Víkurfréttir - 09.12.2004, Side 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttir), sími 421 0003, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0014, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0011, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
8 VIÐHORFSKÖNNUN Á NETINU
Spurt var:
Ertu sammála því að
breyta rekstri fríhafnar-
innar í einkarekstur?
Já sögðu 22%.
Nei sögðu 78%.
Alls voru greidd 130 atkvæði.
Spurning vikunnar
á vf.is er:
Hvar gerir þú stærstu
jólainnkaupin? Suðurnes
eða höfuðborgarsvæðið.
Farðu inn á vef Víkurfrétta, www.vf.is og taktu þátt í vikulegri
viðhorfskönnun. Niðurstöður verða birtar í Víkurfréttum
vikulega, ásamt næstu spurningu.
Já: 22%
Nei: 78%
Vals
fimmtud
ags
Í ljósaskiptunum
Skil ekki hvernig í ósköpunum mér datt í hug að standa í flutningum í byrjun desember. Það var svo sem ekki á skipulaginu en svona gerast hlutirnir bara. Hefði að
vísu getað sagt mér það sjálfur að vera ekki að kaupa húseign
í miðju kennaraverkfalli og það á miðju hausti. Mig minnti að
þriggja mánaða afgreiðslutími væri algengur í húsaskiptum
en í þetta skiptið tók það mun skemmri tíma. Verð þó að
viðurkenna að þetta er ekkert tiltökumál. Einu sinni flutti ég
á sjálfan þjóðhátíðardaginn sautjánda júní, takk fyrir. Hæ,
hó, jíbbíjei og jibbíjei! Ætla samt ekki að mæla með svoleiðis
flutningstíma hjá fólki með börn. Miklu skemmtilegra að vera
niður í skrúðgarði. Jafnvel þó hann rigni.
Frúin var reyndar búin að pakka fyrir löngu og útbýta innanstokksmunum samkvæmt erfðagreiningu. Enn og aftur sluppu bikararnir og verðlaunapeningarnir mínir
við að lenda á tombólu. Dótið í bílskúrnum er náttúrulega
yfirgengilegt og því guðs blessun að fá að koma því haganlega
fyrir í gámunum hjá Kölku. Þar eru yndislegir starfsmenn á
hverju strái og hreint út sagt frábær aðstaða til að koma bíl-
skúrsdóti fyrir til frambúðar. Miklu stærri og betri ,,skúr’’ þar
en hjá mér. Sé ekki eftir neinu. Get svarið það!
Fataskápurinn var ekki alveg eins auðveldur. Einhverra hluta vegna tengist maður fatadruslunum tilfinninga-böndum enda verið umvafinn görmunum við hin ýmsu
tilefni. Minningar um veislur, partí, jól og páska rifjuðust
upp í hugskoti mínu eins og flassmyndir í módelmyndatöku
og það var virkilega gaman að heilsa upp á sumar tuskurnar.
Ógleymanleg svarta skyrtan sem týndi tölunum þegar ég
tók syrpuna upp á borði niður á Rá. Eða diskódressið frá
Hollýwood árunum. Hvað þá karrígula vetrarúlpan sem ég
keypti í Zöru á Spáni. Fór reyndar aldrei í hana. Fullir fata-
pokar af minningum eru nú á leið til Rauða krossins og verður
dreift til nýrra eigenda. Vona svo sannarlega að þeir eigi eftir
að eiga jafngóðar minningar og ég í görmunum.
Það eina sem ég á virkilega erfitt með þessa dagana er að búa í kössum á jólaaðventunni. Allir farnir að skreyta og jólaljósin mín einhversstaðar á milli húsa.
Mér líður eins og herra Jólafúl, ljóslausum og allslausum og
það í sjálfum ljósabænum. Hefði sennilega verið litinn horn-
auga í nýja Las Vegas hverfinu uppi á ,,Völlum’’ef ég væri að
flytja þangað. Það fer ekki á milli mála að ljósadýrðin er öllu
meiri í norðurbænum en suðurbænum þessa stundina. Ég er
því staddur einhversstaðar í ljósaskiptunum.
