Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2005, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 26.02.2005, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ����������������� ��������������� ������ ������������� ������������������������������������ ����������������� �������������������������� ���������������������������� Fjór ar nýj ar íbúð ir á vegum Búmanna voru af hentar sl. föstudag. Íbúðirnar eru við Lóuland. Í apríl n.k. verða 4 aðrar íbúðir afhentar. Framkvæmdir eru að hefjast við 2 íbúðir til viðbótar á þessum stað. Þegar áfang- anum við Kríuland og Lóuland verður lokið eru íbúðirnar orðnar 30 talsins. Reynslan hefur sýnt að um helmingur heimamanna er að kaupa bú- seturétt en hinn helmingurinn er aðkomufólk. Framtak Búmanna á stóran þátt í fjölgun íbúa i Garði, segir á vef Sveitarfélagsins Garðs. F r é t t i r b e r i s t t i l : p o s t u r @ v f. i s Garðurinn í fréttum Fr a m k o m á f u n d i Skólanefndar Garðs í s í ð u s t u v i k u a ð könnun hafi verið gerð á meðal foreldra um hvort taka ætti upp notkun á skóla- búningum í Gerðaskóla. Þátttakan í könnuninni var góð að því er fram kemur á vefsíðu Garðs í dag en 72% foreldra svöruðu. Niðurstaðan varð sú að 82% þátttakend vilja hafa skóla- búninga en fram kom á fund- inum að skólabúningar yrðu ekki til aukins kostnaðar við Gerðaskóla þar sem nem- endur þyrftu að greiða fyrir búningana að fullu. Á sama fundi var einnig upp- lýst að könnun hafi farið fram á meðal foreldra hvort þeir vildu fá aðstöðu fyrir börnin við heimanám gegn greiðslu. Ákveðið var í fram- haldi af því að bjóða uppá heimanám gegn greiðslu frá foreldrum. Í ljós kemur á næstu dögum hvernig þátt- takan verður.Framkvæmdir við nýbygg-ingu Byggða safns ins á Garðskaga ganga vel. Núverandi safnhús er fyrir löngu orðið alltof lítið og því var ráðist í stækkun safnsins með 676 fer metra ný bygg- ingu. Safnhúsið er að hluta á tveimur hæðum en á efri hæð- inni er gert ráð fyrir kaffiteríu sem tekur um 50 manns í sæti. Þar er glæsilegt útsýni yfir fjör- una og hafið með vitana í for- grunni. Fyrsta skóflustungan að nýju byggðasafni var tekin síðasta sumar og að sögn verktakans, Braga Guðmundssonar, verður húsinu skilað fullbúnu í maí á þessu ári og um miðjan júní er fyrirhugað að opna sýningu í húsinu. Viðamiklu vélasafni Guðna Ingimundarsonar verða gerð skil á safninu, auk fjöl- margra muna sem ekki hefur verið hægt að setja upp í núver- andi húsakosti. Guðni hefur verið ötull við að gera upp tæki og vélar fyrir safnið. Ti l k y n n t v a r u m þjófn að úr húsi í Garði á mánudags- morg un. Hafði ein hver óboðinn farið þar inn og haft á brott með sér þrjár myndavélar, videótökuvél, sherryflösku og peninga- buddu. Húsið var ólæst. Skólabúningar í Gerðaskóla? Innbrot í Garði Framkvæmdir við Byggða- safnið á Garðskaga ganga vel Búmannaíbúðir afhentar í Garðinum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.