Víkurfréttir - 25.03.2004, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
„Nú á að vera alger þögn.
Áhorfendur eru komnir í sal-
inn og það verður að vera alger
þögn baksviðs,“ hrópaði Jón
Marinó aðstoðarleikstjóri
söngleiksins Bláu augun þín
sem Fjölbrautaskóli Suður-
nesja setur upp fyrir árshátíð
skólans þegar hópurinn var við
æfingar í Stapanum á dögun-
um. Rúmlega 90 manns koma
að sýningunni og hafa æfingar
staðið yfir af fullum krafti síð-
ustu vikur.
Leikstjóri og höfundur sýningar-
innar er hinn góðkunni Keflvík-
ingur Þorsteinn Eggertsson, en
textarnir sem hann hefur samið
eru komnir yfir 500 hundruð
talsins. Þorsteinn er hæstánægður
með æfingarnar og frammistöðu
allra þeirra sem koma að sýning-
unni. Þegar Víkurfréttir litu við á
æfingu á dögunum var nóg að
gera hjá honum þar sem hann sat
og fylgdist með rennsli á söng-
leiknum.
Hvernig er að vinna með þess-
um krökkum?
Þetta er bara meiriháttar lið.
Sumir hafa verið dálítið stressað-
ir við að syngja, en þetta er allt
að koma. Við erum náttúrulega í
Keflavík, leikara- og tónlistar-
bænum. Það er alveg á hreinu að
við eigum eftir að sjá suma af
þessum krökkum í bíómyndum í
framtíðinni.
Sérðu þarna hæfileikafólk?
Já, alveg fullt af því.
Hvernig finnst þér krakkarnir
vera að fara með þessi lög?
Alveg ótrúlega vel. Þetta eru
krakkar sem fæddust hálfum öðr-
um áratug eftir að Hljómar
hættu. En þau eru að ná þessu
mjög vel.
Hafa þau gaman af þessu?
Já, það held ég að sé alveg ör-
uggt. Það bara sést á því að þau
brosa allan hringinn.
Hvernig hefur þetta gengið?
Ég skrifaði söngleikinn fyrir jólin
og æfingar hófust í janúar. Þetta
er búið að vera nokkuð snarpur
tími.
Var erfitt að velja fólk í söng-
leikinn?
Það voru haldin áheyrnarpróf og
þá hafði maður ýmis atriði í
huga. En fyrstu viðbrögð skipta
alltaf mestu máli. Ég held að val-
ið hafi gengið mjög vel.
Textarnir sem þú hefur samið í
gegnum tíðina eru ófáir. Hef-
urðu verið að semja eitthvað
upp á síðkastið?
Það er alltaf eitthvað. Textarnir
eru orðnir um 500 talsins og það
eru að koma út lög um páskana
og síðan ennþá meira í sumar.
Maður er alltaf að.
Þú stoppar ekkert í textasmíð-
um?
Nei, ég ætlaði að hætta fyrir 20
árum en sá að það var ekki hægt.
Þetta bara gengur sinn gang.
Hverju geta áhorfendur búist
við?
Mjög fjörugri sýningu með góðu
tempói. Fólk á ekki að sofna á
þessari sýningu.
➤ S Ö N G L E I K U R I N N B L Á U A U G U N Þ Í N
Það eru engir smá töffar-ar sem leika hljómsveit-armeðlimi Hljóma. Þeir
eru ánægðir með hlutverk sín
og aðspurðir segjast þeir glaðir
yfir því að fá tækifæri til að
skyggnast inn í líf fræga fólks-
ins. Þeir lifa sig vel inn í hlut-
verkin eins og góðum leikurum
sæmir.
Hvernig hefur ykkur líkað að
leika Hljóma?
Þetta er bara glæsilegt og alveg
hrikalega gaman. Okkur finnst
líka mjög gaman að fá tækifæri
til að kynnast sögu Hljóma betur.
Og það má ekki gleyma píunum
sem elta okkur á röndum. Frægð-
in og peningarnir koma svo á eft-
ir.
Eruð þið að upplifa ykkur sem
stjörnur?
Já, ekki spurning. Við erum eltir í
skólanum þar sem píurnar eru að
biðja um eiginhandar áritanir.
Við erum stjörnur út í eitt.
Þannig að þið getið alveg skilið
hvernig Hljómum leið á sínum
tíma?
Já, það var nú dálítið ýktara en
hjá okkur. En við fáum okkar
sneið af kökunni.
Við hverju geta áhorfendur bú-
ist?
Feikna sýningu og að rifja upp
gamlar minningar.
Ætla Hljómar að halda áfram
eftir þessa sýningu?
Við munum gera það.
Hvernig er að vera Rúnni Júl?
Það er bara geggjað - algjört
dúndur.
Hljómar sviðsettir af FS
Gaman að kynnast sögu Hljóma
VF
-M
YN
D:
JÓ
H
AN
N
ES
K
R.
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
VF
-M
YN
D:
JÓ
H
AN
N
ES
K
R.
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
Hljómatöffararnir. F.v: Engilbert Jónsson, Rúnar Júlíusson, Gunnar Þórðarson og Erlingur Björnsson.
Þeir segjast ekki fá frið fyrir píunum nú þegar þeir eru komnir í hlutverk strákanna sem voru í Hljómum
fyrir 40 árum síðan og trylltu píur landsins á þeim tíma.
Það er mikið fjör á
sýningunni Bláu augun
þín og aðstandendur
sýningarinnar segja
hana vera ferska,
kröftuga og höfða til
allra aldurshópa.
Miðasala fer fram í
Hljómval og Stapanum.
13. tbl. 2004 umbrot hbb 24.3.2004 13:58 Page 12