Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2005, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 26.02.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 2005 I 13 Því hefur verið haldið fram af byggingaverkamönnum að kranastjórar séu ákveðinn þjóðflokkur. Þeir sitja oftast einir í nokkurra tuga metra hæð og segja kunnugir að þegar þeir koma niður á jörðina eftir langa veru í krananum hafi þeir haft tækifæri til að hugsa ýmis þjóðfélagsmál og láta þá yf- irleitt móðan mása. Torfi Magnússon einn af kranastjórunum á virkjunarsvæðinu á Reykjanesi líður vel hátt uppi í krananum. Torfi segir að það sé ekki fyrir lofthrædda menn að starfa í 35 metra hæð í krananum. Hann segir að starfið venjist þokkalega. „Þetta er misleiðinlegt en ég hef gaman af þessu,” segir Torfi og veðrið uppi í krananum getur verið slæmt. „Jú, það getur verið helvíti slæmt. Það er oft smá veltingur en notalegt samt. Byggingarkranarnir gegna mikilvægu hlutverki á byggingarsvæðum, það væri hreinlega ekki hægt að reisa byggingarnar án krananna. Torfi er nánast stanslaust í hífingum fyrir kallana niðri. „Maður fær nú samt smá frí svona inn á milli og þá notar maður tímann til að líta í bók eða hlusta á geisladisk. Það er ágætt.” Kranastjórinn hátt uppi Fréttavefurinn www.vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.