Víkurfréttir - 09.12.2004, Blaðsíða 33
VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 9. DESEMBER 2004 I 33
Á síðasta bæjarráðsfundi Reykjanesbæjar var lagt til að álagningarhlutfall
útsvars og fasteignagjalda verði
óbreytt á árinu 2005 að und-
anskyldu sorphirðugjaldi sem
hækki í kr. 5.100 úr kr. 4.900.
Út svarspró sent an yrði því
áfram í 12.7% en ekki hækkuð
upp í 13.03% sem er löglegt há-
mark.
Var til lagan samþykkt með
þremur atkvæðum meirihlut-
ans, en Jó hann Geir dal og
Ólafur Thordersen, Samfylk-
ingu, sátu hjá og bókuðu að
þeim þætti óráð að nýta ekki
tekjumöguleika sveitarfélagsins
að fullu meðan bæjarsjóður er
rekinn með tapi ár eftir ár.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að þeir hefðu ákveðið að fylgja
ekki fordæmi annarra sveitarfé-
laga sem hafa verið að hækka
álögur á þegna sína að undan-
förnu. Þau hafa vísað til útgjalda-
aukningar vegna launahækkana
kennara sem eina stærstu or-
sökum hækkana.
„Vissulega þýða kennarasamn-
ingarnir aukinn kostnað en
við þurfum ekki að leggja 200
milljóna króna skatt á bæjar-
búa til að mæta því,” segir Árni
og bætir því við að eignarstaða
bæjarins sé nægilega sterk til að
hægt sé að halda áfram uppbygg-
ingu áfram.
Árni sagði að lokum að hann
hefði trú á því að fólk ið í
bænum væri ekki hlynnt frekari
skattlagningum.
„Skattahækkanir eru auðveld
leið í pólitík, en við munum fara
erfiðari leiðina. Við trúum því
að heillavænlegra sé að Reykja-
nesbær marki sér sérstöðu fyrir
lága skatta og góða þjónustu.
Þannig getum við laðað fólk til
bæjarins og það skilar tekjum til
bæjarsjóðs.”
Útsvarið hækkar ekki
8 Reykjanesbær:
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
: O
D
D
G
EI
R
KA
RL
SS
O
N
Fréttirnar sérðu fyrst á vf.is!
................................
Íþróttafréttir daglega á vf.is