EFTIR VAL KETILSSON
��������������������
�������������������������������������� ���������� � ����� ����������
������������ ��� ��������������� ������ ������ ������������
Gárungarnir eru fljótir að
finna ný nöfn á hlutina.
Í kjölfar umræðu síðustu
vikna um olíusamráð
þá gaukaði einn ágætur
lesandi því að okkur að
ný merking hafi verið
lögð í skammstöfunina
OSK sem enn má sjá á
olíutanki í Keflavík. Vildi
hann meina að OSK þýddi
OlíuSamráðsKlúbburinn
og vitnaði þar til samskipta
forstjóra olíufélaganna...
OSK = OlíuSamráðsKlúbburinn
Rúmlega 830 millj óna króna halli verð ur á bæjarsjóði á þessu ári
samkvæmt endurskoðaðri fjár-
hagsáætlun sem lögð var fram
á fundi bæjarstjórnar á þriðju-
dagskvöld. Gert var ráð fyrir 4
milljóna króna rekstrarafgangi
í upphaflegri fjárhagsáætlun
sem lögð var fram í lok síð-
asta árs. Hart var tekist á um
málið á fundi bæjarstjórnar á
þriðjudagskvöld og lögðu bæði
minnihluti og meirihluti fram
bókanir vegna málsins.
Minnihluti Samfylkingar og
Framsóknarflokks lýsir yfir
miklum áhyggjum vegna þróun-
arinnar og krefst þess í bókun
að gripið verði til annarra vinnu-
bragða. Í bókun minnihlutans
segir: „Þegar upphafleg fjár-
hagsáætlun var samþykkt í lok
síðasta árs var gert ráð fyrir 4
milljón króna rekstrarafgangi.
Niðurstaðan er því verri sem
nemur 837 milljónum eða 23%
af heildartekjum bæjarsjóðs
sem nema um 3,5 milljörðum
króna.
Á síðasta ári var rekstrarniður-
staða bæjarsjóðs neikvæð um
rúmar 800 milljónir, en þá var
hallinn fjármagnaður með sölu-
hagnaði fasteigna, sem ætlaður
var til niðurgreiðslu skulda.
Slíkum söluhagnaði er hins
vegar ekki til að dreifa á þessu
ári og því ljóst að ef ekki tekst
að ná tökum á rekstri bæjarins
stefnir í algjört þrot á nokkrum
árum,” segir m.a. í bókun minni-
hlutans vegna málsins.
Segir einnig í bókuninni að þótt
margt gott hafi verið gert á síð-
ustu árum þá sjái það allir að
ekki sé hægt að halda áfram á
þessari braut. „Hins vegar er
ekkert sem bendir til þess að
meirihluti sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Reykjanesbæjar hafi
getu til þess að taka upp önnur
vinnubrögð. Fyrirhugaðar fram-
kvæmdir sem kynntar hafa verið
gefa tilefni til að ætla að áfram
verði keyrt umfram áætlanir og
að Reykjanesbær verði skuldum
vafinn í lok þessa kjörtímabils.”
Meirihluti bæjarstjórnar lagði
einnig fram bókun vegna máls-
ins þar sem segir í framhaldi af
góðri rekstrarniðurstöðu árið
2003 hafi Reykjanesbær fjárfest
í mjög mikilvægum verkefnum
fyrir framtíð bæjarins. „Góð
eignastaða Reykjanesbæjar leyfir
að farið sé í slíkar fjárfestingar.
Þessum aðgerðum er ætlað að
skila auknum tekjum í bæjar-
sjóð vegna fjölgunar bæjarbúa
og betri atvinnutækifæra þeirra.
Samfylkingunni og Framsókn
er velkomið að vinna þetta með
sjálfstæðismönnum og öllum
góðum ábendingum fagnað nú
sem fyrr,” segir í bókun meiri-
hluta bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar.
830 milljóna kr. halli
8 Bæjarsjóður Reykjanesbæjar: