Víkurfréttir - 15.07.2004, Page 10
R eykjanesbær hefurákveðið að bjóða ungufólki í atvinnuleit á aldr-
inum 16 - 24 ára tímabundna
vinnu í sumar. Alls var um 60
ungmennum boðin þátttaka og
eru mörg þeirra þegar farin að
vinna. Krakkarnir fá vinnu í 4-
6 vikur og eru sum búin að
finna vinnu eftir það en aðrir
neyðast til að fara aftur í sama
farið.
Ljósmyndari Víkurfrétta hitti í
vikunni á hóp unglinga sem var
við gróðursetningu á Nikkel-
svæðinu. Þau létu veðrið ekki á
sig fá enda eru þau flest fegin
að vera komin í vinnu.
Margir krakkanna sem urðu fyrir
svörum sögðust hafa verið að
leita sér að vinnu frá því snemma
í vor en það væri ekkert að finna,
sérstaklega fyrir þá sem ekki
höfðu náð 18 ára aldri. Krakk-
arnir létu atvinnuástandið þó
ekki skemma góða skapið. „Það
má eiginlega segja að þetta sé
skítavinna,“ sagði sá sem sá um
lífræna áburðinn í gróðursetning-
unni og glotti við tönn. „Þetta er
samt betra en að gera ekkert.“
Áætlaður kostnaður við verkefn-
ið er kr. 11.820.000 og mun At-
vinnuleysistryggingasjóður
greiða hluta af þeim kostnaði en
að auki hefur bæjarráð Reykja-
nesbæjar samþykkt viðbótarfjár-
veitingu til atvinnuátaksverkefna
að upphæð kr. 4.000.000.
Við könnun á högum atvinnuleit-
enda á aldrinum 16 - 24 ára kom
í ljós að um 30 einstaklingar á
aldrinum 17 - 20 ára, aðallega
skólafólk, eru atvinnulausir og án
bótaréttar og falla því ekki undir
skilyrði um sérstök verkefni
svæðisvinnumiðlana. Einnig eru
6 einstaklingar með 50% bótarétt
og 23 með 100% bótarétt.
Meðal verkefna sem unnin verða
í sumar eru uppgræðsla og fegr-
un á útivistarsvæðum, aðstoð við
kynningu á víkingaskipinu Ís-
lendingi, vinna við gagnagrunn
fyrir ferðaþjónustu á Reykjanesi,
stuðningur og umönnun við fötl-
uð börn í sumarvistun, vinna við
gagnagrunn landupplýsingakerf-
is fyrir Reykjanesbæ, skráning á
listasafni Reykjanesbæjar og að-
stoð við námskeiðahald í Lista-
skóla barna.
Að vinna eða sitja heima - það er stóra spurn-
ingin!
KALLINN FÓR Á stúfana í vikunni og ræddi
við nokkra atvinnurekendur á Suðurnesjum
sem hann þekkir. Kallinn spurði út í hvernig
þeim hefði gengið að fá fólk til vinnu af Suður-
nesjum. Af þeim fjórum vinnustöðum sem
Kallinn heimsótti áttu tveir þeirra í vandræðum
með að fá fólk í vinnu af atvinnuleysisskránni
á Suðurnesjum. Báðir atvinnurekendurnir
voru búnir að gefast upp á því að leita til
vinnumiðlunarinnar eftir starfskröftum.
GETUR ÞAÐ VIRKILEGA verið að fólkið sem
er á atvinnuleysisskránni vilji ekki vinna - vilji
frekar vera á atvinnuleysisskránni? Kallinn trúir
því bara ekki og skilur að á skránni er fólk sem
treystir sér ekki til að vinna hvaða vinnu sem
er. En að það takist ekki að manna stöður í
fiskvinnslu- og framleiðslufyrirtækjum á Suð-
urnesjum sýnir að eitthvað er að. Gæti það
verið að unga fólkið sé orðið svo fínt með sig
að það vilji frekar vera á bótum en vinna í
fiski? Kallinn er ekki að fullyrða neitt en ef svo
er þá er sú kynslóð í miklum vanda.
ÞAÐ HLÝTUR ALLT AÐ vera betra en að hafa
ekki atvinnu; hafa ekkert að gera allan liðlang-
an daginn. Það hlýtur að vera mannskemm-
andi og ekki hollt fyrir neina sál - hvorki aldna
né unga. Kallinn fer fram á að Víkurfréttir
skoði málið ofan í kjölinn og kanni hvort það
sé tilfellið að fólk sem er á atvinnuleysisskrá
sé ekki tilbúið til að vinna - sé bara sátt við
aurana sem það fær í bætur. Kallinn trúir
þessu ekki - en vill að málið sé kannað.
NÚ ER HERINN svo sannarlega að sýna sig á
svæðinu. Herflugvélarnar fljúga látlaust yfir
Njarðvík svo dynur í öllu. Eru þeir að taka
kveðjuflugið - eða sýna að þeir séu ekki að
fara og að allt sé á fullu hjá þeim?
ROSALEGA EIGA SUÐURNESJAMENN gott
íþróttafólk. Hver verðlaunin á fætur öðrum
koma og má þar nefna; fimmti flokkur Kefla-
víkur fékk verðlaun á Esso mótinu; Hesta-
menn gerðu góða hluti á landsmótinu; gamla
fólkið vann verðlaun á landsmótinu og Jói
Kristjáns náði frábærum árangri í borðtennis
ófatlaðra á landsmótinu á Sauðárkróki.
ÍÞRÓTTAHÁSKÓLANN HINGAÐ! Kallinn yrði
rosalega ánægður með Geir Sveinsson sem
skólastjóra og styður hann heilshugar. Maður-
inn er goðsögn að mati Kallsins og góð fyrir-
mynd fyrir nemendur skólans.
AÐ LOKUM vill Kallinn minna á að hann er
lýðræðissinni og hann skilur ekki það sem er
að gerast i Íslenskri pólitík þessa dagana! Bara
skilur það ekki!
Kveðja, kallinn@vf.is
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MUNDI
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
421 0000
Eins gott að þetta séu ekki
enskar fótboltabullur....nú eða
ítalskar!
Kallinn
á kassanum
Bílabraut og íþróttaháskóli - gott mál!
Atvinnulausum unglingum boðin vinna
➤ Allt að 60 atvinnulausir unglingar í Reykjanesbæ komast í tímabundna vinnu í sumar :
Grískar fótboltabullur á vegum sumarleikhóps Vinnuskólans í Reykjanes-
bæ heimsóttu knattspyrnuvöll Keflvíkinga í vikunni. Þeir mættu aðeins of
tímanlega vegna þess að leikurinn átti ekki að hefjast fyrr en klukkan 19:15
um kvöldið. Leikhópurinn hefur verið með ýmis verk í allt sumar og hefur
sannarlega sett skemmtilegan svip á bæinn. Krakkarnir voru klædd að
hætti Forn-Grikkja og gengu um knattspyrnuvöllinn. Kofabyggðin sem
stendur á malarvellinum í Keflavík tæmdist fljótt þegar smíðakrakkarnir
hópuðust í kringum þessi skrýtnu goð.
Grískar fótboltabullur á Keflavíkurvelli
Unglingarnir fást við all-
skyns garðyrkjustörf.
29. tbl. 2004-Stefan7 14.7.2004 14:11 Page 10