Víkurfréttir - 09.12.2004, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
F R É T T I R
M
EN
N
IN
G 8 Listasafn Reykjanesbæjar:
Tónlistarmaðurinn Hjör-leifur Ingason frá Kefla-vík hef ur, í samstarfi
við Elvar Bragason, gefið út
diskinn Regn, en þeir félagar
standa að samnefndum dúett.
Diskurinn samanstendur af 10
lögum sem þeir hafa samið, en
einn textinn er eftir Þorstein
Eggertsson.
Hjörleifur hefur verið að semja
popptónlist síðustu 30 ár og
leikið með hljómsveitum í Dan-
mörku, en hann bjó þar um
19 ára skeið og stundað nám
í tónlistarskóla FÍH. Hann og
Elvar hafa leikið saman undir
merkjum Regns í eitt ár og hafa
spilað mikið á veitingahúsum á
höfuðborgarsvæðinu
Í fréttatilkynningu sem fylgir
disknum kemur fram að nafn
dúettsins sé hugsað sem eins
konar mótleikur við öllum „sól-
arböndunum,” t.d. Á móti sól,
S.S. sól o. fl.
Hjörleifur segist vera mikill
jazz- og fönkmaður en þessi
plata sé hreinræktað popp. Síð-
asta lag disksins, Snúðurinn,
var framlag Hjörleifs í Ljósa-
lagskeppnina 2004.
Fyrsti diskur dúettsins Regn
8 Tónlistarmaðurinn Hjörleifur Ingason frá Keflavík:
Hið árlega Jólahapp-drætti Lionsklúbbs Njarðvíkur er farið
í gang og er boðið upp á
marga glæsilega vinninga að
þessu sinni.
Í aðalverðlaun er ný bifreið
af gerðinni Toyota Yaris, en
auk þess er hægt að tryggja
sér sjónvarp, hljómtækjasam-
stæðu eða örbylgjuofn.
Heildarverðmæti vinninga er
rúm 1.500.000 og er einungis
dregið úr seldum miðum.
Dregið verður á Þorláks-
messu, en allur ágóði rennur
til líknarmála.
Gunn ar Gunn ars son organisti og Sigurður Flosason saxófónleik-
ari halda tónleika í Ytri-Njarð-
víkurkirkju fimmtudaginn 9.
desember kl. 20:30 Tónleik-
arnir eru haldnir í tilefni af
út komu geisla disks ins
“Draumalandið”, en hann
kom út um miðjan nóvem-
ber.
Á diskinum leika Sigurður og
Gunnar 13 íslensk ættjarð-
arlög í eigin útsetningum,
en þar gegnir spuni stóru
hlutverki. Diskurinn hefur
að geyma hefðbundin ætt-
jarðarlög á borð við “Land
míns föður” eftir Þórar-
inn Guðmundsson, “Hver
á sér fegra föður land”
eft ir Emil Thoroddsen
og þjóðsöng Íslendinga
eftir Sveinbjörn Svein-
björnsson. Einnig koma fyrir
einsöngslög með þjóðlegu ívafi
svo sem „Draumalandið“ Sigfús
Einarsson og „Nótt“ (Nú ríkir
kyrrð í djúpum dal) eftir Árna
Thorsteinsson. Þá eru flutt dæg-
urlög sem á síðari árum hafa
fest í sessi sem ættjarðarlög svo
sem “Ísland er land þitt” eftir
Magnús Þór Sigmundsson og
„Fylgd“ eftir Sigurð Rúnar Jóns-
son.
Sigurður Flosason og Gunnar
Gunnarsson hafa áður vakið
athygli fyrir diska sína „Sálma
lífsins“ og „Sálma jólanna“, en
báðir nutu mikilla vinsælda og
hlutu jákvæða dóma. Gunnar
og Sigurður hafa auk þess báðir
gefið út diska í eigin nafni og
leikið inn á fjölda diska með
öðrum. „Draumalandið“ var
tekið upp í Laugarneskirkju í
júní sl. Þar leikur Gunnar
Gunnarsson á nýtt íslenskt
pípuorgel, smíðað af Björg-
vini Tómassyni. Orgelið,
sem var vígt í desember
2002, er hið stærsta til þessa
eftir íslenskan orgelsmið.
Þess má geta að “Drauma-
landið” er fyrsti geisladiskur-
inn sem hljóðritaður er á hið
nýja orgel Laugarneskirkju.
Draumalandið er m.a. gefið
út til að fagna 60 ára afmæli
íslenska lýðveldisins og 100 ára
afmæli heimastjórnarinnar í ár.
Þess má geta að Sigurður Flosa-
son og Gunnar Gunnarsson eru
tilnefndir til íslensku tónlistar-
verðlaunanna fyrir diskinn.
Tónleikar í Ytri Njarðvíkurkirkju
8 Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson:
Yaris aðal-
verðlaun í Jóla-
happdrætti
Í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum stendur nú yfir sýning á olíuverkum úr safneigninni. Um er að ræða verk eftir ýmsa listmálara frá mismunandi tímum þar sem
náttúra Íslands er viðfangsefnið. Má þar m.a. sjá verk eftir gömlu
meistarana Kjarval, Jón Stefánsson, Ásgrím Jónsson og Þórarin
B. Þorláksson. Sýningin er opin alla daga frá 13.00-17.30 fram
að jólum og eru íbúar bæjarins hvattir til að nota tækifærið og
sjá hluta safneignarinnar. Enginn aðgangseyrir er í Duushúsin í
desember.
Gömlu meistararnir í DUUS