mögulegum, sem er það
mesta sem nokkuð íslenskt fé-
lagslið hefur náð, fjögur stúlkna-
met og fjölmörg persónuleg met.
Flestir sem fylgdust með mótinu
voru á því að frammistaða Erlu
Daggar væri besta afrek mótsins
þar sem hún setti fjögur stúlkna-
met og tyllti sér í fremstu röð ís-
lenskra sundkvenna.
Steindór Gunnarsson, þjálfari,
sagðist vera glaður maður þessa
dagana og skyldi engan undra
eftir velgengni síðustu ára. „Ég
var hæstánægður með allt liðið í
þessu móti og hvernig það stóð
sig sem ein heild.
Framundan eru alþjóðleg mót
þar sem t.d. stór hópur íslenskra
sundmanna er að fara að keppa í
Lúxemborg í apríl og þar verða 6
krakkar héðan og svo eru Örn og
Íris Edda að fara á Evrópumótið í
50m laug í Madrid í maí og ég
býst við því að allir þessir kepp-
endur komi til baka með verð-
laun. Það sýnir hvernig standar-
dinn er hjá okkur að krakkarnir
sjálfir eru farnir að setja kröfur
til sín um að vinna til verðlauna.“
Steindór þakkaði sérstaklega for-
eldrafélaginu og stjórninni fyrir
árangurinn en ekki mætti gleyma
framlagi bæjaryfirvalda og stór-
fyrirtækja sem styddu dyggilega
við sundið hér í bæ.
Gullregn í Eyjum
VF
-M
YN
D:
H
IL
M
AR
B
RA
GI
B
ÁR
ÐA
RS
O
N
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 14:37 Page 16