Víkurfréttir - 26.02.2005, Page 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Dvalarheimili aldraðra á Suðurnesjum:
stuttar
F R É T T I R
8 Þunguð kona féll fram fyrir sig í verslun Bónuss í Njarðvík:
Allt fór vel að lok um og stúlku barn kom í heiminn á Landsspítal-
anum á föstudagskvöld eftir að
þunguð verðandi móðir hafði
fallið á gólf í verslun Bónuss
á Fitjum í Njarðvík síðdegis
sl. föstudag. Tveir sjúkrabílar
fóru í útkallið en annar sjúkra-
bílanna var á leið til Keflavíkur
með lækni innanborðs.
Eftir að búið hafði verið um
konuna í sjúkrabílnum utan við
Bónus í Njarðvík var farið beint
til Reykjavíkur, en skurðstofa
er ekki til taks í Reykjanesbæ
allan sólarhringinn. Ástandið
var talið alvarlegt og hver mín-
úta talin skipta máli. Bráðakeis-
araskurður fór fram á Landsspít-
alanum og lítið stúlkubarn kom
í heiminn.
Bæði móður og barni heilsast
vel en þau dvelja nú á sjúkra-
húsi í Reykjavík. Þetta er fyrsta
barn móðurinnar.
Heimild hefur verið veitt til að reka hluta dvalarheimilisins Hlévangs sem hjúkrunardeild. Þetta kom
fram á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ
í síðustu viku. Víkurfréttir leituðu til Finn-
boga Björnssonar, framkvæmdastjóra
Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum, sem
rekur heimilið, til að fá frekari fréttir af
málinu.
Finnbogi upplýsti að sl. haust hefði verið
gert samkomulag milli eignaraðila DS og
heilbrigðisráðherra um skipan öldrunar-
mála á svæðinu. Fyrsti hluti þess væri að 10
dvalarrýmum á Hlévangi yrði breytt í hjúkr-
unarrými. Nú er unnið að lagfæringum á
Hlévangi og innkaupum tækja og búnaðar.
Nú þegar eru nokkrir heimilismenn á Hlé-
vangi sem þurfa hjúkrunarrými, þar eða
annarstaðar. Auglýst hefur verið eftir fag-
fólki til starfa þar. Gert er ráð fyrir að þessi
skipan mála verði á Hlévangi þar til að nýtt
hjúkrunarheimili verður risið í Reykjanesbæ
á svæði sem er nú í skipulagslegri hönnun.
Er þar gert ráð húsbyggingu fyrir allt að
90 hjúkrunarrýmum byggðum í þrem ein-
ingum, 30 rúm í hverri, þjónustubyggingu
o.fl. Einnig verða byggðar öryggisíbúðir sem
verða þjónustutengdar. Er þetta hluti af upp-
byggingu Reykjanesbæjar á svæðinu, sem er
nánar tiltekið á íþróttasvæðinu í Njarðvík.
Tímamörk opnunar nýja heimilisins eru
áætluð 2007.
Hluti af nefndu samkomulagi eru endur-
bætur á hjúkrunarheimilinu Garðvangi.
Er þar um breytingar á elsta húsnæðinu að
ræða, bæði hvað varðar aðstöðu heimilis-
manna og starfsmanna.
Undirbúningur allra þátta er hafinn og sótt
hefur verið um fjármagn til þessara verka.
Fr a m k v æ m d i r v i ð Íþrótta aka dem íu í Reykjanesbæ ganga
vel og nú þegar er komin
mynd á bygginguna sem
tekin verður í notkun næsta
haust.
Árni Sigfússon bæjarstjóri
brá sér í heimsókn á bygging-
arsvæðið fyrir helgi ásamt
Stef áni Bjarkasyni fram-
kvæmdastjóra MÍT sviðs og
samkvæmt vefsíðu Reykja-
nesbæjar, bauð Árni starfs-
mönnum upp á harðfisk um
leið og hann kannaði fram-
gang mála. Búið er að steypa
grunn byggingarinnar og
uppsteypa á útveggjum er
langt komin.
Húsið er alls 2.700 m2 og
er áætlaður byggingarkostn-
að ur um 450 millj ón ir
króna.
Þess má geta að íþróttasalur
akademíunnar er 20x40 á
stærð og rúmar því löglegan
hand bolta völl en lög leg
keppnisstærð í körfubolta er
18x33.
Skólastarf mun hefjast í
akademíunni í september
2005 og er gert ráð fyrir að
nemendur á fyrsta ári skól-
ans verði um 30 talsins en
þeim mun fjölga ört á næstu
árum.
Eignarhaldsfélagið Fasteign
hf. byggir húsið en fram-
kvæmd ir eru í hönd um
Ís lenskra að al verk taka.
Skóflustunga var tekin að
byggingunni þann 13. nóv-
ember sl. og má því segja að
byggingin rísi hratt.
Hluti Hlévangs rekinn sem hjúkrunardeild
Framkvæmdir
við Íþrótta-
akademíu
ganga vel
Allt fór vel og lítil
Bónus-stúlka fædd
stuttar
F R É T T I R
Skólamötuneytin
í Reykjanesbæ
boðin út?
Fræðsluráð Reykjanes-bæjar hefur samþykkt að fræðslustjóri kanni
kosti þess að bjóða út skóla-
mál tíð ir í grunn skól um
Reykjanesbæjar. Umræður
urðu um rekstur mötuneyta
skól anna á síð asta fundi
ráðsins.
Skólamötuneyti eru í öllum
fjórum grunnskólum Reykja-
nes bæj ar, en nú verð ur
kannað hvort það sé kostur
að bjóða starfsemi þeirra út.
Frístundaskólinn
hluti af grunn-
skólastarfinu
Umræður um málefni Frístundaskóla og endurskoðun starfs-
lýsinga starfsfólks grunn-
skóla voru meðal efnis á
síðasta fundi fræðsluráðs
Reykjanesbæjar.
Ragnheiður Ásta Magnús-
dóttir mætti á fund ráðsins
og sagði frá starfi Frístunda-
skóla fram að þessu. Rætt var
um undirbúning þess að Frí-
stundaskóli verði færður frá
menningar,- íþrótta- og tóm-
stundasviði yfir á fræðslusvið
frá og með næsta skólaári og
verði hluti af grunnskólastarf-
inu. Verkefnisstjóri kemur til
með að skipuleggja og halda
utan um starfið í samvinnu
við skólastjóra, segir í fundar-
gerð ráðsins.
Innbrot í fyrirtæki
á Reykjanesi
Tilkynnt var um inn-brot í fiskvinnslufyr-irtæki út á Reykja-
nesi á föstudagsmorgun.
Lög regla fór á stað inn.
Innbrotið átt sér stað um
nóttina en þjófurinn hafði
farið inn um glugga.
Það sem var horfið var verk-
færakista á hjólum full af
verkfærum, rafsuðutæki,
hátíðnisuðutæki og þriggja
tonna tjakkur. Verðmæti þýf-
isins er nokkur hundruð þús-
und. Ekki er vitað hver var
hér að verki en þeir sem geta
gefið einhverjar upplýsingar
um málið vinsamlegast látið
lögregluna í Keflavík vita.
FRÉTTASÍMINN
898 2222
SÓLARHRINGSVAKT
Svo virðist sem skemmdir hafi verið unnar á „rómantíska svæðinu” við Vatns-holt í Reykjanesbæ. Búið er að saga af
greinar og tálga greinar á trjám í skóginum
svo verulega sér á. Einnig eru glerbrot á svæð-
inu.
Starfsólk leikskóla í Reykjanesbæ bentu Víkur-
fréttum á skemmdirnar og sagði ein starfstúlkan
að leikskólabörnunum hafi brugðið þegar þau
sáu skemmdirnar. Ljósmyndari Víkurfrétta
smellti myndum af svæðinu og í ljós kom að
mörg trjánna eru illa farin.
Skemmd tré í Vatnsholti